Fréttablaðið - 28.03.2008, Qupperneq 24
24 28. mars 2008 FÖSTUDAGUR
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
OMX ÍSLAND 15 Fjöldi viðskipta: 948
5.026 +0,07% Velta: 16.872 milljónir
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Atorka 7,35 +0,69% ... Bakkavör
40,50 +0,62% ... Eimskipafélagið 25,90 -1,33% ... Exista 10,81
+0,37% ... FL Group 6,66 +0,00% ... Glitnir 17,65 +0,86% ...
Icelandair 24,60 +1,65% ... Kaupþing 780,00 -1,14% ... Landsbank-
inn 29,70 +1,02% ... Marel 92,50 +0,54% ... SPRON 4,32 -1,14% ...
Straumur-Burðarás 11,66 +1,04% ... Teymi 4,28 +1,91% ... Össur
92,00 +1,66%
MESTA HÆKKUN
ATL. PETROLEUM +10,98%
EIK BANKI +2,54%
365 +2,38%
MESTA LÆKKUN
ICELANDIC GR. -16,07%
EIMSKIPAFÉL. -1,33%
SPRON -1,14%
Breska verslanakeðjan Laura
Ashley jók við hlut sinn í bresku
herrafatakeðjunni Moss Bros í
vikubyrjun og situr nú á 5,96 pró-
senta hlut.
Baugur er stærsti hluthafi
herrafataverslunarinnar með
tæpan 29 prósenta hlut og lagði
fram óformleg yfirtökutilboð í úti-
standandi hluti Moss Bros í enda
síðasta mánaðar upp á 42 pens á
hlut.
Yfirtakan hefur mætt talsverðri
mótstöðu nokkurra rótgróinna
hluthafa í herrafataverslunni enda
tilboðið lágt. Breskir fjölmiðlar
segja ekki útilokað að aðrir fjár-
festar leggi fram móttilboð í
hana.
Breska dagblaðið Times segir í
gær menn hafa jafnvel spáð því að
Laura Ashley, sem hefur nú keypt
hluti í keðjunni fimm sinnum í
þessum mánuði, muni bjóða í
verslunina á móti Baugi. Er vísað
til þess að fyrirtækið greiddi 46
pens á hlut fyrir bréfin sem er tíu
prósentum hærra en tilboð Baugs
hljóðar upp á. Talsmaður Lauru
Ashley vísar því hins vegar á bug
og segir kaupin góðan fjárfesting-
arkost. - jab
Í MOSS BROS FÖTUM Verslanakeðjan
Laura Ashley hefur aukið hratt við hlut
sinn í bresku herrafatakeðjunni Moss Bros.
Laura Ashley bætir
á sig karlaklæðumAlls voru felldar niður 111 af 179 áskriftum í hlutafjárútboði Skipta
sem fram fór dagana 10. til 13.
mars. Þar af voru 38 áskriftir
felldar niður í fyrradag þegar
voru síðustu forvöð að greiða fyrir
þær, klukkan fjögur síðdegis 26.
mars.
Afföll í hópi fjárfesta skýrast af
því að sama dag og Skipti voru
tekin til viðskipta í Kauphöll
Íslands, 19. mars, lagði Exista,
stærsti hluthafi félagsins fram
yfirtökutilboð í allt hlutafé þess á
útboðsgenginu 6,64 krónur á hlut.
Samdægurs tilkynnti Kaupþing að
ákveðið hefði verið að innheimta
ekki áskriftir sem fengust í hluta-
fjárútboðinu og fella niður þær
sem ekki yrðu greiddar fyrir loka-
frest.
Að teknu tilliti til þeirra sem
féllu frá kaupum í útboðinu á
Kaupþing 1.980.100.660 hluti í
Skiptum, eða 26,87 prósent. - óká
Hundrað og ell-
efu hættir við
„Ekki kæmi á óvart að verðbólgan
setji nýtt met á næsta ársfjórð-
ungi en við búumst við að verð-
bólgukúfur sé framundan sem á
rætur sínar aðallega að rekja til
lækkandi gengis krónunnar undan-
farnar vikur,“ segir í umfjöllun
greiningardeildar Glitnis í gær.
Bankinn fjallaði um stjórn pen-
ingamála og verðbólguhorfur í til-
efni af sjö ára afmæli peninga-
málastefnu Seðlabankans, en hann
tók upp verðbólgumarkmið 27.
mars 2001 um leið og krónunni var
hleypt á frjálst flot. Hún varð um
leið minnsti flotgjaldmiðill í heimi.
Verðbólgumarkmið Seðlabankans
miðar við að halda tólf mánaða
verðbólgu sem næst 2,5 prósent-
um.
Greiningardeild bankans bendir
á að treglega hafi gengið hjá Seðla-
bankanum að halda markmiði. „Á
þessum tímamótum hafa stýri-
vextir hér á landi aldrei verið
hærri og standa nú í fimmtán pró-
sentum og eru hvergi hærri í hag-
kerfum með þróaðan fjármála-
markað að Tyrklandi undanskildu
þar sem vextir eru 15,25 prósent.
Undanfarin sjö ár hafa stýrivextir
Seðlabankans verið að meðaltali
níu prósent,“ segir í umfjöllun
Glitnis, um leið og bent er á að
verðbólgumarkmiði hafi ekki
verið náð í nema um fimmtungi
tímans síðan það var tekið upp, í
átján mánuði af 84. „Verðbólgan
hefur undanfarin sjö ár verið að
meðaltali 4,7 prósent, sem sagt
hart nær tvöfalt verðbólgumark-
miðið“. - óká
Verðbólgumet í vændum
Peningamálastefna Seðlabanka Íslands sjö ára.
Á VAXTAÁKVÖRÐUNARFUNDI Arnór Sighvatsson, aðalhagfræðingur Seðlabankans og
Davíð Oddsson, formaður bankastjórnar, stinga saman nefjum á fundi í fyrra. Sjö ár
eru síðan hér var tekið upp flotgengi krónu og verðbólgumarkmið. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Sérstök útgáfa Seðlabanka
Íslands á ríkisbréfum í gær
upp á 7,15 milljarða króna er
sögð liðka lítillega til á svo-
kölluðum vaxtaskiptamark-
aði. Tregða á þeim markaði
hefur stuðlað að falli krón-
unnar upp á síðkastið. Horft
er til frekari aðgerða bank-
ans í næstu viku með útgáfu
sérstakra „innstæðubréfa“
upp á allt að 50 milljarða
króna.
Tilboðum upp á 7,15 milljarða króna
var í gær tekið í útboði Seðlabanka
Íslands á skuldabréfum í flokki
ríkis bréfa (RIKB 08 1212). Útboðið
er viðbót við áður birta áætlun
Seðlabankans og hluti af viðbrögð-
um stjórnvalda til að létta á þrýst-
ingi á markaði með vaxtaskipta-
samninga.
Óskað var eftir kauptilboðum í
allt að 10 milljarða og bárust, sam-
kvæmt upplýsingum Lánasýslu
ríkisins, 25 gild tilboð upp á 9.950
milljónir króna að nafnverði. „Til-
boðum var tekið fyrir 7.150 millj-
ónir króna að nafnverði á 15,11
prósenta meðalávöxtunarkröfu,“
segir í tilkynningu Lánasýsl-
unnar.
„Ég á ekki von á að þetta leysi
vandræðin á vaxtaskiptamarkaðn-
um, til þess þarf hærri fjárhæðir,“
segir Hjördís D. Vilhjálmsdóttir,
sérfræðingur Greiningar Glitnis.
„En þetta léttir aðeins á.“
Hjördís segir einnig horft til
þess að útgáfa svonefndra inn-
stæðubréfa upp á allt að 50 millj-
arða króna, sem að öllum líkindum
fari fram á miðvikudag í næstu
viku, hafi jákvæð áhrif. „Það eru
bréf til viku í senn, rafrænt skráð
og framseljanleg. Það þýðir að
erlendir fjárfestar geta keypt
bréfin og fengið vaxtamuninn með
því að eiga viðskiptin í gegnum
íslensku bankana.“
Hjördís segir að þótt rúmir sjö
milljarðar séu ekki ýkja há upphæð
í tengslum við dagsveltu á gjald-
eyrismarkaði þar sem nýlegt veltu-
met sé upp á 120 milljarða króna,
þá sé upphæðin dágóð viðbót við
áður auglýsta útgáfuáætlun Seðla-
bankans. Þórhallur Ásbjörnsson,
sérfræðingur á greiningardeild
Kaupþings, segir lykilinn að því að
leysa vanda krónunnar felist í betra
aðgengi íslensku bankanna að
erlendum gjaldeyri. Þar segir hann
skipta mestu að aðstæður á erlend-
um mörkuðum batni og aðgengi
fjármálafyrirtækja að fjármagni
aukist á ný. Það ferli telur hann
hins vegar geta tekið nokkurn tíma,
þótt jákvæðar fréttir af fjármögnun
íslensku bankanna gætu líka flýtt
fyrir ferlinu.
Hina leiðina til að auka aðgengi
bankanna að erlendum gjaldeyri
segir Þórhallur vera að Seðlabank-
inn bjóði bönkunum gjaldeyris-
skiptasamninga líkt og Seðlabank-
ar hafi gert víða annars staðar. En
til að af því gæti orðið þyrfti að
auka aðgengi Seðlabankans að
gjaldeyri, svo sem með auknum
varaforða. Hann segir aðgerðir
Seðlabankans nú raunar geta bætt
aðgengi bankanna að gjaldeyri með
óbeinum hætti, en það sé sennilega
í frekar litlum mæli.
olikr@frettabladid.is
GJALDEYRIR Aðgerðir Seðlabankans með útgáfu ríkis- og innistæðubréfa eru sagðar
með óbeinum hætti geta bætt aðgengi bankanna að gjaldeyri og liðkað til á vaxta-
skiptamarkaði. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Aðgerð sem liðkar fyrir
en dugar ekki ein og sér
BREYTTAR REGLUR
Síðastliðinn þriðjudag tilkynnt
Seðlabankinn um breytingar sem
búist er við að liðki nokkuð fyrir við-
skiptum á fjármála mörkuðum.
1. Skuldbindingar erlendra útibúa
bankanna mynda ekki grunn bind-
ingar. Breytingin er í samræmi við
reglur Seðlabanka Evrópu.
2. Ákveðið hefur verið að nægilegt
sé að sértryggð skuldabréf hafi
tiltekið láns hæfismat en fallið frá
því skilyrði að útgefandi slíkra bréfa
hafi láns hæfismat.
3. Áformað er gefa út sérstök inn-
stæðubréf Seðlabankans, rafrænt
skráð og framseljanleg. Í fyrsta
flokki verða gefin út bréf allt að 50
milljörðum króna.
Ísland á það sammerkt með
Eystrasaltsríkjunum, Ungverja-
landi, Tyrklandi og hugsanlega
Suður-Afríku að lifa langt um efni
fram með ódýru lánsfé. En nú er
veislunni lokið í bili.
Þetta staðhæfir breska dag blaðið
Daily Telegraph í gær og bætir við
að hátt skuldatryggingar álag á
bankana, sem hafi keyrt útrásar-
veisluna síðastliðin fimm ár, hafi
sett tappann í flöskuna í bili.
Álagið liggur við 800 punkta,
álíka og var á fjárfestingarbank-
anum Bear Stearns áður en
bandaríski seðlabankinn forðaði
honum nýverið frá gjaldþroti.
Verði álagið lengi hátt gæti
reynst erfitt fyrir áðurnefnd lönd
að verða sér úti um lánsfé, að
sögn blaðsins. - jab
Veislunni lokið
Ísland sýpur nú seyðið af góðu
árunum sem einkennst hafa af
ódýru lánsfé og skuldsetningu.
Þetta segir breska dagblaðið Fin-
ancial Times í enn einni grein sinni
um íslenskt efnahagslíf í gær.
Blaðið greinir frá ferðum Geirs
H. Haarde forsætisráðherra
erlendis og líkir þeim við söluher-
ferðir þar sem hann hafi kynnt
landið og lýst yfir furðu sinni á háu
skuldatryggingarálagi íslensku
bankanna banka og ríkissjóðs. Segi
hann stöðuna skýrast að hluta af
orðrómi og rógi um íslensk efna-
hagsmál.
Blaðið bendir hins vegar á að
orðfæri Geirs svipi mjög til for-
ráðamanna fjárfestingarsjóða á
Wall Street sem hafi lent í hremm-
ingum í kjölfar mikillar skuldsetn-
ingar. Hafi þeir, líkt og íslenskir
bankar og stjórnvöld, hagnast mjög
síðustu ár á vaxtamun og hafi
aðstæður á markaði komið aftan að
þeim nú. - jab
Fá skuldsetninguna í bakið
Kosningabarátta innan SA
Mikil kosningabarátta fer fram bak við tjöldin
innan Samtaka atvinnulífsins þessa dagana.
Félagsmenn samtakanna kjósa nú um hver
muni taka við formennskunni af Ingimundi
Sigurpáls syni, sem gefur ekki kost á sér áfram. Nýr
formaður tekur svo við á aðalfundi SA sem fram
fer föstudaginn 18. apríl í Listasafni Reykjavíkur.
Stjórnendur og stjórnarmenn aðildarfyrirtækja
og aðildarfélaga eiga þess kost að vera kosnir.
Einn hefur gefið það upp að hann sé tilbúinn
að takast á við hlutverkið, Þór Sigfússon for-
stjóri Sjóvár. Menn líta þó enn í kringum sig
og hefur nafn Brynjólfs Bjarnasonar, forstjóra
Skipta, skotið upp kollinum sem
arftaka. Hann hafi víðtækar tengingar
í alla kima atvinnulífs og stjórnmála,
sé reynslumikill, vel þokkaður og sjái
fram á rólegri tíma eftir að hætt var
við að skrá skipti í Kauphöllina.
Ársfundur í krísu
Þeir sem velta fyrir sér hverjir verða hvar þurfa
ekki að leita langt á morgun. Nóg er að fara
á einn stað; ársfund Seðlabanka Íslands, Þar
verða helstu fjármálamógúlar landsins mættir
í sínu fínasta pússi til að hlusta á ræðu Davíðs
Oddssonar seðlabankastjóra. Mun hann vafalaust
fara yfir stöðuna í efnahagsmálun nú á þessum
viðsjárverðu tímum. Halldór Blöndal, formaður
bankaráðs, þar sem fulltrúar pólitíkusanna
sitja, mun einnig flytja tölu. Báðir eru þekktir
fyrir beinskeyttan og skemmtilegan ræðustíl
og eiga því margir von á að skemmtilegum
samfélagsspegli verði varpað upp með alvar-
legum undirtóni. Í gær stóðu menn
innan bankans í ströngu við að
undirbúa fundinn og gafst lítill tími
til að svara fyrirspurnum fjölmiðla
um gerðir og orð Seðlabankans.
Peningaskápurinn ...
Net12 er rakin leið fyrir þau fyrirtæki og félög sem vilja fara í alvöru vaxtarækt með Byr.
FYRIRTÆKJAÞJÓNUSTA
Notaðu vextina strax
Sími 575 4000 | www.byr.is
// Hleyptu vexti í reksturinn
// Fáðu háa ávöxtun
// Reiknaðu dæmið til enda
Þú færð vaxtavexti af þeim vöxtum
sem ekki eru greiddir jafnóðum út.