Fréttablaðið - 28.03.2008, Blaðsíða 66
34 28. mars 2008 FÖSTUDAGUR
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Já...
og... Nei, það er satt!Og?
Pondus var að hringja og spyrja
hvort ég... tja... vildi kannski
koma með niður á pöbb og fá
mér einn bjór... og...
Já?
Heyrðu,
Selma?
km/klst
Þú ekur á Yes!
Ég held ég afþakki
það! Mér finnst
bjór ekkert svo
góður, sjáðu til!
Ekki ég.
Flott!
Mjási, ég kemst ekki yfir
að þú sért sjálflærður í
skrifum. Þú
Kettir þola ekki
sjálfselsku.
Bara
svona til
öryggis...
Jóna! Hann er fimm
ára gamall! Það
verður allt í lagi!
Það er góð hug-
mynd. Hvað finnst
þér að ég ætti að
taka með mér?
Þegar ég var barn tók ég alltaf
eitthvað með mér sem gæti huggað
mig ef ég yrði hrædd.
Ég er búinn að pakka
niður fyrir fyrstu
nóttina hjá vini!
Í bíómyndum og mynda-
sögum koma stundum
fyrir hetjur sem í skjóli
nætur vinna dáðir en
lifa svo venjulegu lífi á
daginn. Nægir þar að
nefna Leðurblökumann-
inn úr Gotham-borg. Nú
hefur Reykjavík eignast
svona nafnlausar og sjálfskipað-
ar hetjur sem taka til í borginni.
Hetjur sem í skjóli nætur flakka
um miðbæinn vopnaðar málningu
og penslum, en ólíkt Tomma og
Jenna sem máluðu bæinn rauðan
mála þessar samtímahetjur
bæinn hvítan. Staðreyndin er að
Reykjavík er illa á sig komin. Þar
ægir öllu saman í einum graut í
byggingarstíl, útigangsfólk er
notað sem vopn í stríði verktaka
og yfirvalda og til að bæta gráu
ofan á svart geta húseigendur í
miðbænum nánast treyst á að
eitthvað sé spreyjað á hús þeirra
ár hvert. Sennilega er Reykjavík
að verða með ljótari borgum á
Norðurlöndunum og lítið virðist
að haft til að sporna við þeirri
þróun.
Þar til eina dimma nótt í vikunni
þegar ónefndir íbúar tóku sig til
og hófu að mála yfir sóðaskapinn.
Ég verð að viðurkenna að ég dáist
að framtakinu þótt það sé vissu-
lega umdeilanlegt. Það er nefni-
lega aldrei gott þegar íbúar þurfa
að taka málin í sínar hendur. Allir
hafa samt sín takmörk og það er
því vel skiljanlegt að einhverjir
borgarar séu búnir að fá nóg.
Þetta framtak segir kannski
meira um ástandið í borginni en
margt annað. Hópurinn sem
þarna var á ferð nefnir sig Góð-
verkasamtökin og í tilkynningu
segja þau ekki mikinn kostnað af
því að mála yfir veggjakrotið.
Staðreyndin er hins vegar að það
kemur alltaf aftur og aftur og er í
raun eilífðarbarátta. Ég held að
það sem borgina skorti sé hugar-
farsbreyting og ögn meiri virðing
fyrir sjálfri sér. Neikvæðar frétt-
ir eru nánast þær einu fréttir sem
maður fær frá Reykjavík þessa
dagana. Það er því vonandi að
framtak þessara næturhetja veki
fólk til umhugsunar og að bjart-
ari dagar séu fram undan.
STUÐ MILLI STRÍÐA Leðurblökumenn Reykjavíkurborgar
ÖRLYGUR HNEFILL ÖRLYGSSON DÁIST AÐ HETJUM NÆTURINNAR
FYLGJA FRÉTTABLAÐINU Á
SUNNUDAG
SKRALLAÐ Í
SKANDíNAVíU
Helsinki séð með augum Áslaugar
Snorradóttur, vor í París, Valparaíso í
Chile, Luberon-hæðirnar í
Provence, heitar strendur á Barbados
og krakkafjör í Múmíndal
Landssamtök hnykklækna
...þrefalt húrra
fyrir öllum flutn-
ingamönnunum!