Fréttablaðið - 08.03.2008, Blaðsíða 106
66 8. mars 2008 LAUGARDAGUR
KÖRFUBOLTI Bikarmeistarar
Grindavíkur taka á móti KR í
lokaumferð Iceland Express-
deildar kvenna, en undir er
heimavallarréttur í einvígi
þessarra sömu liða í komandi
undanúrslitum úrslitakeppninnar.
KR er með tveimur stigum
meira en Grindavík og má tapa
með fimmtán stigum. Vinni
Grindavík með 16 stigum þá
verða liðið jöfn innbyrðis og þá er
Grindavík ofar á betra stigahlut-
falli úr öllum leikjum deildarinn-
ar.
Grindavík og KR geta mæst
sex sinnum í röð á næstu þremur
vikum því auk leiksins í dag þá
getur einvígi þeirra í úrslita-
keppninni farið alla leið í fimm
leiki. - óój
Bikarmeistarar Grindavíkur:
Þurfa að vinna
með 16 stigum
GÓÐ GEGN KR Tiffany Roberson hjá
Grindavík. VÍKURFRÉTTIR/JÓN BJÖRN
HANDBOLTI Þegar Viggó Sigurðs-
son var tilkynntur sem þjálfari
Fram á næsta tímabili, þegar enn
eru átta umferðir eftir af N1-deild
karla, var mörgum örugglega
hugsað til þess sem gerðist á
Strandgötunni í Hafnarfirði fyrir
rétt tæpum átta árum.
Það var nefnilega þannig síðast
þegar Viggó Sigurðsson var ráð-
inn þjálfari liðs meðan annar þjálf-
ari var í sama starfi að sá þjálfari
skilaði liðinu Íslandsmeistaratitli
um vorið.
Fyrir átta árum var Viggó að
koma heim frá Þýskalandi þar
sem að hann hafði þjálfað þýska
liðið Wuppertal í þrjú ár. Hann
hafði þjálfað lið Hauka árartugi
áður, en snéri þá aftur heim til
Íslands. Nú hefur hann lítið þjálfað
síðan hann hætti með íslenska
landsliðið en hjálpaði þó bæði til
hjá þýska liðinu Flensburg sem og
Haukum á síðasta tímabili.
Fréttin um komu Viggós fyrir
átta árum fór í loftið 25. janúar
2000 eða í miðju EM-fríi í deild-
inni. Haukarnir voru þá dottnir út
úr bikarnum og aðeins í 7. sæti
deildarinnar með 12 stig út úr 13
leikjum. Það var stutt í næstu lið
fyrir neðan og ljóst að framundan
var hörð barátta um að komast í
úrslitakeppnina. Á þessum tíma
var örugglega enginn að hugsa um
möguleikann á Íslandsmeistara-
titlinum því Afturelding var í
toppsætinu með ellefu stigum
meira en Haukar.
Guðmundur Karlsson var fag-
mennskan uppmáluð og Haukarn-
ir fór á mikið flug í framhaldi af
EM-fríinu. Haukaliðið tapaði
aðeins einum af síðustu níu
leikjum sínum og fékk 14 stig út
úr þeim eða tveimur stigum meira
en liðið náði í fyrstu þrettán
leikjum tímabilsins. Haukarnir
komu sér upp í 4. sæti deildarinnar
og voru með heimavallarrétt í
fyrstu umferð úrslitakeppninnar.
Í úrslitakeppninni héldu Hauk-
um síðan engin bönd. Þeir unnu
ÍBV (5. sæti) 2-0 í 8 liða úrslitum,
unnu 2-1 sigur á deildarmeisturum
Aftureldingar í undanúrslitum og
unnu síðan Fram 3-1 í lokaúrslit-
unum þrátt fyrir að hafa tapað
fyrsta leiknum með tíu mörkum.
Guðmundur kvaddi því með því að
gera Hauka að Íslands meisturum
í fyrsta skipti í 57 ár, en Viggó átti
síðan eftir að verja titilinn árið
eftir og vinna hann síðan aftur
árið 2003.
Nú er að sjá hvort fréttin í fyrra-
dag hafi sömu áhrif á Ungverjann
Ferenc Buday en Framliðið er nú í
2. sæti deildarinnar tveimur
stigum á eftir Haukum en búið að
spila leik meira. Hver veit neima
að sagan geti endurtekið sig.
- óój
Viggó Sigurðsson í sömu stöðu og fyrir átta árum:
Vinnur Fram titil-
inn eins og Haukar?
KLÁRAÐI MEÐ STÆL Guðmundur Karlsson gerði Hauka að Íslandsmeisturum árið
2000 þótt að hann vissi að Viggó Sigurðsson yrði næsti þjálfari liðsins.
FRÉTTABLAÐIÐ/E. ÓL.
FÓTBOLTI Landsliðsmaðurinn Hermann Hreiðarsson verður í
sviðsljósinu á Old Trafford í dag þegar lið hans Portsmouth
sækir ensku meistarana í Manchester United heim í átta liða
úrslitum ensku bikarkeppninnar. Leikurinn hefst klukkan 12.45
og er í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni Sýn.
Hermann viðurkennir það alveg að þeir hefðu getað verið
heppnari þegar dregið var í átta liða úrslitin.
„Þetta gat ekki verið verri dráttur fyrir okkur. Það hefði verið
allt annað að fá annaðhvort Chelsea eða Manchester
United á heimavelli því við erum búnir að spila við
þau bæði á okkar heimavelli og töpuðum
hvorugum leiknum. Útivöllur er alltaf
erfiðari og þá sérstaklega að fara á Old
Trafford sem er það erfiðasta sem hægt
var að fá. Það þýðir samt ekki að velta
því fyrir sér núna því það er bara
komið að þessu. Við vitum það líka að
ef þú ætlar að vinna bikarinn þá
þarftu að vinna stóru liðin,“ segir
Hermann sem segir að Portsmouth
ætli bara að mæta meisturunum á
sínum forsendum og spila sinn bolta.
„Það hefur gengið vel á útivelli hjá
okkur í vetur en auðvitað þarf að spila
agaðan varnarleik á móti Manchester
og við vitum það. Þeir eru búnir að vera
stórkostlegir í vetur. Það er samt allt
annað andrúmsloft þegar komið er að
bikarnum. Við höldum bara okkar
leikkerfi, reynum að spila agaðan
varnarleik en ætlum ekkert að pakka í
vörn. Það gefur okkur ekkert því við þurfum að skora mark til þess
að komast áfram,“ segir Hermann en það er bara rétt rúmur
mánuður síðan Portsmouth mætti United á Old Trafford í deildinni.
Cristiano Ronaldo skoraði bæði mörk leiksins á 10. og 13. mínútu.
„Þeir gjörsamlega keyrðu yfir okkur á fyrsta korterinu og voru þá
komnir strax í 2-0 og leikurinn var í rauninni búinn. Þá voru þeir í
essinu sínu, héldu boltanum vel og við vorum bara í þvílíkum
eltingarleik. Það var mjög lélegur leikur af okkar hálfu og það
jákvæða við að vera að fara aftur á Old Trafford er að við getum
sýnt hvað í okkur býr. Það býr miklu meira í liðinu en það
sýndi í deildarleiknum á dögunum á Old Trafford,“ segir
Hermann.
Hermann hefur spilað í enska boltanum í meira en
áratug en hefur aldrei komist lengra en í átta liða
úrslit enska bikarsins.
„Ég hef aldrei komist í undanúrslitin í enska
bikarnum og það er mikið í húfi því undanúr-
slitin eru á Wembley. Það væri draumurinn að
komast þangað því ég hef aldrei náð að spila á
Wembley. Þetta er búið að vera mjög gott
tímabil. Það eru tíu leikir eftir og 30 stig
eftir í pottinum. Ef við myndum ná
Evrópusæti þá væri þetta alveg frábært
tímabil,“ segir Hermann sem er í fínu
standi og klár í að taka á mönnum eins og
Cristiano Ronaldo og Wayne Rooney í
Leikhúsi draumanna í dag.
Chelsea fær síðan lið Barnsley í
heimsókn í hinum bikarleik dagsins en
hann hefst klukkan 17.30 og er einnig
sýndur á Sýn. ooj@frettabladid.is
Hef aldrei náð að spila á Wembley
Hermann Hreiðarsson fær að glíma við snillinga á borð við Cristiano Ronaldo og Wayne Rooney á Old
Trafford í dag í leik Manchester United og Portsmouth í átta liða úrslitum enska bikarsins.
Í GÓÐU
STANDI
Hermann
Hreiðarsson
er tilbúinn
í leikinn við
Man. United
í dag.
NORDICPHOTOS/GETTY
Allir geta spilað með og röðin
kostar aðeins tíkall!
Ekki m
issa af
þessu
tækif
æri
Ekki
miss
a af
þess
u tæ
kifæ
ri
Tippaðu á enska boltann
á næsta sölustað eða á www.getraunir.is
Opið til kl. 14.00 í dag laugardag.
Íslenskar getraunir styrkja íþróttafélögin í landinu
um tugi milljóna á hverju ári.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA