Fréttablaðið - 17.04.2008, Síða 32

Fréttablaðið - 17.04.2008, Síða 32
[ ] Þjóðlegt og undurfagurt háls- men úr víravirki eftir Helgu Ósk Einarsdóttur er nú í eigu Condoleezzu Rice, utanrík- isráðherra Bandaríkjanna. Menið var gjöf frá utanríkis- ráðherra Íslands, Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, á fundi þeirra tveggja á dögunum. Samkvæmt upplýsingum úr utan- ríkisráðuneytinu var hálsmen úr línunni Millu eftir Helgu Ósk Ein- arsdóttur valið vegna fegurðar þess, langrar hefðar víravirkis í íslenskum þjóðbúningum og því hversu táknrænt það er, með vísan til heimskringlunnar. „Þú munt örugglega sjá mig með þetta men opinberlega,“ sagði Rice himinlif- andi við íslenska starfssystur sína. „Pétri Breiðfjörð, gullsmíða- meistara mínum, fannst mikilvægt að ég lærði smíði víravirkis og frá því ég útskrifaðist sem gullsmiður 1995 hefur stór hluti gullsmíða- vinnu minnar farið í íslenska víra- virkið,“ segir Helga Ósk sem nú er ein fárra gullsmiða af yngri kyn- slóðinni sem hefur kunnáttu til smíði búningasilfurs. „Ég verð Pétri ævinlega þakklát að hafa hvatt mig til að læra gamla handverkið, en eftir að hafa smíð- að búningasilfur árum saman datt mér í hug að nota það í nýtísku- legra skart, án þess að það væri bundið við búninga. Víst hafði allt- af verið til ein og ein næla eða arm- band úr skrínum eldri kvenna, en óttalegar lummur, fannst mér, og úr takti við nútímann,“ segir Helga þar sem hún teygar í sig angan af nýslegnu grasi inn um glugga einn- ar af lestum Kaupmannahafnar á leið heim til bús og barna eftir annasaman dag í skólanum. „Mig langaði að bæta við mig skartgripahönnun og hélt utan til náms í Danmörku með fjölskyld- una í fyrrasumar. Ég kann óskap- lega vel við mig, enda alltaf stefnt að því að geta unnið hvar sem er í heiminum og þetta er fyrsti vísir að því. Ég er heppin að hafa afnot af aðstöðu í skólanum til eigin smíða, en oft tek ég vinnu með mér heim líka og sit við að þræða inn í víraverkið á kvöldin,“ segir Helga Ósk, sem fyrir þremur árum hóf að hanna eigin skartgripalínu úr víra- virki, með tilvísun í munstur úr íslenskri þjóðbúningahefð. „Ég smíða hálsmen, hringa, eyrnalokka og armbönd í mismun- andi útfærslum. Það geri ég hérna úti og sendi heim því ég sel skartið í þremur verslunum á Íslandi. Blaðamenn erlendis hafa reglulega samband og ég hef tekið þátt í sýn- ingum ytra og alltaf fengið mjög góðar viðtökur, en almennt þykir vinnan og sagan á bak við víravirk- ið afar merkileg,“ segir Helga Ósk, en nálgast má víravirki hennar í Kraumi í Aðalstræti og galleríum Hótels Hilton og Hótels Loftleiða. „Í sumar kem ég með nýja línu og svo er ég á fullu að smíða margt fallegt sem er óviðkomandi víra- virkinu. Skólinn hefur opnað mér nýjar víddir og nú smíða ég einnig stóra skartgripi sem ég hefði ekki trúað upp á mig áður,“ segir Helga Ósk, hláturmild og hamingjusöm í danska vorinu. thordis@frettabladid.is Íslensk heimskringla Helga Ósk Einarsdóttir gullsmiður í skólastofu TKS í Kaupmannahöfn, en þar leggur hún stund á skartgripahönnun. FRÉTTABLAÐIÐ/TEITUR Sólgleraugu eru fylgihlutur sem þarf að fara að huga að. Á sólríkum sumardögum eru það flott sólgleraugu sem fullkomna útlitið. Hálsmen líkt því sem Condoleezza Rice fékk að gjöf frá Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, úr skartgripalínunni Milla; sjá www.milla.is. Laugaveg 54, sími: 552 5201 stærðir: 36 - 48 NÝJAR VÖRUR Skólavörðustígur 2. Sími: 445-2020 www.birna.net annonce1 02.03.08 .indd 1 4/2/08 4:04:34 PM FLOTT FÖT www.vefta.is s: 557 2010 Vefta Tískuföt Hólagarði
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.