Fréttablaðið - 28.03.2008, Qupperneq 52
útlit
smáatriðin skipta öllu máli
Lancôme fer óhefðbundnar leiðir í vorlínunni
sinni þar sem hönnuður línunnar, Gucci West-
man, fangar ljósið og birtuna á annan hátt en
tíðkast hefur. Í augnförðuninni leggur hann
áherslu á svæðið nær nefinu og opnar svæðið
fyrir ofan kinnbeinin. Þetta er fullkomið fyrir
konur með lítil augu. Sólarpúður kemur mikið
við sögu og á litaspjaldinu eru bronsaðir litir
með sjávarblæ. Augnskuggaboxið er þungt í
hendi og líkist skel og blái tónninn er eins
og sjórinn á fallegustu sólarströndum. Í
hverri skel eru tvær plötur, önnur með
perlulit sem getur dempað hinn litinn
niður ef það er stemning fyrir því.
Í anda hafmeyjunnar
Í
vor á húðin að vera
sem ferskust í bland
við bjarta gloss-
aða varaliti, pastel-
litaða augnskugga og
skínandi kinnar. MAC-
áhrifa gætir frá sjöunda
áratugnum þar sem þykk-
ur eye-liner er algerlega
málið með skörpum línum
í kringum augun eða dökkum
augnskuggum sem enda í spíss.
Þessi blanda framkallar kyn-
þokkafullt Brigitte Bardot-útlit.
Guðbjörg Huldís „make-up art-
ist“ fangaði hina sönnu föstudags-
stemningu í förðun. Hún byrjaði á
að bera rakakremið, La Mer Mois-
turizing lotion, á húðina. Það krem
hefur svo frábæra eiginleika að
það mýkir húðina upp og nærir
hana um leið. Svo bar hún Select
moisturizing concealer í kring-
um augu og nef. Þá var komið að
því að bera meikið á, Select SPF
15 yfir allt andlit og niður á háls-
inn svo ekki kæmu áberandi skil.
Því næst bar hún Blot powder
yfir andlitið með bursta og Bronz-
ing powder í Golden frá eyrum og
niður á kinnbein.
Næst bar hún Vanilla-augn-
skugga yfir allt augnlokið og upp
að augabrún. Í skygging-
una notaði hún Espresso,
Typographic og Nehru
en þeir litir eru allir í
náttúrulegum tónum.
Að síðustu bar hún
Fluidline eye-liner
ofan á augnlokið en
til að setja punktinn
yfir i-ið setti hún
Fascinating-augn-
blýant inn í augað.
Til að fullkomna
útlitið er nauð-
synlegt að nota
mikið af svörtum
maskara. Varirn-
ar eru ljósar og
glossaðar.
Lærðu að mála þig alveg eins og Brigitte Bardot
Þykkur eye-liner
er ómissandi … nema að lesa bókina Ösku eftir Yrsu sigurðardótt-ur. Hún fékk frá-
bæra dóma og
er nú komin út í
kilju. Þú verður
sem sagt að hafa
smá tíma því það
er ekki séns að þú
getir lagt hana frá
þér þegar þú ert
byrjuð.
...nema að kaupa
þér púða með
atlas-mynstri í
Habitat. Þessi
mun hressa upp
á tilveruna.
...nema að fá þér húshjálp. Það er
glatað að vera heima að þrífa þegar
sólin skín og allir eru í vorskapi. Farðu
frekar út að leika þér.
...nema að baka speltvöfflur. Þær eru
svo ljúffengar og svo getur þú raðað í
þig mörgum mörgum án þess að fá í
magann.
...nema að
klassa þig upp
eftir veturinn.
Prófaðu að
djúsa í nokkra
daga, drekktu
bara heimatil-
búinn græn-
metisdjús, og
þú munt losa
þig við auka-
kílóin sem hlóðust á þig í vetur.
Fyrirsætan Daria Werbowy er and-
lit Lancome. Hér sést hvernig lita-
pallettan er notuð í augnmálningunni.
Dökkt í augnkrókinn og lýsist svo eftir
því sem aftar er komið. Þetta er óhefð-
bundið og fallegt.
Star Bronzer
Til að fá fallega áferð
á húðina er Bronzern-
um blandað saman við
meikið. Það gefur fal-
legan gljáa og hárrétta
áferð.
Engill í sólarpúðri
Hann er tákn förðunarlínu Lancome. Þetta sól-
arpúður er eitt það vinsælasta á markaðnum.
FRÍSKLEGAR KINNAR
Til þess að líta ekki út fyrir að vera fram-
liðin er ekkert annað í stöðunni en að setja nóg af
kinnalit á kinnarnar. Til þess að það heppnist sem best er frá-
bært að nota risastóran bursta svo við verðum ekki eins og se-
brahestar. Kinnaliturinn 02 Bare pinks er akkúrat eins
og við viljum hafa kinnalit.
Módel: Bryndís hjá S. People
Förðun og hár: Guðbjörg Huldís
þú kemst ekki
í gegnum
vikuna …
12 • FÖSTUDAGUR 28. MARS 2008