Fréttablaðið - 17.05.2008, Side 30

Fréttablaðið - 17.05.2008, Side 30
30 17. maí 2008 LAUGARDAGUR Þ essir flóttamenn hafa frá því í desem- ber síðastliðnum dvalið í hinum svo- nefndu Al-Waleed- flóttamannabúðum, sem eru nærri landamærum Íraks að Sýrlandi. Í frétt á vef Flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna, UNHCR, lýsir stofn- unin miklum áhyggjum af þeim aðstæðum sem fólkið í búðunum býr við. „Við erum einkum og sér í lagi áhyggjufull yfir skortinum á læknisaðstoð,“ er þar haft eftir Jennifer Pagonis, talsmanni UNHCR í Genf. „Margir af þeim 942 manns sem í búðunum dvelja hafa brýna þörf fyrir læknisað- stoð, þar á meðal móðir sjö barna sem þjáist af hvítblæði og sykur- sjúkur unglingspiltur,“ segir hún. Hættulega bágar aðstæður Sendinefnd á vegum UNHCR fór í heimsókn í Al-Waleed-búðirnar síðastliðinn sunnudag til að kynna sér aðstæður þar og meta þarfir flóttamannanna. Þeir fengu staðfest að Palestínumenn- irnir þar, sem hröktust þangað undan ofsóknum í írösku höfuð- borginni Bagdad, lifðu við hættu- lega bágan kost. Nefndin komst að því að búð- irnar, sem eru tjaldbúðir reistar í Anbar-eyðimörkinni, eru yfirfull- ar af fólki og margir sem þar dvelja þjást af öndunarfærasjúk- dómum og öðrum kvillum sem þarfnast viðeigandi meðferðar. En næsta heilsugæslustöð í Írak er í fjögurra akstursstunda fjar- lægð og vegurinn liggur um hættuleg svæði þar sem árásir og tilræði hafa verið tíð. Frá því búðirnar voru opnaðar í lok síð- asta árs hafa að minnsta kosti þrír af flóttamönnunum dáið úr sjúkdómum sem auðveldlega hefði verið hægt að lækna, þar á meðal hálfs árs gamalt barn. Hjálparstarfsmenn fjarri Alþjóðlegum hjálparstofnunum er ekki leyft að vera með varan- lega viðveru í búðunum af örygg- isástæðum. Liðsmenn slíkra stofnana geta því aðeins farið í stakar heimsóknir þangað að degi til, að jafnaði frá Sýrlandi. Alþjóða Rauði krossinn hefur lagt búðunum til tjöld, vatn og annan búnað. Vegna viðvarandi ofsókna sem Palestínumenn í Bagdad sæta er búist við að straumur flótta- manna í búðirnar muni halda áfram. Minnst 1.400 Palestínu- menn eru taldir hafast við í Al- Waleed og fleiri flóttamannabúð- um við landamærin að Sýrlandi, í von um að komast yfir þau einn góðan veðurdag. Stjórnvöld í Sýr- landi telja sig þegar eiga nóg með þau hundruð þúsunda íraskra og palestínskra flóttamanna sem þegar eru í landinu og hleypa ekki öðrum yfir landamærin að svo stöddu nema þeim sem hafa gild vegabréf og nægt fé til að framfleyta sér. Auk Al-Waleed eru eldri búðir með hundruðum palestínskra flóttamanna þarna við landamær- in. Þær nefnast Al-Tanf, en sér- staða þeirra er sú að þær eru á „einskismannslandinu“ á milli landamæra Íraks og Sýrlands. Þeir sem þar dvelja hafa yfirgef- ið Írak en ekki fengið að fara inn í Sýrland. Þangað er ekki fleiri flóttamönnum hleypt. Því liggur straumur hinna ofsóttu Palest- ínumanna frá Bagdad til Al- Waleed. Ofsóttir gestaverkamenn Talið er að um 34.000 Palestínu- menn hafi dvalið og starfað í Írak árið 2003, þegar innrás Banda- ríkjamanna og bandamanna þeirra hófst. Þetta fólk er margt fætt í byggðum þeim sem palest- ínskir flóttamenn hafa búið í frá því árið 1948 í löndunum í kring- um Palestínu. Til Íraks fór það flest sem „gestaverkamenn“ í stjórnartíð Saddams Hussein. Síðan stjórn Saddams féll hefur fólk úr þeirra hópi æ oftar orðið fyrir árásum, mannránum, nauðgunum og morðum. „Heimili Palestínumanna í Írak hafa orðið stöðug skotmörk sprengjuárása, mannrána, mis- þyrminga, hótana, pyntinga og drápa. Það eru ekki til neinar áreið- anleg- ar tölur Innikróaðir í eyðimörkinni Íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að bjóða allt að 30 manna hópi palestínskra flóttamanna hæli hér á landi, einstæðum mæðrum og börnum þeirra sem dvelja í flóttamannabúðum í Írak. Auðunn Arnórsson skrifar um ástandið í búðunum. Í vikunni voru rétt 60 ár frá því að Ísrael lýsti yfir sjálfstæði. Það gerði Davíð Ben-Gurion, forsætisráð- herra fyrstu ísraelsku bráðabirgða- stjórnarinnar, þann 14. maí 1948, daginn áður en umboð Breta frá Þjóðabandalaginu og síðar Samein- uðu þjóðunum til að stjórna Palest- ínu rann út. Sjálfstæðisyfirlýsing bráða- birgðastjórnar gyðinga í Palestínu byggði á samþykkt allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna frá 29. nóvem- ber 1947, en hún kvað á um skipt- ingu Palestínu milli gyðinga og Pal- estínuaraba. Framsögumaður um skiptingartillögu SÞ var Thor H. Thors, þáverandi sendiherra Íslands hjá SÞ. Abba Eban, erindreki Palestínu- gyðinga hjá SÞ og síðar utanríkis- ráðherra Ísraels, talar mjög lofsam- lega um hlut Thors í stofnun Ísraelsríkis í æviminningum sínum sem út komu árið 1977. Hann segir þar fullum fetum, að fulltrúi smá- ríkis í yztu höfum hafi ráðið örlög- um heimsbyggðarinnar þennan dag. Íslendingar studdu málstað gyðinga þótt Thor tæki fram að ekki væri að ræða um endanlega lausn á deilu gyðinga og araba um yfirráð yfir landi í Palestínu. Eftir sjálfstæðisyfirlýsinguna voru Bandaríkin, Sovétríkin og mörg önnur lönd fljót til að viður- kenna Ísrael. En það gerði ekkert nágrannaríkjanna. Strax næstu dag- ana eftir 15. maí réðust hersveitir frá Sýrlandi, Líbanon, Jórdaníu, Írak og Egyptalandi inn í Palestínu með það að markmiði að hindra stofnun Ísraelsríkis. Í yfirlýsingu frá Arababandalaginu 15. maí 1948 segir að arabaríkin stefni að því að stofna „Sameinað ríki Palestínu“ í stað tveggja-ríkja-lausnarinnar sem áætlun SÞ gerði ráð fyrir. Ráða- menn arabaríkjanna töldu það verða léttan leik að yfirbuga hinn fámenna sjálfboðaliðaher gyðinga, Haganah. En gyðingar voru svo staðráðnir í að láta ekki „reka sig í sjóinn“ að þeir reyndust innrásarliðinu yfirsterk- ari. Vopnahlé var samið snemma árs 1949. Í stríðinu hröktust yfir 700.000 Palestínuarabar á flótta frá því svæði sem Ísraelar náðu á sitt vald. Í kjölfarið hröktust enn fleiri gyð- ingar frá arabaríkjunum til Ísraels. Ísraelsríki sextugt MANNÚÐARHEIMSÓKN Angelina Jolie, Hollywoodstjarna og mannúðarsendiherra Sameinuðu þjóðanna, hlustar á aldraða konu í Al-Waleed-flóttamannabúðunum í Írak segja frá. Jolie heimsótti búðirnar í ágúst í fyrra. NORDICPHOTOS/AFP FYRIRHEITNA LANDIÐ: STOFNUN ÍSRAELSRÍKIS Uppruna Ísraelsríkis má rekja aftur til 2.000 ára gamallar óskhyggju gyðinga, sem voru dreifðir um heimsbyggðina, um að snúa aftur til „fyrirheitna lands” Biblíunnar. Hún hlaut byr undir báða vængi í síonistahreyfingunni á 19. öld. Í reynd varð Ísraelsríki nútímans til sem málamiðlun byggð á fyrirheitum stórvelda 20. aldar um að skapa gyðingum griðastað í Landinu helga. Til framkvæmda komu þau fyrirheit ekki fyrr en eftir tvær heimsstyrjaldir og helför sem útrýmdi stórum hluta gyðinga. ÖRLAGAÁR Palestínuarabi á útifundi í bænum Nablus á Vesturbakkanum þar sem atburða ársins 1948 var minnzt í vikunni. Samhliða fögnuði Ísraela yfir sjálfstæð- isafmæli sínu minnast Palest- ínumenn þess sem þeir kalla „nakba“ eða „hörmunganna“ sem yfir þá dundu með því að þurfa að gerast landflótta.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.