Fréttablaðið - 17.05.2008, Blaðsíða 40
1. Upptrektar. Ljós frá Nicholas Furrow. En sá ágæti hönn-
uður leikur sér að því að búa til ljós og aðra muni úr hlutum
sem hann finnur. Þetta ljós er gert úr tveimur trektum en
hann hefur líka gert ljós úr sigti. Sjá vefsíðuna nicholasfur-
row.net.
2. Í friði og ró. Palo Samko er hönnuður sem notar við og
gamla muni í húsgögnum sínum. Hann leggur mikla áherslu
á handbragðið, en vill þó ekki að hlutirnir séu of tilbúnir og
vill helst að þeir falli inn í náttúruna.
3. Bamba-stóllinn. Þessi stóll er allur unninn úr bambus-
við. Hann kemur frá fyrirtæki sem heitir Ecosystems og
sérhæfir sig í að hanna húsgögn sem eru í fullkominni sátt
við umhverfið.
4. Endist um aldur og ævi. Skápurinn Alba er smíðaður
úr viði sem kemur úr nytjaskógi og er ætlað að endast lengi.
Hann er til sölu á oneecohome.co.uk, hjá fyrirtæki sem sér-
hæfir sig í sölu á umhverfisvænum húsgögnum.
5. Undir nýja bossa. Skiptiborðið frá Argington er allt
unnið í sátt við umhverfið. Það er hannað af hjónum sem búa
til húsgögn fyrir börn og fjölskyldufólk. Þau leggja áherslu
á að vörur þeirra séu umhverfisvænar.
6. Spýtustóll. Þennan stól er að finna í vörulínu One Eco
Home (oneecohome.co.uk) og eins og sjá má er búinn til úr
trjágreinum. Skemmtileg hugmynd sem auðveld er að út-
færa og hægt að búa til nokkra svona úr öllum trjágreinun-
um, sem klipptar eru í görðunum á vorin.
7. Brasilísk fegurð. Brasilíumaðurinn Sergio Fahrer smíð-
aði hljóðfæri áður en hann fór að búa til húsgögn. Hann
hannaði stólinn Charla sem er unninn úr við úr nytjaskógi,
stálið í honum er endurunnið og leðrið kemur af kúm sem
eru aldar upp undir ströngustu umhverfisverndarskilyrð-
um. Stóllinn fæst hjá oneecohome.
co.uk.
Svara kalli náttúru
● Græna byltingin er hafin og margir innanhússarkitektar og hönn-
uðir eru að leggja sitt á vogaskálarnar. Í krafti skapandi hugsunar
leita þeir leiða til að nýta hráefni betur og draga úr úrgangi án þess
að slá á kröfurnar um fallegt útlit. Allar helstu bloggsíður sem fjalla
um hönnun hafa ekki farið varhluta af þessu og keppast við að kynna
nýja og umhverfisvæna muni fyrir lesendur sína og á þessum mynd-
um getur að líta það helsta sem rak á netfjörur okkar.
2
5
1
3
7
6
4
Sendibílaþjónusta
Viltu losna við gamla
dótið úr skúrnum eða
geymslunni?
Ertu að flytja?
Við hjálpum
þér að bera!
Tökum að okkur föst og tilfallandi verkefni
- Snögg og örugg þjónusta
Stefán - Sími 771 1966
Svanlaugur - Sími 770 5053
Hjá Glófaxa færðu: Iðnaðarhurðir,
bæði sem flekahurðir og rúlluhurðir.
Iðnaðarhurðir, með gönguhurðum,
með eða án þröskulds. Í hurðunum
eru gluggar ísettir plastrúðum sem
rispast ekki.
Einnig fást eldvarnar- ,öryggis- og
bílskúrshurðir.
Ármúla 42• Sími 553-4236 / 553-5336
Fax 588-8336 • glofaxi@simnet.is
Iðnaðarhurð Rúlluhurð
Vörulyftur og veðurhlífar Hraðlyftihurð
Eldvarnarhurð Hlið
17. MAÍ 2008 LAUGARDAGUR