Fréttablaðið - 17.04.2008, Qupperneq 88
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Dr. Gunna
Þar sem ég sveimaði um netið, eins og of oft vill gerast, í
algjöru innihalds- og tilgangsleysi,
rakst ég á myndir úr afmæli Play-
boy-kóngsins Hughs Hefners. Ég
gerði óvænta uppgötvun: Hugh er
jafnaldri pabba míns, meira að
segja hálfu ári eldri en hann. Ótal
hugsanir skautuðu um heilann á
mér.
ÞARNA sat gamli maðurinn að
halda upp á 82 ára afmælið sitt.
Með góðlegt bros gamalmennisins
og aðra lúkuna á lærum ungrar
vinkonu sinnar. Hinum megin við
Hugh sátu tvær ungar ljóskur í
viðbót og hugsanlega voru allar
þrjár búnar að þjónusta afmælis-
barnið fyrr um daginn. Og voru
svo kannski á leiðinni í höllina til
að veita frekari þjónustu. Það fór
hrollur um mig.
EN bíðum við. Hvað átti þessi
hrollur að fyrirstilla? Var hann
ekki bara til marks um ófyrirgef-
anlega fordóma í garð eldri borg-
ara af minni hálfu? Hvað með það
þótt gamli maðurinn sofi hjá ljós-
hærðum bimbóum og geymi þær
eins og kvikfénað í kofanum sínum?
Ég meina, hann á peningana, er
svaka fínn karl og ef hann finnur
stelpur sem eru nógu klikkaðar og
með nógu brotna sjálfsmynd til að
dúllast utan í sér, er það þá mitt að
dæma? Er ekki ástin landamæra-
laus?
ÞÁ varð mér hugsað til pabba
míns. Liði manni ekki hálf undar-
lega að heimsækja hann í elli-
smellablokkina ef það væru alltaf
þrjár bráðhuggulegar ljóskur á
nærbuxunum utan í honum? Jæja
pabbi minn, hvernig ertu í pípu-
lagningunni í dag? Hann er fínn,
myndi þá Gógó, átján ára, grípa
fram í og klappa pabba á lærið og
brosa tvíræðu brosi. Jæja, myndi
maður þá dæsa og reyna að horfa
ekki á pabba og Gógó gerast full
náin.
ÞAÐAN af síður vil ég að dóttir
mín verði gamalmennakanína
þegar hún verður stór. Hvernig
hefur kallinn það? gæti maður
spurt í símanum með uppgerðar
áhuga en vonað innst inni að hann
færi að hrökkva upp af svo þessu
niðurlægingartímabili myndi nú
ljúka.
HUGH er demókrati og hefur
gefið fullt af peningum til að berj-
ast gegn ritskoðun – fínn karl, eins
og ég segi. Hann á að hafa sofið hjá
meira en tvöþúsund konum og seg-
ist enn þrælvirkur. Líf hans er
draumafyrirmynd fjölmargra karl-
manna. En það er nú bara af því við
erum svo ógeðslega mikil fífl.
Pabbi minn,
Hugh Hefner
Í dag er fimmtudagurinn 17.
apríl, 107. dagur ársins.
5.48 13.27 21.07
5.25 13.12 21.01