Fréttablaðið - 17.04.2008, Blaðsíða 42
17. APRÍL 2008 FIMMTUDAGUR6 ● fréttablaðið ● vinnuvélar
Framleiðandinn McHale er með aðstöðu í þessu glæsilega húsnæði á Írlandi.
MYND/ÚR SAFNI JÖTUNS VÉLA
Fusion 2 er nýuppfærð gerð af sambyggðri rúllu- og pökkunarvél. Í vélinni er einföld-
uð stjórntölva á íslensku með myndrænu viðmóti.
Í byrjun marsmánaðar hélt stór
hópur á vegum Jötuns véla í
víking til Írlands að tileinka sér
þjónustu við vélar frá fram-
leiðandanum McHale, með
aðaláherslu á Fusion 2 nýupp-
færða gerð af sambyggðri
rúllu og pökkunarvél. Í vélinni
er ný og einfölduð stjórntölva
á íslensku með myndrænu
viðmóti.
Að sögn Birgis Guðmundssonar,
varahlutasérfræðings Jötuns véla,
voru Írarnir höfðingjar heim að
sækja. „Við fórum þarna út og
vorum komnir á sunnudagskvöldi.
Strax um kvöldið var borðað í boði
McHales og Guinness með,“ segir
Birgir. „Svo á mánudeginum byrjaði
námskeiðið, sem var aðallega bók-
legt til að byrja með, en svo fórum
við í salinn hjá þeim þar sem vél-
arnar voru í pörtum og þeir sýndu
okkur hvert stykki. Þá var haldið í
verksmiðjuna og Fusion 2 skoðuð.“
McHale Fusion 2 sambyggða
rúllu- og pökkunarvélin er hönnuð
frá grunni með það í huga að rúlla
og pakka í sömu vélinni. Búið er að
endurhanna allt burðarvirki en við
það léttist hún um nærri sex hundr-
uð kíló. Meginkostir vélarinnar eru
einfaldleiki, afköst við pökkun og
áreiðanleiki. Vélin státar af því að
geta rúllað yfir 100.000 rúllur án
þess að skipta þurfi um legur.
„Við erum með fjórtán þjónustu-
verkstæði í kringum landið sem
þjónusta bændur fyrir okkur í við-
haldi og þess háttar,“ segir Birgir
og fullvissar blaðamann um að nú
verði allir til reiðu þegar hey skapur
hefst í sumar.
„Bændur eru að vísu mjög
snöggir að læra á vélar, ef þeir
vilja,“ segir Birgir og hlær, „en ef
þeir laga vélarnar ekki sjálfir koma
verkstæðin til með að laga þær. Við
fórum í ferðina svo menn fái ekki
vél inn á verkstæði án þess að hafa
séð svona áður og viti ekki hvernig
eigi að laga hana. Við sláum ekki
slöku við í því.“
Starfsmenn Jötuns véla voru
sammála um að ferðin hefði heppn-
ast vel í alla staði og verða starfs-
menn þjónustuverkstæða fyrir-
tækis ins vel undirbúnir fyrir hey-
skapinn. - nrg
Fóru í víking til Írlands
Hópurinn sem fór til Írlands til að tileinka sér þjónustu við Fusion 2-vélar frá fram-
leiðandanum McHale.
Námskeiði hófst með bóklegri kennslu.
Síðan var haldið út í sal.
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
N1 VERSLANIR WWW.N1.IS
N1 býður úrval af legum og tengdum vörum
fyrir iðnað, bifreiðar og sjávarútveg. Hafðu
samband við fagmenn okkar í síma 440 1233.
LEGUR
Legur · Leguhús · Reimar · Tannhjól · Reimskífur
Pakkdósir · Sérverkfæri · Legufeiti
Venjulegir fólksbílar hafa oft
massa í kringum eitt tonn þegar
þeir eru tómir. Þeir geta tekið
farþega og farangur sem nemur
samtals um 400 kílóum. Bílarn-
ir eru síðan þyngri eftir því sem
þeir eru stærri og geta tekið
meiri farm.
Venjulegir vörubílar eru nokk-
ur tonn á þyngd tómir og geta
tekið álíka mikinn farm eða
meira, en þyngstu vagnlestir sem
leyfðar eru á íslenskum vegum
eru tæp fimmtíu tonn með farmi.
Á það við stóran vörubíl með
álíka stórum tengivagni.
Oft er í þessu samhengi talað
um ásþunga eða öxulþunga í stað
heildarþunga ökutækis eða vagn-
lestar. Ástæðan er sú að það er
þunginn á hvern ás sem ræður
mestu um áhrif bílsins eða lestar-
innar á veginn. Vegaslit af völd-
um þungrar vagnlestar getur auð-
veldlega verið mörg þúsund sinn-
um meira en af einum fólksbíl.
Vegna þess hversu vörubílar og
vagnlestir geta verið þungar getur
líka orðið mikið tjón ef eitthvað
ber út af. Þess konar ökutæki geta
til dæmis skemmt hús og önnur
mannvirki ef þau fara út af vegi
eða götu og slitið niður brýr, svo
ekki sé talað um manntjón sem
orðið getur af þeirra völdum.
Ef þau eru fullfermd þurfa
þau að fara mun hægar í beygj-
ur en önnur farartæki vegna þess
að svokölluð massamiðja (áður
kölluð þyngdarpunktur) liggur
hátt og tækið í heild er valt; það er
nánar tiltekið óstöðugt gagnvart
því að velta á hliðina.
Eins eru slík ökutæki viðkvæm
fyrir hliðarvindi, sérstaklega
bílar eða tengivagn með farm-
geymslu sem er tóm. Þá má geta
þess að sérstök hætta getur skap-
ast ef farmur færist til á palli eða
í geymslu á svona tæki. Það sem
var stöðugt getur þá orðið valt.
Sjá: www.visindavefur.is
Þyngd trukka
Vörubílum verður að aka sérstaklega varlega, en vegna stærðar sinnar geta þeir
skemmt hús og mannvirki ef þeir fara út af vegi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM