Fréttablaðið - 17.05.2008, Side 72
42 17. maí 2008 LAUGARDAGUR
Síðustu tónleikarnir í 15.15
tónleikasyrpunni í Norræna
húsinu á þessu vori fara
fram á morgun kl. 15.15,
eins og lög gera ráð fyrir.
Um merkan menningarvið-
burð er að ræða þar sem
að heimsfrumflutt verða
hvorki meira né minna en
fimm ný tónverk fyrir held-
ur óvenjulega hljóðfæra-
skipan, hörpu og slagverk.
Flytjendur eru þau Katie Eliza-
beth Buckley hörpuleikari og
Frank Aarnik slagverksleikari
sem saman skipa Duo Harpverk.
Samstarf þeirra Katie og Frank er
tiltölulega nýtt af nálinni; það
hófst í fyrra, en þrátt fyrir það
hefur nú þegar fjöldi tónverka
verið saminn sérlega fyrir þau.
„Við leikum bæði með Sinfóníu-
hljómsveit Íslands og erum þar
oftast á hvort á sínum enda sviðs-
ins. Við leikum vel saman og lang-
aði til þess að prófa að koma fram
á tónleikum bara tvö, sem við
gerðum í fyrsta skipti á 15.15 tón-
leikum í fyrra. Við rákumst þó
fljótlega á það að það er ekki til
mikið af tónlist fyrir slagverk og
hörpu; við leituðum á netinu að
slíkum tónverkum og fundum
aðeins tvö eða þrjú,“ segir Frank.
„Okkur varð því snemma ljóst að
við þyrftum að leita til tónskálda
og fá þau til að semja verk fyrir
okkur. Almennt hafa tónskáldin
sem við höfum leitað til tekið
afskaplega vel í hugmyndina, enda
virðist þeim þykja spennandi að
semja verk fyrir þessa hljóðfæra-
skipan og þá sérstaklega
hörpuna.“
Verkin sem Duo Harpverk flyt-
ur á sunnudag eru 328° eftir Áka
Ásgeirson, nýtt verk eftir Báru
Sigurjónsdóttur, Ballet 5 eftir
Jónas Tómasson, Dubhghall eftir
Pál Ivan Pálsson og Shadows and
Silhouettes fyrir hörpu, slagverk
og rafhljóð eftir Úlfar Inga Har-
aldsson. Frank kveður verkin afar
fjölbreytt. „Verkin eru jafn ólík og
þau eru mörg og það er gaman að
heyra hvað tónskáldin hafa nálg-
ast hljóðfærin út frá mismunandi
forsendum. Verkin eftir Úlfar,
Báru og Jónas komast líkast til
næst því að vera hefðbundin
nýklassík, ef svo mætti komast að
orði, og verkið eftir Pál er hálf-
gert Doom-metal þar sem hörpu-
hljómurinn er bjagaður upp úr
öllu valdi.“
Þau Frank og Katie halda tón-
leikahaldi sínu ótrauð áfram í
sumar; þau koma fram í Hafnar-
firði í lok mánaðarins og leika á
Sólheimum í Grímsnesi 12. júlí
næstkomandi.
Miðaverð á tónleikana á morgun
er 1.500 kr., en eldri borgarar,
öryrkjar og námsmenn fá miðann
á hálfvirði.
vigdis@frettabladid.is
Harpa og slagverk hittast
DUO HARPVERK Katie Elizabeth Bucley og Frank Aarnik koma fram á 15.15 tónleikum
í Norræna húsinu á sunnudag.
Hið framsækna sýningarrými
Gallerí i8, til húsa að Klapparstíg
33, tekur að sjálfsögðu þátt í
Listahátíð í Reykjavík með spenn-
andi sýningu. Þar var í gær opnuð
sýning brasilíska listamannsins
Ernesto Neto, en hann er einn
virtasti samtímalistamaður sinn-
ar kynslóðar í heimalandinu.
Hann vinnur gjarnan með næfur-
þunn efni og skapar úr þeim stór-
ar innsetningar úr lífrænum
formum og rýmum sem skapa
sterk hughrif hjá áhorfandanum.
Verk Neto eru óhlutbundin en um
leið munúðarfull en hann kallar
þau rannsókn á landslagi líkam-
ans séð innan frá. Verkin eru fest
í loft, á gólf og á veggi rýmisins
og geta vel virkað dálítið villandi
á áhorfandann, svo honum finnst
hann eins og á kafi í sjálfum sér.
Brasilísk samtímalist er sann-
arlega ekki á boðstólum hér á
hverjum degi og því er ástæða til
þess að bregða sér í miðbæinn og
upplifa töfrandi heim Ernesto
Neto. - vþ
Þunnar álplötur,
lífrænt form
INNSETNING OG LISTAMAÐUR Ernesto Neto við verk sitt í Gallerí i8. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON