Fréttablaðið - 17.04.2008, Page 69

Fréttablaðið - 17.04.2008, Page 69
FIMMTUDAGUR 17. apríl 2008 Lagersala Lagersala Eirvíkur að Suðurlandsbraut 20 Verðhrun VASKAR HELLUBORÐ ÍSSKÁPAR HÁFAR VIFTUR SMÁVÖRUR OFNAR Í menningarlandslagi Vest- mannaeyja trónir myndlist- ar- og tónlistarmaðurinn Guðni Agnar Hermansen hátt. Í tilefni þess að hann hefði orðið áttræður 28. mars síðastliðinn verð- ur haldin í Eyjum sérleg afmælis- og minningardag- skrá honum til heiðurs á morgun. Opnuð verður sýn- ing á myndum eftir Guðna í húsinu Akóges og um kvöldið verður boðið upp á tónleika þar sem lands- þekktir djasstónlistarmenn koma fram. Guðni Agnar Hermansen fæddist í Vestmannaeyjum árið 1928 og bjó þar uns hann lést árið 1989, langt fyrir aldur fram. Hann hélt sína fyrstu málverkasýningu árið 1964 í Eyjum og sýndi seinna víðar um landið og erlendis. Að dag- skránni honum til heiðurs standa þeir Skapti Örn Ólafsson og Ólaf- ur Stolzenwald, en þeir eiga báðir rætur sínar að rekja til Vest- mannaeyja og hafa mikið dálæti á verkum Guðna. „List Guðna er kannski ekki mjög þekkt á lands- vísu, en hann er stórt nafn í Eyjum,“ segir Skapti. „Þegar við Ólafur gerðum okkur grein fyrir að hann hefði orðið áttræður á árinu langaði okkur til að heiðra hann með einhverju móti. Úr varð þessi yfirlitssýning á verkum hans og tónleikar. Að auki opnum við vefsíðu og vegleg sýningarskrá kemur út í tengslum við sýning- una. Markmiðið með þessu verk- efni okkar, að minnast Guðna á þennan hátt, er þannig líka til að komandi kynslóðir fái séð hvers lags snillingur Guðni var í mál- verkinu.“ Náttúra Vestmannaeyja var Guðna afskaplega hugleikin og kemur það skýrt fram í myndum hans. Hafið, birtan og fjöllin voru honum uppspretta innblásturs og sótti hann sérstaklega í að mála Helgafell. Í einu af sínum þekkt- ari málverkum, „Hefnd Helga- fells“ frá árinu 1972, málaði Guðni hraunflóð sem stefnir á bæinn, ári fyrir Heimaeyjargosið örlagaríka. „Guðni hélt mikið upp á Helgafell og fór malarnám þar fyrir brjóstið á honum. Hann málaði því þessa mynd þar sem hann ímyndaði sér að fjallið næði fram hefndum fyrir raskið. Ári síðar átti eldgosið sér stað og því mætti segja að Guðni hafi spáð fyrir um það, þó að það hafi ekki verið ætlunin,“ útskýrir Skapti. Í kjölfar eldgossins flutti Guðni, eins og aðrir Eyjamenn, til Reykja- víkur og síðar til Hellu en undi sér þar illa og hélt aftur til Eyja um leið og færi gafst. Guðni hafði sterkar taugar til sinnar heima- byggðar og var sem samgróinn náttúru Vestmannaeyja. Sem fyrr segir var Guðni ekki aðeins myndlistarmaður heldur lék hann einnig á saxófón og var einn af frumherjum djassins í Vestmannaeyjum. Guðni lék með mörgum danslagahljómsveitum í Eyjum á sjötta og sjöunda ára- tugnum og stofnaði jafnframt sína eigin hljómsveit, GH sextett, sem síðar breyttist í Rondó sextett vegna mannabreytinga. Skapti segir tónlistarlífið hafa verið blómlegt í Vestmannaeyjum á þessum tíma. „Það var vertíðar- bragur í Eyjum á þessum árum og böll á hverju kvöldi. Það var því nóg um að vera hjá Guðna og hann kom fram með mörgum frábær- um tónlistarmönnum á þessum árum, bæði í Eyjum og á fasta- landinu.“ Tónlistarmennirnir sem heiðra minningu Guðna með tón- leikum í Akóges annað kvöld eru ekki síðri, en fram kemur Kvart- ettinn Q, skipaður Sunnu Gunn- laugsdóttur, Eyjólfi Þorleifssyni, Scott Mclemore og Ólafi Stolzen- wald, ásamt söngkonunni Ragn- heiði Gröndal. Leikin verður tón- list eftir meistara tenórsaxófónsins, Sonny Rollins, en tónlist hans er í anda djassins sem Guðni hafði dálæti á. vigdis@frettabladid.is Í minningu meistarans Guðna DJASSGEGGJARAR Guðni Hermansen og Sigurður Flosason á góðri stund. MYND/TORFI HARALDSSON NÁTTÚRAN OG HRÚTURINN Eitt af málverkum Guðna.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.