Fréttablaðið - 05.04.2008, Blaðsíða 21

Fréttablaðið - 05.04.2008, Blaðsíða 21
Nýr Ford Focus er kostum prýddur. Nýtt og glæsilegt útlit, framúrskarandi tækni og ríkulegur útbúnaður eru örfá dæmi af mörgum sem mæla með Focus. Frábær fjölskyldubíll sem er gaman að eiga, gott að keyra og hagkvæmt að reka. Svo er hann líka vænni fyrir umhverfið. Settu fókus á Ford Focus hefur verið mest seldi bíllinn frá Ford í þessum vinsæla flokki fjölskyldubíla í Evrópu. Þetta er fjórða kynslóðin, sú öruggasta og umhverfishæfasta til þessa. Hönnun hennar hefur verið felld að ávölum línum nýja útlitsins frá Ford. Þessum breyttu áherslum að utanverðu hefur síðan verið fylgt þétt eftir í hönnun bílsins að innanverðu með vandaðra efnisvali og nýrri sætagerð. Útkoman er enn stílhreinni Focus, endurhannaður frá grunni með hliðsjón af þeim sem vilja aðeins það besta. Meiri búnaður í Focus Sem fyrr einkennist búnaðarstig Focus af metnaði, eins og sjá má á því að ESP stöðugleikastýrikerfi með spólvörn, EBD hemlajöfnun og EBA hjálparhemlun er meðal staðalbúnaðar. Alltaf er þó rúm fyrir áhugaverðar nýjungar og hefur Ford gætt Focus ýmsum nýjum hæfileikum, eins og Easy Fuel búnaðinum, sem kemur í veg fyrir að röngu eldsneyti sé dælt á bílinn, hvort heldur bensín- eða dísilútgáfan á í hlut. Þú þarft því ekki að hafa stórar áhyggjur af því að fara eldsneytisvillt með tilheyrandi tjóni, þó að þú skiptir yfir í enn umhverfisvænni Ford Focus TDCI. Þá er Focus kominn með LED díóðuljós að aftan, nýtt EHPAS rafstýri með þremur þyngdarstillingum í aksturstölvunni, bremsuljós í afturrúðuna og Isofix barnastólafestingar í aftursæti. Betri aksturseiginleikar Nýr Focus er þýður og skemmtilegur í akstri. Þegar í fyrstu kynslóðinni af Focus setti Ford metnaðarfullar kröfur um aksturseiginleika með Control Blade fjölfjöðrunarkerfinu og breitt hjólhafið gerir hann einstaklega stöðugan. Að viðbættri nýju PowerShift skiptingunni frá Ford og EHPAS rafstýrinu sem er með þrjár þyngdarstillingar eða standard, comfort og sport, má segja að allt leggist á eitt um að veita Focus framúr- skarandi aksturseiginleika. Öruggari Focus Nýr Focus flaug í gegnum öryggisprófun EuroNCAP með 5 stjörnu toppeinkunn, enda ríkulega búinn öryggisbúnaði. Öryggispúðarnir eru fjórir og öryggispúðatjöld eru til beggja hliða. Skynvætt IPS öryggiskerfi (Intelligent Protection System) stýrir af stærðfræðilegri nákvæmni passífum öryggisbúnaði á borð við öryggispúða og – belti allt eftir tildrögum. Allt ferlið fer fram á sekúndubrotum og byggir í grófum dráttum á því, að þróaður hugbúnaður metur í samspili við þéttriðið net skynjara hvernig öryggisbúnaður bílsins geti sem best varið þá sem í honum eru gegn alvarlegum áverkum, ef slys ber að höndum. Þá er Focus búinn hálkuviðvörun, þriggja punkta öryggisbeltum í öllum sætum og rafstýrðum bílbeltastrekkjurum ásamt háls- og bakhnykksvörn í framsætum. Þægilegri Focus Í þægindum er Focus í sérflokki. Má þar nefna sem dæmi enn betri hljóðeinangrun sem heldur veg- og vélarhljóði í lágmarki, rafdrifna hæðarstillingu á ökumannssæti og hæðarstillingu á farþegasæti frammi í ásamt mjóbaks- og hitastillingu á báðum framsætum. Þá er Focus búinn vönduðum hljómflutningstækjum, fjarstýrðum samlæsingum, ræsivörn og þremur þyngdarstillingum og aðdrætti á stýri. Þá er Focus enn fremur með heilhitun á framrúðu og hliðarspeglum, búnaður sem kemur sér afar vel á frostköldum vetrarmorgnum. Valbúnaðurinn er einnig ríkulegur og má þar nefna loftþrýstingsnema í hjólbörðum (sem er einnig fyrirtaks öryggisbúnaður), 230 v innstungu fyrir fartölvuna, leikjatölvuna eða DVD spilarann, lyklalaust aðgengi og margt, margt fleira. Hagkvæmari Focus Ford hefur líkt og aðrir bílaframleiðendur lagt mikla áherslu á að þróa nýja og betri vélartækni með tilliti til bæði eldsneytisnotkunar og mengunar, án þess þó að það dragi úr aksturseiginleikum eða – ánægju. Nýr Focus er hér engin undantekning og eru CO2 gildi í útblæstri 1,6 TDCI vélarinnar með þeim lægstu sem hafa sést. Í m.a. breskum bíladómum hefur verið farið lofsamlegum orðum um Focus í þessu tilliti, sem bæði sparneytinn og umhverfishæfari kost. Frábærir dómar Dómar evrópskra bílablaðamanna hafa nánast allir sem einn verið afar jákvæðir. Nýja kynslóðin er að þeim eldri ólöstuðum m.a. sögð bæði fallegri og betur búin. Þá sé hún vandaðri að allri gerð og augljóslega klár í þann harða slag sem stendur um toppsætin í flokki fjölskyldubíla. Láttu töfrana tala. Spurðu um verð og gæði. Spurðu um fjármögnun. Ford. Keyrð’einn. *Brimborg og Ford áskilja sér rétt til að breyta verði og búnaði án fyrirvara og að auki er kaupverð háð gengi. Aukabúnaður á mynd eru álfelgur. Nánari upplýsingar veita söluráðgjafar Brimborgar. frumsýning í Brimborg Akureyri,Reykjavík ídagKomdu frá kl.12til16. Kaffi og kleinur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.