Fréttablaðið - 06.04.2008, Page 12
UMRÆÐAN
Samgöngumál
Undirritaður er einn af fjölmörgum efa-
semdamönnum um ágæti
þess að treysta á sam-
göngur við Vestmanna-
eyjar um Bakkafjöru.
Ekki er meiningin að gera
lítið úr því að mögulegt er
að byggja þar höfn sem
gæti verið nothæf yfir
hluta ársins, en með miklum frá-
töfum á öðrum tímum. Ekki ætla
ég heldur að gera lítið úr vinnu
þeirra „reiknistokksmanna“ er
unnið hafa að hugsanlegri fram-
kvæmd í Bakkafjöru, en tel þó að
gott væri að hlusta vel á rök efa-
semdamanna þegar horft er til
hagsmuna og framtíðar Vest-
mannaeyja. Það er ekki óeðlilegt
að mörgum finnist hugmyndin um
Bakkafjöruhöfn spennandi kostur
en einhvern veginn finnst mér að
þar fari fremst fólk sem ekki þarf
að ferðast nema þegar blíðast er
og best og ræður sinni ferðaáætl-
un sjálft.
Ekki hefur náðst meirihluti eða
vilji í bæjarstjórn Vestmannaeyja
til að gefa bæjarbúum tækifæri á
að tjá hug sinn í kosningum varð-
andi möguleika í samgöngumálum
hér, þrátt fyrir undirskriftasöfnun
þar að lútandi. Það er ekki of seint
að endurskoða þá ákvörð-
un.
Framtíð byggðar í Vest-
mannaeyjum byggist á
góðum samgöngum. Það
er krafa nútímans og
framtíðarinnar, ekki ein-
ungis milli lands og Eyja
heldur á öllu landinu.
Þeim fjármunum sem
veita á í Bakkafjöruhöfn
og smíði smáferju til sigl-
inga milli Bakkafjöru og
Vestmannaeyja væri mun
betur varið til hafnargerðar norð-
an Eiðis og smíði eða kaupa á
alvöruskipi til siglinga milli Vest-
mannaeyja og Þorlákshafnar. Einn-
ig mætti styrkja hafnaraðastöðu í
Þorlákshöfn, t.d. með sjóvarnar-
garði við Hafnarnes. Það gerði alla
aðkomu að Þorlákshöfn mun
öruggari og kæmi öllum til góða.
Skip (ca. 100 m langt) sem sigla á
milli Þorlákshafnar og Vestmanna-
eyja þarf að sigla á tæpum tveim-
ur klukkustundum (miðað við eðli-
legar aðstæður). Það segir okkur
að með góðu móti er hægt að sigla
þrjár til fjórar ferðir á dag. Við
skulum hafa það hugfast að um
90% farþega og flutnings að og frá
Eyjum eru til höfuðborgarsvæðis-
ins. Einnig mun Suðurstrandar-
vegur opna möguleika til aukins
útflutnings sjávarafurða frá
Eyjum með flugi um Keflavík.
Allir þeir sem starfa við sjó eða
starfsemi er tengist hafnarsvæð-
inu hér í Eyjum sjá að höfnin er
einfaldlega of lítil og þröng. Skip-
um hefur ekki fjölgað en stærð
þeirra er önnur í dag en áður var.
Því þarf að horfa fram á við og
tryggja að Vestmannaeyjahöfn sé
nútímaleg. Skipafélögin vantar
stærra svæði fyrir sína starfsemi,
s.s. gámavelli. Við skulum einnig
athuga að Vestmannaeyjahöfn er
síðasta viðkomuhöfn á Íslandi
vegna siglinga flutningaskipa til
Evrópuhafna bæði hjá Eimskipum
og Samskipum. Það er staða sem
við verðum að standa vörð um og
því er nauðsyn að horfa á þróun
hafnarmála í Vestmannaeyjum og
samgöngur við land í samhengi.
Nánast öll starfsemi sem hér er
krefst góðrar hafnaraðstöðu.
Möguleikar Vestmannaeyja felast
í nýrri og rúmgóðri höfn er gæti
tekið á móti verulega stórum skip-
um. Sá möguleiki er norðan við
Eiði.
Undirritaður er orðinn það full-
orðinn að hann man eftir því þegar
Eyjamenn voru að berjast fyrir
bættum samgöngum um daglegar
ferðir milli lands og Eyja. Það er
ekki sú staða sem ég vil sjá ungt
fólk þurfa að fara að berjast fyrir
á nýjan leik.
Höfundur er hafnarvörður í
Vestmannaeyjum.
UMRÆÐAN
Efnahagsmál
Íslenskt efnahagslíf stendur nú frammi
fyrir meiri vanda en blas-
að hefur við um áratuga
skeið. Ástæðurnar má að
hluta rekja til alþjóðlegr-
ar fjármálakreppu en
ekki síður ákvarðana-
tökufælni stjórnvalda
hér heima. Því miður hefur ríkis-
stjórnin ekki tekið á vandanum af
þeirri festu, skilningi og útsjónar-
semi sem nauðsynlegt er við slík-
ar aðstæður og ekkert sem bendir
til þess að svo verði. Þvert á móti.
Viðbrögð hennar, eða réttara sagt
aðgerðaleysi, hefur ekki verið í
neinu samræmi við horfur í efna-
hagsmálum og samspil við pen-
ingamálastjórn Seðlabankans
hefur ekkert verið. Alþjóðleg
matsfyrirtæki hafa nú þegar
lækkað lánshæfismat ríkissjóðs á
sömu rökum og við framsóknar-
menn höfum haldið fram til
margra mánaða. Aðgerðaleysi rík-
isstjórnarinnar er sá þáttur sem
þar vegur þyngst.
Framsóknarmenn hafa nú lagt
fram skynsamar og hófsamar til-
lögur að nýrri þjóðarsátt og
aðgerðum sem hægt er að grípa
strax til og lágmarka skaðann.
Fjármálakerfið
Tillögur okkar sem snúa að fjár-
málakerfinu sjálfu eru í þremur
liðum. Efla þarf gjaldeyrisforða
Seðlabankans til að draga
úr þeirri óvissu sem er
uppi um greiðslugetu
fjármálakerfis lands-
manna. Yfirtaka Íbúða-
lánasjóðs á fasteignalán-
um bankanna þarf að
vera til reiðu á lánum
sem eru undir tilteknum
fjárhæðarmörkum og
þannig verði með félags-
legum hætti komið að
vanda tekjulægri hópa í
samfélaginu. Í þriðja lagi þarf að
endurskoða og íhuga breytingar á
peningamálastefnu Seðlabankans
þannig að vægi fjármálastöðug-
leika í markmiðssetningu bankans
verði aukið, samhliða því sem
horft verði til stöðugleika í verð-
lagsmálum.
Samdráttur í efnahagslífinu
Tillögur þær sem snúa að við-
brögðum hins opinbera ganga út á
að ríkissjóður, í samvinnu við aðila
vinnumarkaðarins, beiti sér fyrir
sátt um aðgerðir til að draga úr
verstu áhrifum efnahagskrepp-
unnar, dýpt hennar og lengd. Ný
þjóðarsátt verði gerð um við-
spyrnu gegn verðbólgu. Endur-
skoða þarf forsendur fjárlaga taf-
arlaust, fella á brott sértæka
neysluskatta s.s. álögur á elds-
neyti og virðisaukaskatt á mat-
væli auk stimpilgjalda á íbúðar-
húsnæði. Efla þarf verðlags- og
verðmerkingareftirlit, Samkeppn-
iseftirlitið og Fjármálaeftirlitið.
Áfram þarf að vinna að undirbún-
ingi stórframkvæmda þannig að
hægt verði að ráðast í þær með
skömmum fyrirvara þegar
aðstæður leyfa í efnahagslífinu og
hvetja þarf til almenns sparnaðar
með skattalegum aðgerðum.
Ríkissjóður aflögufær
Þessar tillögur geta kostað ríkis-
sjóð allt að 18 milljarða króna
þegar allt er talið en miðað við það
hvernig við framsóknarmenn
skildum við ríkissjóð eftir tólf ára
uppbyggingarstarf ætti að vera
borð fyrir báru. Verðhjöðnunar-
áhrif þessara tillagna geta verið
umtalsverð eða 3-5%.
Það er mat okkar framsóknar-
manna að með samstilltu átaki
megi stýra efnahagsmálum þannig
að bæði almenningur og atvinnulíf
standi fyrirsjáanlega erfiðleika af
sér og leggjum því til skynsama,
hófsama og sanngjarna þjóðarsátt
þar sem horft er til raunhæfra og
markvissra aðgerða.
Höfundur er formaður Framsókn-
arflokksins.
UMRÆÐAN
Ólympíuleikar
Það er engin ástæða til þess að láta margra ára
vinnu íþróttamanna fara í
súginn með því að neyða
þá til að sniðganga Ólym-
píuleikana sem haldnir
verða í Peking síðar á
árinu. En það er heldur
engin ástæða til að senda íslenska
ráðamenn til að láta þá heiðra sér-
staklega kínversku alræðisstjórn-
ina í vandræðalegum kokteilboðum
á sama tíma og hún gengur milli
bols og höfuðs á eigin þegnum í
Tíbet og víðar.
Ólympíuleikarnir í Moskvu 1980
voru að mestu sniðgengn-
ir af Vesturlöndum. Þar
með urðu draumar fjöl-
margra íþróttamanna að
engu. En lífið hélt samt
áfram að öðru leyti.
Stjórnmálaástandi við
Sovétríkin var ekki slitið,
viðskiptasambönd við
Sovétríkin stóðu óbreytt,
og raunar gátu vestrænir
ferðamenn áfram ferðast
eftir sömu leiðum og áður. Þær
ástæður sem gefnar voru fyrir snið-
göngunni voru sem sagt ekki nægar
til að nokkrir aðrir en hlauparar,
sundgarpar eða kúluvarparar
þyrftu að færa fórnir.
Það sama ætti að eiga við nú. Það
er fáranlegt að ætlast þess af mönn-
um að þeir færi eina mestu fórn sem
íþróttamaður getur fært, á meðan
viðskiptin blómstra, stjórnmála-
samband er á milli ríkjanna, ferðir
til Kína heimilaðar, námsmanna-
skipti virk og sendiráð opin á báðum
stöðum. Sama ætti að gilda um þátt-
töku íþróttamanna í opnunarhátíð
leikanna, slíkt ætti að vera persónu-
leg ákvörðun hvers og eins. Það er
auðvelt að vera táknrænn á kostnað
drauma og metnaðs annarra.
Hins vegar er hvorki nauðsynlegt
né æskilegt að íslenskir ráðamenn
veiti Kínastjórn siðferðislegan
stuðning með því að setjast í heið-
ursstúku á opnunarhátíð leikanna
og heiðra kínversk stjórnvöld á
öðrum fundum sem jafnan fylgja
slíkum samkomum. Þeir ættu að
fara að fordæmi Donalds Tusk, Ang-
elu Merkel, Nicolas Sarkozy, Vac-
lavs Klaus og annarra evrópskra
leiðtoga: sitja heima í sumar og
styðja íslenska íþróttamenn til dáða.
Fyrir framan sjónvarpið.
Höfundur er háskólakennari og
situr í stjórn SUS.
12 6. apríl 2008 SUNNUDAGUR
Nýja þjóðarsátt strax
PAWEL BARTOSZEK
Stjórnmálamenn sniðgangi Peking
Hins vegar er hvorki nauðsyn-
legt né æskilegt að íslenskir
ráðamenn veiti Kínastjórn
siðferðislegan stuðning með
því að setjast í heiðursstúku á
opnunarhátíð leikanna ...
GUÐNI ÁGÚSTSSON
Áfram þarf að vinna að und-
irbúningi stórframkvæmda
þannig að hægt verði að ráðast
í þær með skömmum fyrir-
vara þegar aðstæður leyfa í
efnahagslífinu og hvetja þarf
til almenns sparnaðar með
skattalegum aðgerðum.
KRISTJÁN
GUNNARSSON
Höfnum Bakkafjöruhöfn
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000
Akureyri • sími 461 1099 • www.heimsferdir.is
Spennandi starf
inni í blaðinu.
Auglýsingasími
– Mest lesið