Fréttablaðið - 17.05.2008, Qupperneq 12
12 17. maí 2008 LAUGARDAGUR
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
OMX ÍSLAND 15 Fjöldi viðskipta: 615
4.863 +1.35% Velta: 9.270 milljónir
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Atorka 7,11 +0,42% ... Bakkavör
35,90 +9,45% ... Eimskipafélagið 20,60 +0,49% ... Exista 10,34
+2,38% ... FL Group 6,67 +3,57% ... Glitnir 17,55 +1,45% ...
Icelandair Group 20,85 -3,25% ... Kaupþing 788,00 +0,64% ...
Landsbankinn 26,00 +0,39% ... Marel 94,00 +0,32% ... SPRON 5,61
+4,77% ... Straumur-Burðarás 11,59 +2,03% ... Teymi 3,49 +0,29% ...
Össur 96,20 +0,42%
MESTA HÆKKUN
BAKKAVÖR +9,45%
SPRON +4,77%
FL GROUP +3,57%
MESTA LÆKKUN
SKIPTI -5,14%
ICELANDAIR -3,25%
Viðskiptaráð fagnar samkomu-
lagi Seðlabanka Íslands við Seðla-
banka Svíþjóðar, Noregs og Dan-
merkur í tilkynningu sem
samtökin sendu frá sér í gær.
Sama gerði forsætisráðuneytið.
„Tvíhliða gjaldeyrisskipta-
samningar sem þessir eru mikil-
vægt fyrsta skref í eflingu trú-
verðugleika Seðlabanka Íslands
og íslensks hagkerfis,“ segir í til-
kynningu Viðskiptaráðs.
Jafnframt er áréttað að vegna
þess hve vöxtur íslenska banka-
kerfisins hafi verið mikill undan-
farin ár sé afar mikilvægt að inn-
viðir og stofnanaumgjörð
innanlands taki mið af því. „Í kjöl-
far aukinna lánalína telur Við-
skiptaráð skynsamlegt að ríkis-
sjóður leitist eftir erlendri
lántöku í samstarfi við Seðla-
banka Íslands til að auka gjald-
eyrisforða verulega.“ Geir H.
Haarde forsætisráðherra kveðst
jafnframt fagna samkomulaginu.
Í tilkynningu kemur fram að rík-
isstjórnin og Seðlabankinn hafi
að undanförnu undirbúið marg-
víslegar aðgerðir til að styrkja
aðgang Seðlabankans að erlendu
lausafé og efla traust á fjármála-
kerfi og efnahagslífi hér.
„Til þess að bæta virkni pen-
ingamálastefnunnar mun ríkis-
stjórnin meðal annars þegar und-
irbúa og birta trúverðuga áætlun
um umbætur og breytingar á
skipulagi Íbúðalánasjóðs,“ segir
hann.
Viðskiptaráð fagnar sérstak-
lega fyrirhuguðum breytingum á
Íbúðalánasjóði. - óká
Samkomulagi Seðlabanka fagnað
BÁÐIR ÁNÆGÐIR Geir H. Haarde
forsætisráðherra og Erlendur Hjaltason
formaður Viðskiptaráðs Íslands á Við-
skiptaþingi 2008. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Jákvætt innlegg
Óhætt er að segja að aðilar á markaði, og
raunar í íslensku viðskiptalífi almennt,
hafi tekið vel tíðindum gærmorguns-
ins af gjaldeyrisskiptasamningum
Seðlabankans við norræna
systurbanka, að þeim finnska
frátöldum. Krónan styrktist
umtalsvert; gengi félaga í
Kauphöll hækkaði, skulda-
tryggingarálag féll og almennt
var fólki létt, enda hefur lengi
verið beðið eftir tíðindum sem
þessum. Ekki þykir spilla fyrir,
að forsætisráðherra og formaður
bankastjórnar Seðlabankans sögðu
báðir að frekari aðgerða
væri að vænta
innan tíðar.
Dagurinn hans Davíðs
Fremstur í flokki í aðgerðum gærdagsins
fór Davíð Oddsson. Hann þótti sýna
gamalkunna takta á blaðamannafundi
Seðlabankans sem og í hádegis-
viðtali Stöðvar 2. Hann sagðist
meðal annars skilja vel þá sem
hefðu verið orðnir langeygir eftir
aðgerðum sem þessum, en
tiltók að allt tæki þetta tíma og
mikilvægt væri að leita ávallt
bestu kjara og hagfelldustu skil-
yrða. Í máli hans kom einnig fram,
að ekki þyrfti að bíða jafnlengi
eftir næstu skrefum; þau væru á
næsta leiti.
Peningaskápurinn ...
Seðlabanki Íslands getur
fengið allt að 1,5 milljarða
evra að láni hjá seðlabönk-
um Svíþjóðar, Noregs og
Danmerkur samkvæmt nýju
samkomulagi sem kynnt var
í gær. Í kjölfarið styrktist
gengi krónunnar um þrjú
prósent og lánakjör bæði
ríkis og viðskiptabanka
bötnuðu á alþjóðlegum fjár-
málamörkuðum.
„Ef útkastarinn er nógu sterklegur
þá fer enginn í hann,“ segir Davíð
Oddsson, formaður bankastjórnar
Seðlabanka Íslands. Þar sagðist
hann vísa til ævafornrar reynslu
sinnar af dansleikjahaldi og notaði
dæmið til að sýna fram á mikilvægi
nýs samnings sem Seðlabankinn
kynnti í gær.
Í gærmorgun var boðað til fund-
ar í Seðlabankanum þar sem kynnt-
ur var tvíhliða gjaldeyrisskipta-
samningur bankans við seðlabanka
Svíþjóðar, Noregs og Danmerkur.
Með samningunum tryggir Seðla-
banki Íslands sér aðgang að 1,5
milljörðum evra gegn greiðslu í
íslenskum krónum. Seðlabankinn
getur nýtt sér samningana þegar
og ef nauðsyn krefur. Davíð segir
samningana ígildi gjaldeyrisforða-
aukningar, en þeim fylgi enginn
kostnaður nema bankinn kjósi að
nýta sér þann möguleika að taka
lán. Þá yrðu kjörin aukinheldur í
samræmi við lánakjör seðlabanka í
milli og kostnaður því mun minni
en ef taka þyrfti lán á almennum
markaði.
Eftir samningana hefur Seðla-
bankinn aðgang að gjaldeyri sem
nemur 4,3 milljörðum evra, að sögn
greiningardeildar Kaupþings. Í til-
kynningu Seðlabankans kemur
fram að auka eigi enn þann aðgang
á næstunni. Davíð segir hins vegar
ekki hæfa að upplýsa nánar um
þær aðgerðir eða tímasetningar
þeirra. Hann bendir hins vegar á að
með samningnum sem kynntur var
í gær hafi lánakjör ríkisins batnað
mjög.
Viðbrögð markaðarins voru afar
jákvæð. Þegar eftir tilkynningu
Seðlabankans um samninginn í
gærmorgun tók gengi krónunnar
að styrkjast og lánakjör bæði ríkis
og banka að batna á alþjóðlegum
tilboðsmörkuðum.
„Þessi tilkynning frá Seðlabank-
anum er mjög jákvætt skref sem
og að þeir gefa í skyn að meira sé
væntanlegt,“ segir Ingvar H. Ragn-
arsson, framkvæmdastjóri fjár-
stýringar Glitnis, og bendir á að
skuldatryggingarálag íslensku
bankanna hafi lækkað um 30 til 40
punkta í gær og um 50 punkta hvað
íslenska ríkið varðar. „Svo sendi
líka lánshæfismatsfyrirtækið Fitch
frá sér tilkynningu um að þeir líti
þetta jákvæðum augum.“
„Þetta eru mjög jákvæðar fréttir
og mjög gott skref,“ segir Ingólfur
Helgason, forstjóri Kaupþings á
Íslandi. „Þetta er mjög hagkvæm
leið fyrir Seðlabankann og styrkir
mjög stöðuna án þess að auka skuld-
ir. Um leið met ég þetta samkomu-
lag sem ótvíræða stuðningsyfirlýs-
ingu við Seðlabankann og íslensku
bankana,“ bætir hann við. Hann
kveðst þó engu vilja spá um tíma-
setningu næstu aðgerða. Ingólfur
telur að menn verði þolinmóðari
nú þegar fyrstu skrefin liggi fyrir.
Seðlabankinn og stjórnvöld þurfi
tíma og mikilvægt sé að virða það.
olikr@markadurinn.is
Á KYNNINGU SEÐLABANKANS Í GÆR Ingimundur Friðriksson seðlabankastjóri og
Davíð Oddsson, formaður bankastjórnar Seðlabankans, kynntu í gær samkomulag
þar sem norrænir seðlabankar heita því að lána allt að 500 milljónir evra hver, fari
Seðlabankinn hér fram á það. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Norrænir seðlabankar
styðja við bakið á okkur
Heimsmarkaðsverð á hráolíu fór
í tæpa 128 dali á tunnu á banda-
rískum fjármálamarkaði í gær
eftir að bandaríski fjárfestingar-
bankinn Goldman Sachs sagði í
nýrri spá að mikil eftirspurn eftir
olíu í Kína gæti keyrt verðið frek-
ar upp. Olíudropinn hefur hækk-
að um rúm 25 prósent á árinu og
hefur aldrei verið hærri en nú.
Í spá Goldman Sachs segir að
Kínverjar muni þurfa á mikilli
olíu að halda seinni hluta árs til
að vega upp á móti tjóni sem varð
á rafstöðvum í jarðskjálftanum í
Sichuan-héraði í vikubyrjun.
Megi því búast við að olíutunnan
fari upp í allt að 141 dal á tunnu.
- jab
Olíudropinn
aldrei dýrari
LENGRI HENGINGARÓL SEGIR AFTENPOSTEN
„Gjaldeyrisskiptasamningurinn miðar að því að styðja Seðlabanka Íslands í
viðleitni til að viðhalda stöðugleika í hagkerfi og fjármálalífi landsins,“ sagði
Stefan Ingves, seðlabankastjóri Svía, í tilkynningu í gær. „Á tímum óvissu og
óróa ber seðlabönkum skylda til að starfa saman.“
Töluvert var fjallað um samning seðlabankanna í erlendum miðlum í
gær. Víða var bent á að samningurinn væri til marks um traust á íslensku
fjármálakerfi. Sums staðar kvað þó við annan tón. Í netútgáfu Aftenposten
í Noregi var haft eftir þarlendum hagfræðingi að Íslendingar „hefðu fengið
lengra reipi til að hengja sig í“. Í hádegisviðtalinu á Stöð 2 í gær sagði Davíð
að viðbúið hefði verið að fréttaflutningur yrði misvísandi. Um leið áréttaði
hann að þau skref sem Seðlabankinn og viðskiptabankarnir sjálfir hefðu
stigið gæfu auknar líkur á að hér gengi vel.
1958 – 200850 ÁRA
1958 – 200850 ÁRA
Dagskrá
Þarfnast náttúruverndarlögin
endurskoðunar?
Morgunverðarfundur um 37. grein
náttúruverndarlaga
Í tilefni af 50 ára afmæli VSÓ Ráðgjafar býður fyrirtækið til síns þriðja
morgunverðarfundar þriðjudaginn 20. maí kl 8:30 -10:00 í Háteigi
B á Grand Hótel, Reykjavík.
Í 37. grein náttúruverndarlaga nr. 44/1999 segir að vernda skuli
ákveðnar jarðmyndanir og vistkerfi svo sem eldvörp, gervigíga og
eldhraun, stöðuvötn og tjarnir, mýrar og flóa, fossa, hveri og aðrar
heitar uppsprettur, sjávarfitjar og leirur.
Auður Magnúsdóttir umhverfisstjórnunarfræðingur og Sigríður Dr.
Jónsdóttir umhverfisfræðingur starfa hjá VSÓ Ráðgjöf. Þær hafa
nýlokið rannsókn á vægi þessarar lagagreinar í matsverkefnum og
áhrifum hennar á ákvarðanir um matsskyldu, úrskurði í mati á
umhverfisáhrifum, útfærslu framkvæmda og skilgreiningu mót-
vægisaðgerða. Rannsóknin var styrkt af rannsóknasjóði Vega-
gerðarinnar.
Dagskrá:
Forsendur 37. gr. náttúruverndarlaga og staða ákvæðisins í
lagakerfinu, Sigrún Ágústsdóttir, lögfræðingur hjá Umhverfis-
ráðuneytinu.
Friðun, verndun og 37. gr. náttúruverndarlaga, Ólafur Páll
Jónsson, lektor í heimspeki við Kennaraháskóla Íslands.
Hefur 37. grein náttúruverndarlaga tilætluð áhrif?
Auður Magnúsdóttir, umhverfisstjórnunarfræðingur hjá VSÓ
ráðgjöf.
Umræður, spurningar og svör.
Fundarstjóri: Stefán Gunnar Thors, umhverfishagfræðingur hjá VSÓ ráðgjöf.
Fundurinn er ætlaður opinberum aðilum, framkvæmdaraðilum,
ráðgjöfum og öllum þeim sem láta sig umhverfismál varða.
Aðgangur er í boði VSÓ
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku fyrir hádegi
19. apríl nk. á netfangið: bergny@vso.is.