Fréttablaðið - 28.03.2008, Blaðsíða 68

Fréttablaðið - 28.03.2008, Blaðsíða 68
36 28. mars 2008 FÖSTUDAGUR menning@frettabladid.is Í apríl hefjast tökur á breskri þáttaröð BBC sem byggir á sögu um Kurt Wallander, lögreglu- manninn í Ystad á Skáni. Kenneth Branagh mun leika hann og bætist þá einn Wallanderinn við: Rolf Lassgaard lék hann í sjö myndum en þá tók Krister Henriksson við og lék hann í þrettán myndum. Nú hefur Henning Mankell til- kynnt að þrettán nýjar myndir verði gerðar og Krister fari áfram með hlutverkið. Mankell svíkur þar með loforð sitt um að Wallander sé allur. Margar af myndum Henrikssons voru byggðar á per- sónu Wallanders en ekki sögum og voru handritin frumsamin. Man- kell segir í viðtali við Dagens Nyh- eter í vikunni að ein ástæða þess að hann lætur eftir áköfum kröf- um um að sögum af Wallander verði haldið áfram hafi verið áhugi þeirra Branaghs og Henrikssons á verkefninu, einkum þó sú gagn- rýni Henrikssons að pólitíkin í myndunum væri farin að þynnast, en Mankell hefur alltaf litið á saka- málasögur sínar sem verkfæri í samfélagslegri umræðu. Tökur á nýju myndunum þrettán hefjast í sumar og er fjármagn tryggt fyrir framleiðsluna, tveir og hálfur milljarður íslenskra króna. Fyrsta myndin verður frumsýnd í kvikmyndahúsum vorið 2009 en hinar tólf koma út á mynddiskum. Mankell hafði á tímabili áhuga á að gera hlut Lindu, dóttur Wall- anders, meiri en leikkonan Johanna Sällström sem lék hana á móti Henriksson stytti sér aldur fyrir rúmu ári. Framganga hennar í myndunum þótti með slíkum ágætum að Mankell vill ekki láta þá persónu birtast á ný: „Engin kemur í hennar stað,“ segir hann. Wallander-seríurnar hafa styrkt verulega sókn Mankells á Evrópu- markaði en hann er farinn að selj- ast vel á öðrum málsvæðum, þar á meðal í Bandaríkjunum. Lykillinn að Evrópu er Þýskaland en þar hefur Arnaldur Indriðason einnig átt góðu gengi að fagna. Gagnrýn- endur vestan hafs líta til þeirra tveggja sem forkólfanna í nor- rænu bylgjunni sem býður banda- rískum lesendum upp á annað umhverfi en lengi hefur ríkt í sakamálasögum og myndum þar vestra. Það sýnir styrk norrænna sakamálasagna að BBC skuli ráð- ast í að kvikmynda sögu eftir Man- kell og ekki flytja hana úr stað heldur láta mynda hana á Skáni. pbb@frettabladid.is Enn um Wallander Viðamikil yfirlitssýning á verkum Gerðar Helgadóttur verður opnuð í Gerðarsafni á morgun, laugardaginn 29. mars. Sýningin er haldin í tilefni þess að Gerður hefði orðið 80 ára nú í apríl en hún lést árið 1975, aðeins 47 ára að aldri. Á sýningunni getur að líta áhuga- vert og fjölbreytt úrval af verkum Gerðar; glerlist og höggmyndir af ýmsu tagi, bæði þekkt verk og önnur sem ekki hafa komið fyrir almennings sjónir áður. Þá er hluti af fáséðari verkum Gerðar einnig sýndur, til dæmis skissur og for- teikningar af ýmsum verkum sem ekki var hrint í framkvæmd, svo sem hugmyndir að altaristöflu fyrir Kópavogskirkju. Einnig eru sýndar forteikningar Gerðar að hinum merku gluggum Skálholts- kirkju en Gerður varð hlutskörp- ust í samkeppni sem haldin var um gerð þeirra. Í apríl gefur Gerðar- safn einnig út veglega og ríkulega myndskreytta bók með greinum fjölmargra höfunda um Gerði Helgadóttur og list hennar. Gerður Helgadóttir var frum- kvöðull í íslenskri myndlist. Hún komst til mennta með dyggri aðstoð ættmenna sinna og vina og reynd- ist ákaflega leitandi og frjó lista- kona sem sótti hart fram á erfiðu og umbrotamiklu tímabili í evr- ópskri myndlist. Hún er önnur tveggja listamanna sem tengd var sýningarhaldi CoBrA-hreyfingar- innar en í því mikla og fjölbreytta lífsverki sem eftir hana liggur má finna ýmis lög svo leitandi var hún. Er ekki hægt að segja að þar séu öll kurl komin til grafar. Hún var brautryðjandi í íslenskri högg- myndalist og glerlist og skilur eftir sig fleiri og fjölbreyttari verk en búast má við þegar haft er í huga hversu ung hún var þegar hún lést. Þá var hún í hópi umtöluðustu listamanna Parísar á tímabili „lista- mannagrúppan sem mest er talað um hér í París, álíka og var talað um fyrstu kúbistana á sínum tíma“. Í kynningu frá Gerðarsafni segir: „Í grein um Gerði í listatímaritinu Cimaise frá árinu 1954 segir rit- höfundurinn Michel Ragon Gerði eina kvenmyndhöggvarann sem hafi þorað að ráðast á járnið og undrast að sjá þessa blíðlegu stúlku innan um gasflöskur sínar og furðutól.“ Erfingjar Gerðar færðu Lista- safni Kópavogs verkasafn hennar að gjöf og verður að fullyrða að yfirlitssýning á verkum hennar nú sé einn af stærri viðburðum í íslenskri myndlist á þessu ári. pbb@frettabladid.is Yfirlitsýning á verkum Gerðar Helgadóttur Gerður Helgadóttir mynd- höggvari. Heimildarmyndin Lifað fyrir listina eina eftir Andrés Indriðason.ATH. Í Ríkisútvarpinu – hljóðvarpi – er þáttur í kvöld kl. 20.30 í umsjón Halldóru Ingimarsdóttur helgaður Feneyjatvíæringnum og þátttöku íslenskra myndlistarmanna þar syðra. Þátturinn er í röðinni Brot af íslenskri menningarsögu. Þar er gerð grein fyrir sögu okkar manna í þessum Ólympíuleikum myndlistarinnar. SJÓNVARP Henning Mankell vill auka pólitíst vægi í nýjum flokki sjónvarps- mynda um Wallander. Sálumessa Verdis flutt í apríl Kórinn Vox academica hefur fengið fjóra stórsöngvara til liðs við sig og flytur hið magnaða tónverk Sálumessu Giuseppes Verdi í Hall- grímskirkju nú í byrjun apríl. Einsöngvarar verða þau Sólrún Braga- dóttir sópran, Rannveig Fríða Bragadóttir mezzósópran, Gissur Páll Gissurarson tenór og Kristinn Sigmundsson bassi. Það er orðið langt síðan Sálumessa Verdis var flutt hérlendis með íslenskum einsöngvurum og þykir kórnum það sérstakur heiður að hafa fengið þessa glæstu listamenn til liðs við sig í flutningi á þessu stórvirki Verdis. Það má því vera ljóst að áheyrendur eiga mikið í vændum. Með kór og einsöngvurum leikur hljómsveit Jóns Leifs Camerata og stjórnandi á tónleikunum er Hákon Leifsson, en hann hefur stjórnað Vox academica undanfarin ár. Sálumessa Verdis krefst stórs og vel mannaðs kórs og því verður kórinn skipaður um 75 söngvurum á þessum tón- leikum, en margir þeirra hafa áður tekið þátt í flutningi Sálumessunnar. Tónleikarnir verða hinn 5. apríl klukkan 17 og verður aðeins selt í sjö hundruð sæti í Hall- grímskirkju svo tryggt sé að allir áheyrendur njóti tónleikanna sem best. Miðar eru til sölu í Tónastöðinni í Skip- holti, 12 Tónum við Skólavörðustíg og hjá kórfélögum. pbb@frettabladid.is TÓNLIST Kristinn Sigmundsson kemur heim til að syngja í Sálumessunni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.