Fréttablaðið - 08.03.2008, Page 90

Fréttablaðið - 08.03.2008, Page 90
50 8. mars 2008 LAUGARDAGUR U m síðustu helgi lauk hinni árlegu Mardi Gras-hátíð í Sydney í Ástralíu, sem er stærsta hátíð samkyn- hneigðra í heimi. Hátíðin í ár er sú þrítugasta í röðinni og stendur yfir í heilar þrjár vikur með yfir hundrað atburðum, tónleikum, leiksýningum og fleiru. Á lokadegi hátíðarinnar er svo skrúðganga í gegnum miðja borgina. Þetta minnir óneitanlega á hina árlega Gay Pride-göngu í Reykja- vík þó mannfjöldinn sé öllu meiri. Yfir fimm hundruð þúsund manns voru samankomin á lokadeginum í ár þar sem yfir tíu þúsund þátttakendur taka virkan þátt í göngunni sjálfri. Dúndrandi danstónlist, glimmer og fjaðrir, karlmenn með brjóst, stelpur á mótorhjólum, strákar í kjólum og leðurklæddar miðaldra konur í sleik. Á upphafsárum Mardi Gras var ekki um eiginlega hátíð að ræða heldur kröfugöngu þar sem aukinna réttinda samkynhneigðra var krafist. Gangan var þá jafnan stöðvuð af lögreglu og borgaryfir- völdum og þátttakendur urðu fyrir miklu aðkasti borgarbúa og jafnvel ofbeldi. Í ár tók lögreglan sjálf fullan þátt í henni, með pallbíl þar sem lúðrasveit lögreglunnar spilaði undir söng lögreglukonu, og slökkvi- liðið, herinn og borgaryfirvöld voru líka með hópa í göngunni. Gay Pride-gangan sjálf stendur yfir í hátt á þriðja tíma með tilheyrandi sýningum og dregur að sér fjölda ferðamanna enda ótrúleg upplifun. Þó að yfirvöld séu ekki lengur mótfallin göngunni og borgarbúar skemmti sér konunglega hefur hún enn ákveðnar neikvæðar hliðar. Í stað ofsókna og ofbeldisverka í garð samkyn- hneigðra hefur tekið við gríðarlegt unglingafyllerí og skemmdar- verk að göngunni lokinni. Nú í ár hópuðust þúsundir unglinga saman víða um borgina með tilheyrandi látum. Hátíðin í ár er þó talin hafa tekist heilt á litið mjög vel, engin alvarleg slys urðu á fólki að því undanskildu að unglingur kastaði flösku í höfuðið á lögreglukonu auk þess sem einn var handtekinn fyrir að kveikja í taglinu á lögregluhesti. Líklega smámunir þegar fimm hundruð þúsund manns skemmta sér saman (nánari upplýsingar um hátíðina má finna á http://www.mardigras.org.au). Allir litir regnbogans Gay Pride gangan í Sydney í Ástralíu er sú stærsta sinnar tegundar. Logi Karlsson fangaði stemninguna.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.