Fréttablaðið - 08.03.2008, Síða 2
2 8. mars 2008 LAUGARDAGUR
Nóatún mælir með
479 kr.kg.
noatun.is
LÉTTIR ÞÉR LÍFIÐ
Gott í helgarmatinn
SPRENGI
VERÐ!
Móa kjúklingur, ferskur
40%
afsláttur!
SPURNING DAGSINS
MANNRÉTTINDAMÁL Sævar Óli
Helgason, 37 ára Íslendingur,
hefur undanfarinn fjórar vikur
búið á heimili í Danmörku fyrir
pólitíska flóttamenn. Hann hefur
óskað eftir hæli í Danmörku
vegna þeirra ofsókna sem hann
segist hafa orðið fyrir af íslensk-
um embættismönnum.
Sævar segir aðra hælisleitend-
ur afar undrandi á því að maður
frá Íslandi sé meðal þeirra. Hælis-
leitendur í Sundholm þar sem
hann dvelur séu margir hverjir
frá íslömskum Asíulöndum sem
hafi þurft að sæta ofsóknum
vegna kynhneigðar. Þá sé þar fólk
frá Afríkulöndum svo sem
Erítreu, Súdan, Eþíópíu og Níger-
íu sem hefur sætt ofbeldi í heima-
löndum sínum. Sævar segist eiga
von á svari í næstu viku um hvort
hann fái hæli. Verði Danir við bón
hans vilji hann sækja íslenska
ríkið til saka.
Sævar var dæmdur í sex mán-
aða fangelsi árið 2005 fyrir að
rjúfa skilorð með því að slá konu
sem lagði fyrir innkeyrslu hans.
Árið 2007 staðfesti Hæstiréttur
sex mánaða fangelsisdóm Hér-
aðsdóms Reykjavíkur yfir Sæv-
ari fyrir að hafa veist að Ólafi
Helga Kjartanssyni, lögreglu-
stjóra á Selfossi, árið 2005 með
því að hafa þrifið í öxl hans og
brugðið fyrir hann fæti svo hann
hrasaði. Sævar gekk að Ólafi
Helga þar sem hann stóð í
afgreiðslu héraðsdóms og krafð-
ist viðtals. Ólafur Helgi sagði
Sævari að hann væri í réttarhaldi
og bauð honum því viðtal daginn
eftir, en þá átti Sævar að hefja
afplánun annars dóms og varð
hann því ósáttur.
Sævar segist hafa orðið fyrir
einelti íslenskra stjórnvalda og
þar að auki hafi þau neitað að taka
við kærum hans á hendur emb-
ættismönnum. „En aðal ástæða
fyrir tilraun minni til að komast
undir verndarvæng EU [Evrópu-
sambandsins] er Ólafur Helgi
Kjartansson,“ segir Sævar en
hann segir að kærum hans á
hendur Ólafi til ríkissaksóknara
hafi ítrekað verið vísað frá.
„Ég held að líkurnar á því að
Danir veiti honum hæli á þeim
grundvelli að hann sé pólitískur
flóttamaður frá Íslandi séu minni
en engar,“ segir Hildur Dungal,
forstjóri Útlendingastofnunar, og
bætir við: „Nema Danir hafi orðið
þeim mun meiri áhyggjur af
íslenskum efnahagsmálum.“
Ólafur Helgi segir ásakanir
Sævars „gjörsamlega út í hött“.
„Ég hef hvorki ofsótt Sævar né
lagt hann í einelti sem persóna
eða embættismaður,“ segir Ólafur
Helgi. karen@frettabladid.is
Íslendingur leitar
hælis í Danmörku
Íslenskur karlmaður hefur leitað hælis í Danmörku sem pólitískur flóttamaður.
Hann segir fólk í flóttamannabúðunum sem hann dvelur í fremur hissa. Líkur
á því að hann fái hæli eru minni en engar segir forstjóri Útlendingastofnunar.
SEGIST PÓLITÍSKUR FLÓTTAMAÐUR Sævar Óli vill fá hæli í Danmörku en hann hefur
dvalið á heimili fyrir flóttamenn síðustu fjórar vikur. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
ÓLAFUR HELGI
KJARTANSSON
HILDUR DUNGAL
ÍRAK, AP Aðstandendur syrgðu í
gær fórnarlömb tvöfaldrar
sprengjuárásar sem framin var í
fjölsóttum verslunarkjarna í
hverfi sjía-múslima í Bagdad í
fyrrakvöld. 68 manns létu lífið og
minnst 120 særðust.
Tilræðið var grimmileg
áminning um að ofbeldisaldan í
landinu hefur aðeins dvínað, ekki
stöðvast. Enginn hafði lýst yfir
ábyrgð á sprengingunum í gær,
en talsmenn bandaríska herliðs-
ins kenndu al-Kaída í Írak um.
Tvöfaldar sprengjuárásir á
fjölfarna staði til að hámarka
mannfall eru sagðar einkenna
árásir al-Kaída-liða. - aa
68 fórust í Bagdad:
Al-Kaída í Írak
kennt um
HARMUR Aðstandendur fórnarlamba
tilræðisins syrgja í Bagdad í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
TRÚMÁL Biskup Íslands, Herra
Karl Sigurbjörnsson, vísiterar
Hallgrímssöfnuð á morgun og
predikar í Hallgrímskirkju.
Viðburðurinn er sagður
mikilvægur fyrir starf kirkjunn-
ar og þjónustu, og til þess fallinn
að styrkja þjóðkirkjuna. Vísiter-
ing sæti tíðindum enda hafi það
síðast gerst árið 1995, „þegar
Herra Ólafur Skúlason fór í
yfirreið sína um söfnuði Reykja-
víkurprófastsdæmis vestra,“ eins
og segir í tilkynningu frá
Hallgrímskirkju. Búist er við að
fjölmennt verði við messuna sem
hefst klukkan ellefu. - kdk
Búist við fjölmenni í messu:
Biskup vísíterar í
Hallgrímskirkju
Helgi, varð sem sagt engin
iðnbylting?
„Nei, ég fékk 97 prósent atkvæða
eins og síðast. Leitin sem hófst í
fyrra að þessum þremur prósentum
stendur enn yfir.“
Helgi Magnússon var endurkjörinn for-
maður Samtaka iðnaðarins á Iðnþingi.
ALÞJÓÐAMÁL Olubanke King-
Akerele, utanríkisráðherra
Líberíu, og Joanne Sandler,
starfandi aðalframkvæmdastýra
UNIFEM, tala á opnum fundi í
Háskóla Íslands í dag. Tilefnið er
að í dag er alþjóðlegur dagur
kvenna og er yfirskrift fundarins
„Konur um heim allan: Samstaða
og samvinna.“ Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir utanríkisráðherra og
Kristín Ingólfsdóttir, rektor HÍ,
verða með framsögu á fundinum.
Fundurinn fer fram í stofu 105
á Háskólatorgi og hefst klukkan
12. - sgs
Alþjóðlegur dagur kvenna:
Samstaða og
samvinna
SAMGÖNGUR Forsvarsmenn Orku-
veitunnar hafa hug á því að hita
upp vinsæl biðskýli Strætós á
fjölfarnari stöðum í Reykjavík
og jafnvel eina stoppistöð á Akra-
nesi.
Til greina kemur að byggja ný
og betri skýli eða einangra þau
sem fyrir eru og koma fyrir hit-
unartækjum í þeim, að sögn
Kjartans Magnússonar, stjórnar-
formanns Orkuveitunnar.
Hann nefnir sem dæmi stoppi-
stöðina við Háskólann, við
Menntaskólann í Reykjavík, við
Hamrahlíð, Fjölbraut í Breið-
holti og víðar.
„Þetta skiptir miklu máli því
mörgum finnst ekkert leiðinlegt
að ferðast með strætó eða ganga
til og frá stoppistöðinni. Þeim
finnst gaman í vagninum sjálfum
en neikvæðasti þátturinn er biðin
eftir vagninum, sérstaklega í
vondu veðri,“ segir Kjartan.
Því sé gott ef Orkuveitan geti,
með stuðningi annarra, gert dvöl-
ina í biðskýlum huggulegri fyrir
farþega.
Tillagan var samþykkt ein-
róma á stjórnarfundi Orkuveit-
unnar á fimmtudag. Forstjóra
fyrirtækisins hefur því verið
falið að leita eftir samstarfi um
þetta við umhverfis- og sam-
göngusvið borgarinnar og við
Strætó.
- kóþ
Orkuveita Reykjavíkur gerir almenningssamgöngur borgarbúa þægilegri:
Biðskýli verði einangruð og hlý
VINDURINN ALLTAF Í FANGIÐ Strætis-
vagnafarþegar munu líklega hugsa
hlýlega til Orkuveitu Reykjavíkur þegar
búið verður að loka skýlunum og verma
þau. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
LÖGREGLUMÁL Fáklæddur maður
fannst á ráfi við Köldukinn í
Hafnarfirði aðfaranótt föstudags.
Samkvæmt upplýsingum lögreglu
var hann í annarlegu ástandi,
kaldur og illa á sig kominn með
áverka á fæti eftir eggvopn.
Maðurinn vísaði lögregluþjón-
um að húsnæði við Eyrartröð, þar
sem þeir fundu fyrir annan mann
í svipuðu ástandi. Þeir fundu
einnig eggvopn sem er talið hafa
verið notað í átökum milli
mannanna.
Mennirnir eyddu því sem eftir
var nætur í fangageymslu. Þeim
var sleppt eftir yfirheyrslur í
gær. - sþs
Lenti í átökum:
Ráfaði fáklædd-
ur í Hafnarfirði
HEILBRIGÐISMÁL Ráðherrar ríkisstjórnarinnar
keyptu í gærmorgun fyrstu slaufurnar sem seldar
eru til styrktar átaki sem beinist að körlum og
krabbameini. Þetta er í fyrsta sinn sem kynning-
arátaki af þessu tagi er hleypt af stokkunum og
mun það standa næstu tvær vikurnar.
Algengustu tegundir krabbameins sem greinast
í körlum hérlendis eru í blöðruhálskirtli, lungum
og ristli. Á hverju ári greinast um 630 karlar með
krabbamein, þar af um þrjú hundruð með eitt-
hvert fyrrnefndra meina.
„Bráðum verður hægt að bjóða körlum upp á
skipulagða leit að ristilkrabbameini sem er
merkur áfangi,“ segir Guðrún Agnarsdóttir,
formaður Krabbameinsfélags Íslands.
Guðrún segir átakið mikilvægt þar sem karl-
menn séu síður duglegir við að leita til lækna en
konur. Úr þessu þurfi að bæta þar sem áríðandi sé
að grípa snemma inn í þegar fólk fær krabbamein.
Lífslíkur kvenna eftir greiningu eru að sögn
Guðrúnar betri en karla í dag og er skýringin að
hluta til sú að meinið greinist fyrr hjá konum.
Slaufa átaksins er þrílit, blá, hvít og fjólublá og
tákna litirnir blöðruhálskrabbamein, lungna-
krabbamein og ristilkrabbamein.
Á vefsíðunni karlmennogkrabbamein.is sem er
hluti átaksins gefst körlum tækifæri á að kynna
sér hættumerki. - kdk/seg
Krabbameinsfélag Íslands efnir til átaks sem beinist að körlum og krabbameini:
Körlum kennt að þekkja hættumerki
RÍKISSTJÓRNIN Guðrún Agnarsdóttir seldi ráðherrum fyrstu
slaufur átaksins. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
VIÐSKIPTI Tillaga um að leggja
niður Félag íslenskra stórkaup-
manna (FÍS) var felld með rúmum
60 prósentum atkvæða á aðalfundi
félagsins í gær.
Tillagan var lögð fyrir aðalfund
eftir að klofningur í stjórn
félagsins varð til þess að látið var
af viðræðum við Samtök verslun-
ar og þjónustu (SVÞ) um samein-
ingu félaganna.
„Við erum mjög ánægð með
þetta og gott að fá jafnafgerandi
úrslit þannig að allir geti verið
sáttir,“ segir Birgir Rafn Jónsson,
framkvæmdastjóri Kjarans, en
hann er fyrrum formaður FÍS og
er á móti sameiningu við SVÞ. - óká
Aðalfundur FÍS í gær:
Aflagningu fé-
lagsins hafnað
Fastur á Breiðdalsheiði
Lögreglan á Egilsstöðum þurfti að
sækja ökumann bifreiðar á Breið-
dalsheiði um klukkan tíu á fimmtu-
dagskvöldið. Hafði maðurinn hunsað
tilkynningar um að heiðin væri lokuð
en fest illa útbúinn bíl sinn.
LÖGREGLUFRÉTTIR