Fréttablaðið - 28.03.2008, Qupperneq 18
18 28. mars 2008 FÖSTUDAGUR
FRÉTTASKÝRING: Hús í niðurníðslu í miðborginni
Þingholtsstræti 2-4
Hverfisgata 28
Laugavegur 19
Laugavegur 21
HÚS Í NIÐURNÍÐSLU VIÐ LAUGAVEG OG HVERFISGÖTU
Ingólfsstræti
Laugavegur
H
verfisgata
Barónsstígur
Vitastígur
Frakkastígur
Klapparst
ígur
LækjargataBankastræ
ti
Hverfisgata 32-34
Vatnsstígur
Austurstræti 22
Byggt 1801
Laugavegur 4-6
Byggt 1890-1920
Laugavegur 33
Byggt 1921
Laugavegur 35
Byggt 1898
Laugavegur 46
Byggt 1905
Laugavegur 74
Byggt 1902
Byggt 1905
Byggt 1904- 1910
Byggt 1904
Byggt 1916
Klapparstígur 30
Byggt 1917
Borgarfulltrúi vill
þvingunaraðgerðir til
að eigendur húsa komi
þeim í viðunandi horf.
Skipulagssjóður seldi
sum húsin til núverandi
eigenda með það fyrir
augum að þau yrðu
rifin. Uppbygging á hús-
um í eigu borgarinnar
hefst í haust.
SKIPULAGSMÁL „Mér finnst að það
þurfi að hafa einhverjar þving-
unaraðgerðir á eigendur þess-
ara húsa,“ segir Gísli Marteinn
Baldursson borgarfulltrúi um
hús í niðurníðslu í miðborg
Reykjavíkur. Vill hann að eig-
endur sjái um að loka húsunum
eða að borgin komi húsunum í
ásættanlegt horf og sendi eig-
endunum reikninginn. „Ég vil að
við förum nákvæmlega yfir
hvaða leiðir borgin hefur í þessu
máli. Þetta er algerlega óþolandi
fyrir borgaryfirvöld, að sjá
þessi hús sem í sumum tilfellum
voru í ágætu ástandi þegar þau
voru keypt, grotna niður.“
Segir hann suma eigendur
virðast ekki hreyfa litla fingur
til að koma í veg fyrir að húsin
eyðileggist. „Margir verktakar
sem eru að byggja upp á mið-
borgarsvæðinu standa sig með
sóma í þessu. En það eru þarna
nokkrir sem koma óorði á fjöld-
ann.“
Gísli segir þetta ástand ekki
geta haldið áfram. „Við verðum
að leita leiða innan þeirra heim-
ilda sem við höfum eða, ef það
dugar ekki, að breyta þá reglun-
um þannig að við höfum ríkari
heimildir til að hafa þessa hluti í
lagi.“ Segir hann verkefni
borgar innar að kalla þessa aðila
saman og finna lausn á málinu.
„Umræðan hefur verið á mjög
neikvæðum nótum undanfarið
og hefur snúist um að menn séu
að beita borgina þrýstingi,“
segir Hanna G. Benediktsdóttir,
fjármálastjóri Festa fasteigna-
félags. „Við teljum það ekki eiga
við í okkar tilviki.“ Hún segir
húsin við Hverfisgötu 32 og 34
vera hluta eigna sem keyptar
voru af skipulagssjóði á sínum
tíma og aldrei hafi annað staðið
til en að þær yrðu rifnar. Leyfi
til niðurrifs hafi ekki fengist því
skipulagsráð hafi viljað fá form-
lega kynningu á hvað eigi að
koma í staðinn. Segir hún unnið
að því í samráði við borgaryfir-
völd.
Þorvaldur Gissurarson, for-
stjóri Þ.G. verktaka sem eiga
húsið á Bergstaðastræti 20,
segir málin ganga hægt hjá
borginni. „Borgin mætti vera
fljótari að afgreiða ýmis mál en
það er bara kerfið eins og það
er.“
Reykjavíkurborg á húsin á
Laugavegi 4 og 6 og Austur-
stræti 22 sem brann síðasta
vetrardag í fyrra. Útlit er fyrir
að vinna við þau hús hefjist ekki
fyrr en í fyrsta lagi með haust-
inu.
„Það er verið að taka upp deili-
skipulagið með það fyrir augum
hvernig megi skipuleggja þarna
með öðrum formerkjum en gert
var á sínum tíma,“ segir Ólöf
Örvarsdóttir, skipulagsstjóri
Reykjavíkurborgar, um húsin
við Laugaveg 4 og 6. Segir hún
að auglýsa þurfi deiliskipulagið.
„Þannig að við sjáum fyrir okkur
að í haust verði þarna komið
eitthvað almennilega af stað.“
Um uppbyggingu við Austur-
stræti 22 segir Jóhannes Kjar-
val, arkitekt á skipulags- og
byggingasviði Reykjavíkur-
borgar, deiliskipulagstillögu að
pósthússtrætisreitnum liggja
fyrir og vera til endanlegrar
úrvinnslu. „Ég geri ráð fyrir að
eitthvað fari að gerast með
haustinu.“
olav@frettabladid.is
Þingmenn eru þessi dægrin að ganga
frá vali á aðstoðarmönnum en ný lög
heimila slíka ráðstöfun. Sumir hafa
raunar þegar ráðið sína menn og eru
þeir teknir til starfa.
Fá allir þingmenn aðstoðarmenn?
Nei. Aðeins þingmenn landsbyggðar-
kjördæmanna þriggja, Norðvestur-
kjördæmis, Norðausturkjördæmis og
Suðurkjördæmis, fá aðstoðarmenn.
Það er einkum í ljósi gríðarlegrar
stærðar kjördæmanna sem ákveðið
var að þingmenn þeirra fengju
aðstoðarmenn. Þá fá formenn stjórnmálaflokka sem ekki eru ráðherrar aðstoðar-
menn. Þegar hafa Guðjón Arnar Kristjánsson og Steingrímur J. Sigfússon ráðið sér
aðstoðarmenn.
Eru aðstoðarmennirnir í fullu starfi?
Aðstoðarmenn flokksformanna eru í fullu starfi en aðstoðarmenn þingmanna
verða í þriðjungsstarfi. Hinir fyrrnefndu fá starfsaðstöðu hjá Alþingi en hinir síðar-
nefndu verða úti í kjördæmunum.
Á hvaða launum verða aðstoðarmennirnir?
Aðstoðarmenn flokksformanna fá sömu laun og óbreyttir þingmenn, þ.e.
541.720 krónur á mánuði. Aðstoðarmenn þingmanna fá fjórðung þeirrar fjár-
hæðar, um 135 þúsund krónur á mánuði. Tveir eða þrír þingmenn geta sameinast
um aðstoðarmenn og hækka þá starfshlutfall og laun sem því nemur.
Hvers vegna fá þingmenn aðstoðarmenn?
Aðgerðin er liður í að bæta starfsaðstöðu Alþingis en auk þessara ráðstafana
hefur til dæmis nefndasvið þingsins verið styrkt. Í umræðum um málið á þingi
sagði Sturla Böðvarsson þingforseti að með þessum breytingum væru fyrstu
skrefin stigin inn á nýja braut í starfi alþingismanna og Alþingis. Sagði hann
varlega og sparlega farið af stað en að fyrirkomulaginu verði breytt eftir því sem
reynslan kennir.
FBL-GREINING: AÐSTOÐARMENN ÞINGMANNA
Fyrstu skref á nýrri
braut þingstarfanna
KÓMOREYJAR, AP Ríkisstjórn Kómor-
eyja hefur skorað á frönsk stjórn-
völd að framselja uppreisnarfor-
ingja, sem flúði í fyrradag frá
eynni Anjouan til annarrar eyjar í
eyjaklasanum sem enn er hluti af
Frakklandi. Frönsk stjórnvöld
segjast aftur á móti ætla að rétta
sjálf yfir manninum og beiðni
hans um pólitískt hæli væri í skoð-
un.
Kómoreyskir stjórnarhermenn
ásamt liðsauka frá Afríkusam-
bandinu hertóku Anjouan á mið-
vikudag, en eyjan hafði verið á
valdi uppreisnarmanna frá því í
maí. Fyrir uppreisnarmönnum fór
fyrrverandi liðsforingi úr her
Kómoreyja, Mohamed Bacar.
Hann áformaði að lýsa yfir sjálf-
stæði Anjouan. - aa
Kómoreyskur uppreisnarforingi:
Krefjast framsals Bacars
ÓÁNÆGJA Hermenn Afríkusambandsins
og kómoreyska lögreglan kljást við
mót mælendur sem krefjast framsals
Bacars við franska sendiráðið í Moroni,
höfuðborg Kómoreyja, í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Óviðunandi ástand
húsa í miðborginni
TILKYNNINGAR EKKI BORIST Í UM TVÖ ÁR
„Það er búið að senda okkur tilkynningar í einhver skipti og það hefur
verið brugðist við því eins og vera ber,“ segir Þorvaldur Gissurarson, for-
stjóri Þ.G. verktaka sem eiga húsið á Bergstaðastræti 20. „Við erum búnir
að eiga þetta hús lengi en ég hef ekki fengið tilkynningu frá borginni í um
það bil tvö ár.“ Hann staðfestir að þeir bíði eftir heimild til að rífa húsið.
„Umsóknir hjá byggingaryfirvöldum eru á því róli og við erum að bíða eftir
afgreiðslu.“ Segir hann farið með þetta verkefni eins og önnur. „Ef eitthvað
er athugavert, við fáum beiðnir eða óskir frá yfirvöldum eða fólki, þá
bregðumst við við þeim og gerum það sem gera þarf.“
ATHUGASEMDUM
SINNT SAMDÆGURS
„Besta leiðin til að halda lífi
í húsunum er að hafa þau í
útleigu,“ segir Ásgeir Friðgeirsson,
tals maður Samson Properties.
Segir hann allt húsnæði Samson
Properties í miðborginni vera í
útleigu. Þá sé húsum og lóðum
reglubundið haldið við. Hann segir
leigendur vera á staðnum og þá
fylgjast með. „Ef þeir sjá eitthvað
athuga- eða ámælisvert er því
sinnt samdægurs.“
ÆTLA AÐ LOKA
HÚSUNUM
„Húsin verða gerð mannheld á
þann hátt sem hægt er,“ segir
Hanna G. Benediktsdóttir, fjár-
málastjóri Festa fasteignafélags.
„Gluggum og hurðum verður
lokað og við förum að þeirra
tilmælum í einu og öllu,“ segir hún
og vísar til þess að slökkviliðsstjóri
og byggingafulltrúi hafi átt fund
með þeim hjá Festum þar sem
farið var yfir hvað þyrfti til að gera
húsin mannheld.
FRÉTTASKÝRING
OLAV VEIGAR DAVÍÐSSON
olav@frettabladid.is
Þetta er algerlega óþolandi fyrir borgar-
yfirvöld, að sjá þessi hús sem í sumum
tilfellum voru í ágætu ástandi þegar þau voru
keypt, grotna niður.
GÍSLI MARTEINN BALDURSSON
BORGARFULLTRÚI