Fréttablaðið - 17.04.2008, Síða 80
52 17. apríl 2008 FIMMTUDAGUR
sport@frettabladid.is
HANDBOLTI Landsliðsmarkvörður-
inn Birkir Ívar Guðmundsson
mun yfirgefa herbúðir þýska
úrvalsdeildarliðsins Tus N-
Lübbecke næsta sumar þegar
samningur hans rennur út.
Birkir Ívar viðurkennir að
dvölin hjá félaginu hafi ekki verið
alveg eins og best verður á kosið.
„Ég kom náttúrlega til Tus N-
Lübbecke með þeim vonum og
væntingum að ég væri að ganga
til liðs við félag sem ætti eftir að
vera um miðja deild og þar fyrir
ofan. Við vorum hins vegar í
harðri fallbaráttu í fyrra og það
sama er uppi á teningnum í ár.
Handboltalega séð hefur dvölin
því valdið vonbrigðum en utan
vallar hefur allt verið mjög fínt,“
sagði Birkir Ívar, sem hefur
ekkert ákveðið með framhaldið.
„Það væri glórulaust að loka á
einhverja möguleika þegar maður
hefur ekki ákveðið sig og hvort
sem tilboð berast frá Þýskalandi,
Spáni, Danmörku eða Íslandi mun
ég fara vel yfir þau í rólegheitun-
um. Nú þegar hafa nokkrir aðilar
frá Íslandi heyrt í mér hljóðið og
tekið stöðuna og Viggó Sigurðs-
son, nýráðinn þjálfari Fram, er til
að mynda einn af þeim. Ég hef
hins vegar sagt öllum þessum
aðilum að ég sé ekkert búinn að
ákveða með framhaldið,“ sagði
Birkir Ívar. - óþ
Birkir Ívar á lausu í sumar:
Viggó er búinn
að hringja
EFTIRSÓTTUR Nokkur íslensk lið vilja
ólm fá Birki Ívar Guðmundsson í sínar
raðir. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Sveinbjörn Pétursson, tvítugur markvörður Akureyringa í N1-deild
karla í handbolta, hefur blómstrað eftir að hann fékk meiri ábyrgð í
vetur. Sveinbjörn hefur meðal annars varið fimm sinnum yfir
tuttugu skot í síðustu sjö leikjum.
„Ég er búinn að finna mig mjög vel eftir áramót. Ég hef
þurft að taka ábyrgð og mér finnst það hafa þroskað
mig mikið og hjálpað mér í mínum leik,“ segir Svein-
björn. „Hreiðar var með okkur í fyrra og þá var maður
meiri varaskeifa. Ég hef bara þurft að standa mig fyrir
liðið og mér líkar það best að hafa ábyrgð á mínum
herðum,“ segir Sveinbjörn, sem heldur þó áfram góðu
sambandi við Hreiðar. „Ég hef verið í miklu sambandi
við Hreiðar Guðmundsson eftir að hann fór út og það
hefur hjálpað mér mikið í vetur að eiga líka ein-
hvern sem ég get leitað til,“ segir Sveinbjörn.
Akureyrarliðið á enn möguleika á 5. sæt-
inu en það er sex stigum á eftir Stjörn-
unni. „Við viljum klóra okkur upp í
fimmta sætið. Það hefur vantað
meistaraheppnina hjá okkur í vetur og það er munurinn á okkur og
mörgum liðanna fyrir ofan okkur að þau hafa náð að klára þessa
jöfnu leiki ólíkt okkur,“ segir Sveinbjörn en hann er einn af mörgum
ungum mönnum í liðinu. „Við erum nokkrir ungir strákar sem höfum
fengið mikið að spila í vetur og það sést bara að þegar maður
fær að spila sem mest þá þróast maður og þroskast mest sem
leikmaður,“ segir Sveinbjörn, sem stefnir hátt. „Ég ætla að leggja
hart að mér í sumar og bæta það sem bæta þarf í mínum leik en
svo kemur það í ljós hvernig maður verður næsta vetur. Ég horfi
til þess að verða vonandi kominn í æfingahóp hjá landsliðinu
eftir ár,“ segir Sveinbjörn og þjálfarinn er ánægður með hann.
„Sveinbjörn er búinn að standa sig frábærlega í vetur. Hann er allt
önnur markmannstýpa en við eigum en hann hefur ekki fengið
nægilega mikla náð hjá landsliðseinvöldunum í Reykjavík.
Hann er snöggur og sterkur, spriklar minna og ver bolt-
ana. Hann þyrfti bara að komast í markmannsskóla
því hann er þrælöflugur náungi sem á framtíðina
fyrir sér ef hann leggur allt í þetta,“ sagði Rúnar
Sigtryggsson, þjálfari Akureyrar.
SVEINBJÖRN PÉTURSSON, MARKVÖRÐUR AKUREYRAR: HEFUR BLÓMSTRAÐ EFTIR ÁRAMÓT
Er í miklu sambandi við Hreiðar Guðmundsson
> Íslendingar gera það gott á EM
Íslenskir keppendur eru að gera frábæra hluti á Evrópumót-
inu í badminton sem fram fer í Herning í Danmörku þessa
dagana. Tinna Helgadóttir, sem er númer 256 á heimslist-
anum, stal senunni í gær þegar hún sigraði spænsku bad-
mintonkonuna Lucia Tavera, 81. á listanum, í fyrstu umferð
einliðaleiks. Ragna Ingólfsdóttir, 59. á listanum, gerði
einnig frábæra hluti og vann hina ítölsku Agnese
Allegrini, 41. á listanum, í 64-manna úrslitum.
Þær stöllur leika í 32-manna
úrslitum í dag. Þá tryggði
Tinna sér einnig í 16-liða úrslit
í tvenndarleik ásamt Helga
Jóhannessyni í gær og mæta
þau sterku bresku pari í dag.
TÖLFRÆÐIN
Keflavík-ÍR 93-73 (52-38)
Stig Keflavíkur: Gunnar Einarsson 23
(7 fráköst), Tommy Johnson 13, Jón
Norðdal Hafsteinsson 12 (7 fráköst),
Bobby Walker 10 (6 fráköst, 9 stoð-
sendingar), Magnús Þór Gunnarsson
10, Arnar F. Jónsson 9, Sigurður G.
Þorsteinsson 9, Þröstur L. Jóhannsson
5, Axel Þ. Margeirsson 2.
Stig ÍR: Nate Brown 23 (6 fráköst, 6
stoðsendingar), Tahirou Sani 15 (7
fráköst), Sveinbjörn Claessen 14 (6
fráköst), Eiríkur Önundarson 14,
Hreggviður Magnússon 5 (6 fráköst),
Ómar Sævarsson 1 (5 fráköst), Ólafur
Sigurðsson 1.
KÖRFUBOLTI Keflavík varð í gær-
kvöldi fyrsta karlaliðið til þess að
koma til baka eftir að hafa lent 0-2
undir í einvígi í úrslitakeppni.
Keflavík vann 20 stiga stórsigur á
ÍR, 93-73, og vann því þrjá síðustu
leiki með samtals 71 stigi.
„Karlinn getur líka spilað, það
vissu bara ekki allir af því,“ sagði
Keflvíkingurinn Gunnar Einars-
son sem átti sannkallaðan stórleik.
Líkt og í síðustu leikjum hélt hann
Hreggviði Magnússyni niðri en nú
var hann einnig sjóðheitur í sókn-
inni og endaði með 23 stig þar sem
að hann setti niður 9 af 12 skotum
sínum.
„Ég vissi ekki að þetta ætti að
vera maður á mann einvígi en ég
er búinn að stoppa Hregga, stopp-
aði hann líka í dag og svo sýndi ég
líka að ég get skorað helling,“
sagði Gunnar sem hefur verið
lengi í baráttunni með Keflavík en
hann man ekki eftir öðru eins.
„Ég er búinn að vera í þessu í
sextán ár og man ekki annað eins.
Ég held að við höfum verið að
setja með þessu met og það er
gaman að taka þátt í því,“ sagði
Gunnar sem skoraði 18 stigum
meira en Hreggviður í leiknum í
gær.
„Það smellur allt hjá okkur og
við fórum að berjast af mikilli
hörku. Það er kannski verið að
væla undan okkur en það er hluti
af körfubolta að spila eins fast og
dómarinn leyfir. Við erum líka
með þannig lið að það getur hver
sem er komið inn og átt stórleik og
það sýndi sig í þessari seríu,“
sagði Gunnar.
Keflavík tók frumkvæðið strax
í byrjun, leikmenn liðsins voru
heitir fyrir utan þriggja stiga lín-
una og lögðu síðan endanlega
grunninn að sigrinum með því að
halda ÍR-liðinu körfulausu fyrstu
8 mínúturnar í lokaleikhlutanum
sem Keflavík vann 20-3 og komst
25 stigum yfir. Keflavík skoraði
alls þrettán þriggja stiga körfur í
leiknum eitthvað sem fór illa með
ÍR-liðið sem gekk lengstum mjög
illa að skora úr uppsettum sókn-
um.
„Við spiluðum ágætlega framan
af en síðan vorum við að gera takt-
ísk varnarmistök á móti þessu
gríðarlega öfluga skotliði. Þeir
voru að setja það niður enda voru
þeir með gríðarlega hittni hérna í
kvöld,“ sagði ÍR-ingurinn Hregg-
viður Magnússon eftir leikinn.
„Ég er með hjartað í buxunum
og ég er bara niðurbrotinn maður
að vita til þess að við vorum komn-
ir með litlu tána inn fyrir dyrnar.
Við vorum með algjöra yfirhönd
og búinn að sigra þá sannfærandi
en síðan förum við inn í leik þrjú
og töpum honum mjög illa,“ sagði
Hreggviður Magnússon sem
komst lítið áleiðis eins og í síðustu
leikjum og endaði með aðeins
fimm stig.
Nate Brown skilaði sínu í liði ÍR
og þeir Sveinbjörn Claessen og
Eiríkur Önundarson áttu einnig
góðan leik en það var ekki nóg.
Hjá Keflavík vann Gunnar frábær
en eins átti Jón Norðdal Hafsteins-
son mjög fínan leik og þá var allt
liðið að spila sem ein heild í vörn
sem sókn og á slíkum degi eru þeir
illviðráðanlegir. Á endanum voru
það sjö leikmenn sem skoruðu 9
stig eða meira í leiknum í gær.
„Það var aldrei efi og þú sérð
það að maður stendur við stóru
orðin,“ sagði Magnús Þór Gunn-
arsson, fyrirliði Keflavíkur, sem
spáði einvíginu 3-2 skömmu eftir
tapið í öðrum leiknum. „Þetta er
ótrúlegt lið og ég held að fólk átti
sig ekki á því hvað við gerðum.
Við lendum 2-0 undir á móti liði
sem er með blússandi sjálfstraust
en komum til baka og vinnum
sannfærandi þrjá leiki í röð. Ég
held að við áttum okkur á þessu
heldur en þetta sýnir bara hvað
þetta lið er ótrúlega gott,“ sagði
Magnús sem var ekki áberandi í
einvíginu en hann segir það ein-
ungis lýsa styrk liðsins.
„Ég fékk ekki neitt frítt skot í
þessu einvígi og þurfti að vinna
fyrir öllu mínu. Þeir náðu að taka
mig ágætlega en hinir sýndu bara
hvað við erum með gott lið. Þröst-
ur kemur sterkur inn, Siggi stóri
líka og gamli karlinn sýndi það að
hann er að toppa á hárréttum
tíma.“ Magnús er þegar byrjaður
á sálfræðistríðinu á móti Snæfelli
en fyrsti leikur er á laugardaginn.
„Hlynur sagði allt er þegar
þrennt er og það var rétt hjá
honum því hann á eftir að tapa í
þriðja sinn,“ sagði Magnús í létt-
um tón og bætti við:
„Þetta verður svakaleg sería,
þetta verður mjög flott einvígi og
svakalega gaman. Ég held samt að
þeir séu skíthræddir við að mæta
okkur því eins og fólk sér þá á
ekkert lið roð í okkur,“ sagði
Magnús að lokum.
ooj@frettabladid.is
Karlinn getur líka spilað sókn
Keflavík fullkomnaði flottustu endurkomu í sögu úrslitakeppni karla með því að vinna þriðja stórsigurinn
í röð á ÍR-ingum og slá þá út úr úrslitakeppninni. Keflvíkingar mæta Snæfellingum í lokaúrslitarimmu.
VONLÍTIÐ Nate Brown átti að vanda góðan leik fyrir ÍR í gærkvöld en það dugði
skammt þar sem aðrir mikilvægir leikmenn liðsins fylgdu ekki fordæmi hans.
VÍKURFRÉTTIR
STEMNING Það var brjáluð stemning á pöllunum í Sláturhúsinu í Keflavík í gærkvöld
og áhorfendur tóku virkan þátt í leiknum og héldu uppi fjörinu frá upphafi til enda.
VÍKURFRÉTTIR
MAÐUR LEIKSINS Hinn gamalreyndi Gunnar Einarsson var með stórleik fyrir Keflavík í
gærkvöld og skoraði 23 stig og hirti sjö fráköst og átti stóran þátt í sigri liðsins.
VÍKURFRÉTTIR