Fréttablaðið - 07.03.2008, Blaðsíða 10
7. mars 2008 FÖSTUDAGUR
VENESÚELA, AP Hugo Chavez, for-
seti Venesúela, hefur skipað svo
fyrir að öll viðskipti við Kólumbíu-
menn verði aflögð. Bæði Chavez og
Rafael Correra, forseti Ekvadors,
skora á ríki heims að fordæma árás
Kólumbíuhers á skæruliða í
Ekvador síðastliðinn laugardag.
„Við höfum ekki áhuga á fjár-
festingum frá Kólumbíu hér,“
sagði Chavez í gær. „Að því er
varðar kólumbísk fyrirtæki hér í
Venesúela, þá gætum við þjóðnýtt
sum þeirra.“
Viðskipti Kólumbíu og Venesú-
ela hafa numið nærri fjörutíu
milljörðum króna á ári, en Chavez
spáir því að sú tala muni lækka
hratt á næstunni.
Hann segir að Venesúela muni
nú leita fyrir sér með vörur frá
Ekvador, Brasilíu, Argentínu og
fleiri löndum sem kæmu í staðinn
fyrir innflutning frá Kólumbíu.
Chavez og Correra sögðu á mið-
vikudag að deilunni myndi ekki
ljúka fyrr en skýr alþjóðleg for-
dæming á árásinni væri fengin.
Condoleezza Rice, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, sagðist þó í
gær vonast til þess að lausn feng-
ist á deilunni með milligöngu fleiri
ríkja. Gott tækifæri til þess gæf-
ist til dæmis á fundi Ríó-hópsins í
Dóminíkanska lýðveldinu, sem
hefst í dag. Á morgun hittast þar
forsetar tólf ríkja Rómönsku
Ameríku. - gb
Krafist þess að ríki heims fordæmi árás Kólumbíu:
Viðskiptabann
lagt á Kólumbíu
FYLGST MEÐ INNFLUTNINGI Á landamærum Kólumbíu og Venesúela standa
hermenn Venesúelamegin og stöðva innflutning á vörum að boði forseta landsins.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP