Fréttablaðið - 17.04.2008, Page 64
36 17. apríl 2008 FIMMTUDAGUR
timamot@frettabladid.is
VICTORIA BECKHAM
SÖNGKONA ER 34 ÁRA.
„Ég held mér í formi með
því að hlaupa á eftir strák-
unum mínum þremur.“
Victoria Beckham var áður
Adams og var í söngflokknum
Spice Girls. Hún er gift knatt-
spyrnumanninum David Beck-
ham.
Það þekkja eflaust marg-
ir frægðarför Apollo 13
geimflaugarinnar. Ap-
ollo 13 var þriðja mann-
aða geimfarið sem var
sent út í geim af banda-
rísku geimferðarstofnun-
inni. 11. apríl árið 1970
var Apollo 13 skotið á
loft með þriggja manna
áhöfn, þá James A. Lov-
ell, John L. Swigert og
Fred W. Haise. Markmið
ferðarinnar var að lenda
Apollo 13 á tunglinu og
þannig gátu Bandaríkin
státað sig af því að eiga tvö geimför sem höfðu
lent á tunglinu. Tveimur dögum eftir flugtak eða
13. apríl varð sprenging í geimfarinu. Spreng-
ing varð í súrefnistanki
geimfarsins og varð til
þess að bilun komst í
rafmagnskerfið. Geim-
fararnir voru í mikilli
hættu og þurftu að búa
við skelfilegt ástand þá
tvo daga sem skipið var
nánast án rafmangs.
Kuldinn inni í geimfar-
inu var orðin mikill og
geimfararnir þurftu að
þola hann til að spara
orku geimfarsins til
þess að geta lent. Sex
dögum frá geimskot-
inu lenti áhöfn Apollo 13 heil á húfi og má segja
að allur heimurinn hafi fylgst með óförum áhafn-
arinnar.
ÞETTA GERÐIST: 17. APRÍL 1970
Áhöfn Apollo 13 lendir heil á húfi
Indriði Indriðason, rithöfundur og ætt-
fræðingur, fæddist að Ytra-Fjalli í Að-
aldal 17. apríl 1908. Hann fagnar því
hundrað ára afmæli sínu í dag. Ind-
riði ólst upp á bænum Ytra-Fjalli til 16
ára aldurs þegar hann hélt með bróð-
ur sínum vestur til Ameríku. „Það voru
uppgangstímar og mikið að gera í Am-
eríku á þessum árum. Þegar ég kom
aftur heim til Íslands var Jónas Jóns-
son, kenndur við Hriflu að stjórna í
landinu. Hann ákvað að taka jörðina
Grenjaðarstað og skipta í fimm jarðir.
Þá höfðu nýbýlalög nýlega tekið gildi
og verið var að byggja upp býli um allt
land. Jónas bauð mér einn partinn af
Grenjaðarstað, ef mér þætti það ekki of
lítið, enda stórhuga maður og nýkominn
frá Ameríku. Þrándur bróðir minn fékk
annan hluta og við byggðum upp jörð
sem fékk nafnið Aðalból, enda sam-
anstóð land okkar af tveimur fimmtu
upphaflegu jarðarinnar.“ Indriði varði
næstu árum í að byggja upp jörðina en
segir vinnuna hafa verið erfiða og að
hún hafi tekið sinn toll af heilsu hans.
Hann flutti því til Reykjavíkur eftir
nokkurra ára starf og bjó í höfuðborg-
inni næstu sextíu árin.
Fljótlega eftir að Indriði kom suður
lagði hann leið sína inn í bókabúð Sigfús-
ar Eymundssonar þar sem hann keypti
stóran pakka af pappír. „Ég hugsaði að
það væri best að fara að skrifa, úr því að
ég hafði ekkert að gera. Ég settist niður
og skrifaði í eina viku. Þetta voru sjö
smásögur sem ég labbaði með í prent-
smiðju Guðbjarnar Guðmundssonar. Ég
fékk honum böggulinn og sagði honum
að ég vildi að hann gæfi þetta út. Tveim-
ur dögum seinna fór ég aftur í prent-
smiðjuna og hitti Guðbjörn. Hann sagði
að það væri réttast að gefa skrif mín út.
Þetta var fyrsta skrift, beint úr pennan-
um hjá mér og nokkrum dögum síðar
var búið að prenta bókina. Svona myndi
seint gerast nú á dögum,“ segir Indriði.
Hann segir fjölskyldu sína hafa orðið
hissa þegar hann sendi þeim eintak af
fyrstu bók sinni, enda var hann þá bara
nýfluttur suður. Eftir þetta hefur Ind-
riði mikið fengist við skriftir og liggja
eftir hann mörg rit, bæði bókmenntir
og fræðirit.
Indriði hefur lengi haft áhuga á ætt-
fræði og hefur meðal annars tekið
saman bækur um ættir Þingeyinga,
fimmtán bindi alls. „Við erum fámenn
þjóð og lengi vel einangruð og það tel ég
ástæðu hins mikla ættfræðiáhuga hér á
landi,“ segir Indriði sem er einn eftir-
lifandi af níu systkina hópi sem komst
á legg. Indriði sem er mikill grúsk-
ari og hefur safnað að sér bókum frá
unga aldri. „Það hafa alltaf safnast að
mér bækur. Fyrir þremur árum seldi
ég allar bækurnar mínar. Ég stóð í her-
berginu mín með auða skápa og hugs-
aði að nú væri ekkert eftir nema að
selja skápana, en einhvern veginn hafa
þeir fyllst aftur.“ Þrátt fyrir háan aldur
fylgist Indriði ennþá vel með fréttum
og dægurmálum. Indriði tekur á móti
vinum og vandamönnum í Dvalarheim-
ilinu Hvammi á Húsavík í dag.
hnefill@frettabladid.is
INDRIÐIÐ INDRIÐASON, RITHÖFUNDUR Á HÚSAVÍK: HUNDRAÐ ÁRA Í DAG
Skrifaði fyrstu bókina á viku
MIKILL GRÚSKARI Indriði hefur gríðarlegan ættfræðiáhuga og hefur meðal annars tekið saman
bækur um ættir Þingeyinga. FRÉTTABLAÐIÐ/ÖRLYGUR HNEFILL
MERKISATBURÐIR
1492 Spánn styrkir Kristófer
Kólumbus vegna Asíu-
farar.
1913 Járnbraut milli Öskjuhlíð-
ar og Reykjavíkurhafnar
er tekin í notkun.
1937 Warner Bros kynna til
leiks skapstóru öndina
Daffy Duck.
1961 AFRTS Keflavik fær leyfi
menntamálaráðherra til
að auka útsendingar-
styrk sjónvarpsútsend-
inga stöðvarinnar.
1973 Flutningafyrirtækið Fed-
eral Express flytur sinn
fyrsta pakka.
1994 Listasafn Kópavogs,
Gerðarsafn, er opnað.
Safnið heitir eftir Gerði
Helgadóttur myndhöggv-
ara og hýsir nokkur verka
hennar.
Þökkum af heilum hug auðsýnda
samúð og vináttu við andlát og útför
ástkærs eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
Einars Guðlaugssonar
Húnabraut 30, Blönduósi.
Minningin lifir.
Ingibjörg Þ. Jónsdóttir
Skarphéðinn H. Einarsson Sigrún Kristófersdóttir
Jón Karl Einarsson Ágústa Helgadóttir
Kári Húnfjörð Einarsson Ingunn Þorláksdóttir
Magdalena Rakel Einarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
60 ára afmæli
í dag er sextug
Jóhanna G.
Stefánsdóttir
frá Skipanesi í Leirársveit.
Hún verður heima í dag og tekur á móti
gestum sem þora að koma.
Opið hús verður frá kl. 18.00
og langt fram á kvöld.
Allir vinir og vandamenn velkomnir,
vinsamlega takið góða skapið með ykkur.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Sigurður S.R. Markússon
vöruflutningabílstjóri, Ægisvöllum 10,
Keflavík,
verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju föstudaginn
18. apríl kl. 14.00.
Elín Óla Einarsdóttir
Kristín R. Sigurðardóttir
Þórunn Sigurðardóttir Grétar Ólason
Katrín Sigurðardóttir Klemenz Sæmundsson
barnabörn og barnabarnabarn.
Okkar ástkæri
Eiríkur Ásgeir Þorleifsson
Borgarheiði 17v, Hveragerði,
andaðist á Landspítalanum 14. apríl. Útför fer fram
19. apríl kl. 14.00 frá Kotstrandarkirkju.
Jónína Margrét Egilsdóttir
Erling Eiríksson Kristín Gísladóttir
Ásgeir Stefán Ásgeirsson Harpa Lind Björnsdóttir
Svala Ásgeirsdóttir Smári Björn Stefánsson
og barnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýju vegna andláts og
útfarar ástkærrar eiginkonu minnar,
móður okkar, tengdamóður, ömmu og
tengdadóttur,
Soffíu Thorarensen
frá Akureyri, Álfkonuhvarfi 61, Kópavogi.
Kjartan Tómasson
Elísabet Kjartansdóttir Jón Örn Pálsson
Ármann Kjartansson Klara Eirika Finnbogadóttir
Lára Guðleif Kjartansdóttir Gunnar Magnússon
Elísabet Sigurðardóttir
og barnabörn.
AFMÆLISBÖRN
Eyjólfur
Kristjáns-
son tón-
listarmað-
ur er 47
ára.
Jón Sig-
urðsson
fyrrum
ráðherra er
67 ára.
Sean
Bean
leikari er
49 ára.
Jennifer
Garner
leikkona
er 36 ára.