Fréttablaðið - 28.03.2008, Side 42
28. MARS 2008 FÖSTUDAGUR2 ● fréttablaðið ● fermingar
Hér ganga þeir sr. Halldór og Daníel til kirkjunnar úr skrúðhúsinu í gamla bænum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Víða í sveitum landsins er beð-
ið með fermingar þar til kemur
fram á vorið og náttúran er
vöknuð af vetrardvalanum.
Hvítasunnan hefur jafnan þótt há-
tíðlegur tími fyrir ungmennin til
að staðfesta skírnina. Hinn græni
litur myndar þá fagran bakgrunn
við athöfnina, gróðurilmur er í
lofti og fuglasöngur í mó.
Meðfylgjandi myndir tók Gunn-
ar V. Andrésson ljósmyndari í
fyrravor í Skógakirkju undir Eyja-
fjöllum. Þar var sérstök stund er
Daníel Kolbeinsson frá Selkoti ját-
aði sína trú við altarið hjá sr. Hall-
dóri Gunnarssyni, presti í Holti.
Skyldfólk og sveitungar fylgdust
með, sungu og báðu Daníel bless-
unar. Síðan gengu allir út í sólskin-
ið.
- gun
Ferming í gróandanum
Anton Björn fermist í dýrindis smóking af klæðskeranum afa sínum, Guðbirni Jóns-
syni. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Þingvellir eru hátíðlegur stað-
ur til að fermast á. Það mun
Anton Björn Sigmarsson verða
einn um að upplifa hinn 27.
apríl á þessu vori.
Anton Björn á heima á Seltjarn-
arnesi en með því að fermast
í Þingvallakirkju kveðst hann
halda í hefð sem skapast hafi í
fjölskyldunni. „Foreldrar mínir
giftu sig í Þingvallakirkju, systir
mín var bæði skírð þar og fermd
og ég var skírður þar líka,“ segir
hann.
Það verður að teljast vel við
hæfi að tjá sína kristnu trú á
þeim stað á Íslandi sem kristni
var lögtekin en veit Anton Björn
hver var ástæðan fyrir því að
foreldrar hans fóru upphaflega
að leita til Þingvalla með kirkju-
legar athafnir? „Já, ástæðan var
sú að sr. Heimir Steinsson Þing-
vallaprestur var persónulegur
vinur fjölskyldunnar. Hann lést
rétt áður en systir mín fermdist
en sr. Sigurður Grétar Helgason,
prestur á Seltjarnarnesi, hljóp
þá í skarðið. Hann ætlar líka að
ferma mig,“ svarar Anton Björn
skilmerkilega. Hann hefur geng-
ið til spurninga í Seltjarnarnes-
kirkju í vetur og sótt þar messur
en er nemandi í Landakotsskóla
og segir flest skólasystkini sín
þegar hafa fermst í Dómkirkj-
unni.
Það er fleira sögulegt við ferm-
inguna hans Antons Björns. Fötin
sem hann valdi eru líka óvenju-
leg. „Ég fermist í smóking sem
afi minn saumaði og átti. Hann
hét Guðbjörn Jónsson og var
klæðskeri og fótboltamaður í KR.
Fötin passa alveg 100 prósent á
mig svo ég er heppinn með það,“
segir hann ánægjulega. Hann
kveðst verða í kyrtli við athöfnina
eins og venja sé en í smókingnum
undir og svo í veislunni. „Ég fékk
líka önnur jakkaföt til að eiga því
það eru fleiri í ættinni sem vilja
nota jakkann hans afa,“ útskýrir
hann. Skyldi hann kannski ætla að
halda veisluna í Valhöll? „Nei, svo
flott verður það nú ekki,“ svar-
ar hann brosandi. „Þetta verð-
ur samt dálítið stór veisla og hún
verður í KR-salnum.“
Í lokin er Anton Björn spurður
hvort hann hlakki ekki til ferm-
ingarinnar. „Jú,“ svarar hann
glaðlega. „Ég er alltaf að verða
spenntari og spenntari.“ - gun
Játar trúna
á Þingvöllum
Í flestum fermingum liggja
gestabækur frammi sem seinna
geyma dýrmætar minningar.
Í þær skrifa fermingargest-
ir nöfn sín og jafnvel orðsend-
ingar og heilræði til ferming-
arbarnsins. Eins má líma í þær
myndir, skeyti og annað sem
tilheyrir fermingardeginum.
Margir kaupa hefðbundn-
ar bækur og láta jafnvel letra
nafn fermingarbarnsins á
þær. Aðrir vilja hafa bækurn-
ar skreyttar í anda fermingar-
barnsins eða í því litaþema sem
er valið. Þá getur verið gaman
að gera eigin bækur og má
finna spennandi efnivið í fönd-
urverslunum. - ve
Dýrmætar
minningar
Gestabækur úr Garðheimum með
vösum fyrir skeyti og myndir. Með
áletrun kostar hver bók 3.480
krónur.
Bleik
bók með
silfruðu skrauti. Fæst í
Litir og föndur. Verð 2.500 krónur.
Tilvalin gestabók fyrir fermingar-
börn sem spila fótbolta. Litir og
föndur. Verð 2.390 krónur.
Það er um margt að
hugsa í messum.
„Viltu leitast við af
fremsta megni að hafa
Jesúm Krist að leiðtoga
lífs þíns?“
Anna María design. Töff silfurhringur
fyrir stráka. Verð 9.500 krónur.
Glóandi glingur
Litlir pinklar með skartgripum
leynast yfirleitt á gjafaborði
fermingarbarna.
Þeir gleðja augað og sumir
endast ævilangt. Stelpur fá ef-
laust meira af glingri en þó eru
til flottir hlutir handa ungum
herrum.
Jón og Óskar. 14 karata gullkross
með lituðum sirkon-steinum. Verð
9.200 krónur.