Fréttablaðið - 08.03.2008, Page 66

Fréttablaðið - 08.03.2008, Page 66
● hús&heimili „Gamla orðtakið „heima er best“ eru orð að sönnu og þar á ég margar og mismunandi aðferðir til að næra skilningarvitin en þetta ber hæst um þessar mundir,“ segir Ríkey Kristjánsdóttir textílhönnuður þar sem hún stendur á Nýja sviði Borgarleikhússins og tekur síðustu sporin í búninga leikarahópsins í Kommúnunni sem er stykki sem Ríkey segir vera alhliða næringu fyrir alla. „Eigi ég hins vegar að lýsa einum stað þar sem öll skilningarvit eru nærð á sama tíma nefni ég Indland. Það er hreinn dekurdans fyrir sjón, heyrn, lykt, bragð og snertingu.“ BRAGÐ: Við í fjölskyldunni erum miklar félagsverur og hefur alltaf tekist að safna í kringum okkur sæg skemmtilegra vina, sama hvar við búum. Margir eru listakokkar sem elda af ómældri ást og natni og þá er oftar en ekki slegið upp miklum matarveislum þar sem bragðskynið er nært með snilldarmat og víni. Um leið skerpast hláturtaugar og einnig eyrun þar sem vinahópurinn er allt annað en þögull og hefur frá miklu að segja. Svo má ekki gleyma frönskum geitaosti með frönsku hvítvíni. Það er dásamlegt bragð sem veitir endurupplifanir frá París. HEYRN: Til að full- næra eyru mín finnst mér tónlist það besta. Núna sjá De- vandra Ban- hart og José Gonzáles að mestu leyti um þá nær- ingu, en fullkomin helgi hefst með því að fjöl- skyldan eldar saman „french toast“ og þá sjá tvíburarnir um að dekka borð, kveikja á kertum og setja Cohen eða Dylan í spilarann. SJÓN: Góð bíómynd stendur alltaf fyrir sínu. Í miklu uppáhaldi er Bagdad Café, en einnig þykja mér myndir Almodóvars og Wes Andersons mikil augnanæring. Svo er ein períóda sem augu mín elska, og það er art deco-tímabilið frá 1920; bæði hvað varðar liti, munstur og asísk áhrif. LYKT: Nag Champa- reykelsi. SNERTING: Mér finnst skemmti- legast að fara í textílbúðir og snerta falleg efni. Einnig er gaman að skoða og snerta útsaum. Heima er best ● Það er heima sem manneskjan er hvað frjálsust og líður hvað best. Heimilið er griðastaður. Ósvikinn vettvangur þess að nostra við sjálfan sig og næra skilningarvitin. Ríkey Kristjánsdóttir textílhönnuður er meistarinn á bak við hippalega búninga í leikritinu Kommúnunni eftir Lukas Moodysson, sem frumsýnt var á fimmtudagskvöld fyrir fullu húsi með íslenskum og erlendum stórleikurum í Borgarleikhúsinu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM 8. MARS 2008 LAUGARDAGUR24
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.