Fréttablaðið - 17.05.2008, Side 48

Fréttablaðið - 17.05.2008, Side 48
● heimili&hönnun Átta hönnuðir munu vinna í sam- starfi við mismunandi hafnfirsk framleiðslufyrirtæki í sumar að því að hanna nýjar vörur fyrir framleiðsluna. Hollensku hjónin Rianne Makkink og Jurgen Bey eru ein af þeim erlendu hönnuð- um sem taka þátt í verkefninu. Þau reka saman hönnunarstofuna Studio Makkink&Bey í Rotterdam og verða í samstarfi við málm- steypuna Hellu. Rianne heimsótti verksmiðjuna á dögunum til að kynna sér framleiðsluna. „Við erum mjög hrifin af Íslandi. Jurgen Bey kennir við Listahá- skóla Íslands og þegar Hrafnkell Birgisson impraði á þessu verk- efni við okkur stukkum við á tæki- færið,“ segir Rianne um aðdrag- anda þess að þau taka þátt. Rianne sem er lærður arkitekt kynntist Jurgen Bey árið 2001 en þau hafa unnið saman síðustu fimm ár. „Hans nafn var löngu orðið þekkt í hönnunarheiminum svo flestir þekkja okkar verk einungis undir hans nafni. Við vinnum mjög vel saman og leitum bæði innblást- urs í umhverfið og hluti með sögu frekar en að fletta hönnunartíma- ritum. Við horfum til dæmis í hluti sem þegar eru til í náttúrunni og reynum að fara ótroðnar slóðir í okkar hönnun.“ Rianne var mjög ánægð með heimsóknina í Hellu og segir þau alltaf eiga í nánu samstarfi við framleiðendur því þeim þyki mik- ilvægt fyrir hverja þau eru að vinna og hvers vegna. „Allar okkar vörur verða til í samvinnu og við spinnum ekki eitthvað upp úr engu. Það skipt- ir okkur máli hvernig hlutirnir verða til og í hvernig umhverfi. Þess vegna vildi ég koma sjálf í málmsteypuna til að hitta fólk- ið og sjá hvernig það vinnur og hvaða möguleikar liggja í fram- leiðslunni. Ég held að það sé mikil- vægt fyrir hönnuði að vera í beinu sambandi við handverksfólkið og framleiðendurna því þetta er sam- vinna og við gætum ekkert gert án þeirra.“ Rianne segir að þau muni vinna hugmyndavinnu og skissur á vinnustofunni í Rotterdam en heimsækja málmsteypuna á milli til að samræma hugmyndir sínar við mögulega framleiðslu. Hún segir þetta framtak frábært fyrir íslenska hönnun og framleiðslu. „Við fylgjumst vel með íslenskri hönnun og það eru spennandi hlut- ir að gerast núna. Ég held að hönn- un á Íslandi sé á mikilvægum tímamótum í dag.“ Aðrir þátttakendur í verkefn- inu eru Katrín Ólína Pétursdóttir en hún vinnur með Mest, Snæfríð Þorsteinsdóttir og Prentheimar vinna saman, Borðið vinnur með Rafhitun, Egill Kalevi Karlsson vinnur með Stoð, Páll Einarsson vinnur með Trefjum, spænsku hönnuðirnir El Ultimo Grito vinna með RB-Rúmum og Johannes Fuchs vinnur með Breiður. Áætlað er að sýna afrakstur verkefnisins í ágústlok í Hafnar- borg. Hrafnkell Birgisson vöru- hönnuður stýrir verkefninu. - rat Náttúran og notaðir hlutir ● Nú í vor fer af stað samstarfsverkefni milli framleiðslu- fyrirtækja í Hafnarfirði og innlendra og erlendra hönnuða. Hugmyndin að baki stólunum er að skapa næði án þess að þurfa að hólfa rýmið niður. MYND/DARIA SCAGLIOLA & STIJN BRAKKEE Ear chairs sem Rianne Makkink og Jurgen Bey framleiða undir merki sínu Proof. MYND/ DARIA SCAGLIOLA & STIJN BRAKKEE Rianne finnst mikilvægt að kynnast fólkinu sem mun framleiða vöruna og var heilluð af vinalegu andrúms- loftinu í málmsteypunni Hellu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Margir þekkja kristalsljósakrónuna Shade eftir Jurgen Bey en hana vann hann fyrir Droog árið 1999. Endurnýting er mikilvæg í hugmyndafræði Jurgens Bey og Rianne Makkink. Þessi bekkur er búinn til úr samanpressuðum úrgangi. Náttúran ræður svo líftíma bekkjarins. MYND: DROOG IMAGEBANK M YN D : D RO O G IM A G EB A N K 17. MAÍ 2008 LAUGARDAGUR12

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.