Fréttablaðið - 28.03.2008, Síða 64
28. mars 2008 FÖSTUDAGUR
timamot@frettabladid.is
„Doktorsverkefnið mitt heitir Tengsl loftslags- og jöklabreyt-
inga suðaustan í Vatnajökli, fyrr, nú og á komandi árum,“
segir Hrafnhildur Hannesdóttir jarðfræðingur. Hún er ein
þeirra sem nýlega hlutu styrki úr Kvískerjasjóði er var stofn-
aður 2003 til heiðurs systkinunum á Kvískerjum í Öræfum til
að stuðla að og styrkja rannsóknir á náttúrufari og menningu
í Austur-Skaftafellssýslu.
Síðasta sumri kveðst Hrafnhildur hafa varið í göngur á
og umhverfis tíu skaftfellska skriðjökla, frá Morsárjökli í
vestri til Lambatungnajökuls í austri. „Ég lagðist á vini og
kunningja og þeir eyddu dögum af sumarfríum sínum til að
labba með mér. Þetta er örðugt svæði að komast um þannig
að ég var háð því að fá fólk sem hafði einhverja reynslu af að
ganga á jöklum. En við vorum mjög heppin með veður.“
Hrafnhildur byrjaði formlegt doktorsnám í jarðfræði síð-
asta haust. Hún fékk líka styrk úr Kvískerjasjóði í fyrra og
hóf rannsóknir í fyrrasumar. „Fyrsti hlutinn fólst í að skoða
hversu stórir þessir tíu skriðjöklar voru í lok litlu ísaldar um
aldamótin 1900. Jöklarnir hafa haft mikil áhrif á líf fólksins
á þessu svæði því árnar sem úr þeim renna hafa flæmst um
haga og slægjulönd og jafnvel lagt bæi í eyði. Heimildir um
breytingar jöklanna eru því til bæði frá íbúum á svæðinu, frá
erlendum ferðamönnum og íslenskum náttúrufræðingum. Ég
tengi þær við þau ummerki sem ég sé og kortlegg þá jökul-
garða sem sýna hæstu stöðu. Til eru líka kort frá 1904 sem
Danir gerðu og þau nýtast vel til samanburðar við merkin
sem sjást í náttúrunni,“ segir Hrafnhildur sem stundar rann-
sóknir með hópi við Jarðvísindastofnun. „Ég leita að sjálf-
sögðu ráða þeirra sem hafa áður stundað rannsóknir á svæð-
inu og aðalleiðbeinandi minn er Helgi Björnsson jöklafræð-
ingur. Hrafnhildur segir Rannsóknasjóð Háskóla Íslands
styrkja verkefnið til þriggja ára og sömuleiðis Vegagerðina.
„Ætlunin er að rekja breytingarnar á jöklunum aftur í tímann
til að spá fyrir um hvernig þeir muni haga sér í framtíðinni.
Það skiptir máli fyrir Vegagerðina að vita hvað í vændum er
því árnar breytast eftir hegðun jöklanna,“ útskýrir hún og
bendir á að könnun á viðbrögðum jökla við loftslagsbreyting-
um sé mikilvæg í hnattrænu tilliti. En hver eru næstu skref
hjá henni? „Það voru ansi margir tugir kílómetra gengnir síð-
asta sumar og aftur verður lagt upp í vor.“ gun@frettabladid.is
HRAFNHILDUR HANNESDÓTTIR:
FÉKK STYRK ÚR KVÍSKERJASJÓÐI
Spáir fyrir um
framtíð jökla
JÖKLARANNSÓKNIR „Hvergi á landinu býr fólk í jafnmiklu návígi við
jökla og í Austur-Skaftafellssýslu,“ segir Hrafnhildur. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
VIRGINIA WOOLF LÉST ÞENNAN DAG
ÁRIÐ 1941, 59 ÁRA AÐ ALDRI.
„Sérhvert leyndarmál í sál rit-
höfundar, sérhver upplifun í
lífi hans og sérhver velmót-
uð hugsun sést skrifuð stórum
stöfum í verkum hans.“
Virginia Woolf var breskur rithöf-
undur, gagnrýnandi og femín-
isti. Hún telst í hópi áhrifamestu
skáldsagnahöfunda á 20. öld.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Þórður Þórðarson
Skarðsbraut 5, Akranesi,
lést á Sjúkrahúsi Akraness miðvikudaginn 19. mars.
Útförin fer fram frá Akraneskirkju þriðjudaginn
1. apríl kl. 14.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent
á Krabbameinsfélag Akraness.
Halla Þorsteinsdóttir
Anna Þórðardóttir Kristján Sveinsson
Gíslný Bára Þórðardóttir Halldór Júlíusson
Þóra Þórðardóttir Helgi Helgason
Rósa Þórðardóttir Sigurður Hauksson
og afabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Hulda Kristinsdóttir
Skarðshlíð 6d, Akureyri,
andaðist hinn 19. mars á Fjórðungssjúkrahúsinu á
Akureyri. Jarðsungið verður frá Akureyrarkirkju föstu-
daginn 4. apríl kl. 13.30.
Kristinn Ásgeirsson Þórunn Ingólfsdóttir
Aðalheiður Björk Ásgeirsdóttir Jóhann Hauksson
Harpa Dögg Kristinsdóttir Eiríkur Stefán Ásgeirsson
Elvar Örn Kristinsson Tina Paic
Ásgeir Jóhannsson
Jóhann Ari Jóhannsson Anna Sæunn Ólafsdóttir
Ásgeir Bjarni Eiríksson
90 ára afmæli
90 ára afmæli þann 30. mars 2008.
Ragnar Björnsson
fæddur í Veturhúsum á Jökuldalsheiði
frostaveturinn mikla 1918, fyrrveran-
di matsveinn, Breiðvangi 28, Hafnar-
fi rði, verður 90 ára næstkomandi
sunnudag. Hann tekur á móti gestum í
sal Flensborgarskóla á afmælisdaginn
milli kl. 16 og 18. Gjafi r og blóm eru
vinsamlega afþökkuð en
söfnunarbaukur Karlakórsins
Þrasta mun verða á staðnum.
Ástkær uppeldismóðir mín, tengdamóðir
og amma,
Jenný Clausen Ward
andaðist á Landspítalanum í Fossvogi föstudaginn
21. mars sl. Jarðarförin fer fram í Kristskirkju,
Landakoti, mánudaginn 31. mars kl. 13.00.
Eva Lísa Ward Crawford
Peter Crawford
Stefán Laurence Stefánsson
Sigríður Jenný Svansdóttir
Patrick Herbert Svansson
og aðrir aðstandendur.
Elskulegur bróðir okkar, mágur og frændi,
Sigurður Ingi Guðjónsson
Neðri Þverá, Fljótshlíð,
verður jarðsunginn frá Hlíðarendakirkju laugardaginn
29. mars kl. 14.00.
Kristín Aradóttir og aðrir aðstandendur.
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengda-
faðir, afi og langafi,
Árni Stefánsson
fv. hótelstjóri, Höfn í Hornafirði,
sem lést að morgni páskadags, 23. mars, verður
jarðsunginn frá Hafnarkirkju laugardaginn 29.
mars kl. 14.00. Þeim sem vija minnast hans er bent á
Hafnarkirkju.
Svava Sverrisdóttir
Hjördís Árnadóttir
Sigurbjörg Árnadóttir
Kristín Þóra Kristjánsdóttir
Gísli Sverrir Árnason Guðrún Baldursdóttir
Guðlaug Árnadóttir Hólmgrímur Elís Bragason
Gauti Árnason Ragnheiður Rafnsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
Guðni Karlsson,
Sólvöllum, Eyrarbakka, áður til heimilis að
Egilsbraut 9 Þorlákshöfn,
lést á Sjúkrahúsi Suðurlands 21. mars. Hann verður
jarðsunginn frá Þorlákskirkju í Þorlákshöfn, laugar-
daginn 29. mars kl. 14.00.
Guðrún Guðnadóttir Jón Dagbjartsson
Helga Guðnadóttir Sæmundur Gunnarsson
Þorsteinn Guðnason Lovísa R. Sigurðardóttir
Katrín Guðnadóttir Sigurður Magnússon
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi, sonur og bróðir,
Jóhannes Sævar
Jóhannesson
frá Vestmannaeyjum, Suðurtúni 19,
Álftanesi,
lést fimmtudaginn 20. mars sl. Útförin auglýst síðar.
Ágústa G.M. Ágústsdóttir
Svava Jóhannesdóttir
Alda Lára Jóhannesdóttir Halldór Klemenzson
Jóhanna María, Þórunn Ágústa, Ella og Anna Lillý
Þórunn Alda Björnsdóttir
og systkini hins látna.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, sonur,
tengdasonur, bróðir og mágur,
Sigurður Sveinn Másson
síðast til heimilis í Vilnius í Litháen,
verður jarðsunginn frá Laugarneskirkju í dag 28. mars
kl. 13.00.
Vaida, Samúel Másson og fjölskylda
Fanný Guðbjörg Guðmannsdóttir Silfurteigi 5, Reykjavík
Jón Guðmann Jónsson
Halldóra Elín Magnúsdóttir Guðmundur
Sæmundsson
Valdís Magnúsdóttir Unnsteinn Hermannsson
Sólveig Fanný Magnúsdóttir Hallgrímur H. Gröndal
og aðrir aðstandendur.
Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Hrefna Magnúsdóttir
Fremri Hundadal, Dalasýslu,
lést á heimili sínu þann 25. mars síðastliðinn.
Snæbjörg R. Bjartmarsdóttir Ólafur Ragnarsson
Kristján H. Bjartmarsson Halldóra Guðmundsdóttir
Jónína Þ. Bjartmarsdóttir
Benjamín G. Bjartmarsson Ólöf A. Steingrímsdóttir
Fanney H. Bjartmarsdóttir Bert Y. Sjögren
Hrefna S. Bjartmarsdóttir Aðalsteinn Jónsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærs
eiginmanns míns og vinar, föður, bróður,
tengdaföður og afa,
Kristins Ingibergs
Sigurðssonar
Þórufelli 18, Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks lungnadeildar
Landspítalans í Fossvogi og krabbameinsdeildar
Landspítalans við Hringbraut.
Jóhanna Antonía Sigsteinsdóttir
Sigsteinn Sigurðsson Halla Pálsdóttir
Sigríður Sara Sigurðardóttir Guðmundur Björnsson
Herdís Elísabet Kristinsdóttir Sveinn Ingi Steinþórsson
Helena Kristinsdóttir Sverrir Kári Karlsson
barnabörn og aðrir aðstandendur.