Fréttablaðið - 17.05.2008, Page 80
Önnur umferð Landsbankadeildar karla var
ekki jafn fjörug og sú fyrsta. Hún sýndi samt
sem áður að liðin geta öll unnið hvort annað
og ekkert lið er auðvelt að eiga við. Á því fengu
KR-ingar að kenna þegar þeir heimsóttu Fjölnis-
menn sem voru í þjóðhátíðarskapi. Sigur Fjölnis
var óvæntur en skemmtilegt krydd í deildina. Öll
augu beinast nú að nýliðunum og verður gaman
að sjá hvernig þeim tekst að fylgja góðri byrjun á
mótinu eftir.
Framarar hafa einnig byrjað vel og eiga
enn eftir að fá á sig mark. Þeir líta vel
út og samvinna Auðuns og Reynis í
vörninni hefur verið góð.
Á botninum eru meðal
annars Fylkismenn sem hafa
komið einna mest á óvart
með slakri frammi-
stöðu. Þeir áttu
ekkert skilið út úr
leiknum gegn Keflavík en hefðu getað stolið stigi
hefðu þeir fengið vítaspyrnu, sem þeir gerðu
réttilega sterkt tilkall til.
Eins og margir spáðu fyrir mót eru HK og
Grindavík á botninum, ásamt Fylki. Félögin þurfa
að bíta í skjaldarrendur en þriðja umferð hefst
strax á mánudag.
2. UMFERÐ LANDSBANKADEILDAR KARLA: VAR ÖLLU RÓLEGRI EN SÚ FYRSTA
Fjölnismenn stálu senunni
52 17. maí 2008 LAUGARDAGUR
sport@frettabladid.is
FÓTBOLTI Pálmi Rafn Pálmason
skoraði sína fyrstu þrennu í efstu
deild þegar hann afgreiddi Grind-
víkinga í vikunni. Pálmi hefur
leikið vel í upphafi móts og hefur
greinilega bætt sig mikið frá því í
fyrra.
„Ég var ansi duglegur að styrkja
mig líkamlega í vetur, ég var mikið
að rífa í járnin eins og gárungar
segja,“ sagði Pálmi sem mætti átta
til níu sinnum í viku í ræktina með
Bjarna Ólafi Eiríkssyni liðsfélaga
sínum. „Já það er talan, þangað til
ég verð leiðréttur,“ sagði Pálmi.
„Það var eitthvað sem mig vant-
aði. Svo er þetta auðvitað andlegi
þátturinn. Með meira sjálfstrausti
þá spilar maður betur,“ sagði
hann.
Pálmi er búinn með eitt ár í við-
skiptafræði við Háskóla Íslands.
Vorprófin eru búin og er Pálmi að
skoða sumarvinnu um þessar
mundir.
Húsvíkingurinn var valinn í
landsliðið í fyrsta sinn á árinu og á
nú fjóra landsleiki að baki, þar af
einn í byrjunarliði. Það var einn af
þeim andlegu þáttum sem gáfu
honum aukið sjálfstraust.
„Landsliðsvalið hlýtur að segja
að ég sé að gera eitthvað rétt og
sparkar enn meira í rassinn á
manni að halda áfram,“ sagði
Pálmi en annar andlegur þáttur
var áhugi fjölda erlendra liða á
honum. Hann fór meðal annars til
reynslu hjá Djurgården í Svíþjóð.
„Það er ekkert nóg að líta vel út
í glugga, þú verður að vera góð
vara þegar á hólminn er komið.
Maður verður að nýta öll tæki-
færi,“ sagði Pálmi. Hann kveðst
hafa áhuga á að reyna fyrir sér
erlendis, en aðeins ef eitthvað
spennandi verður í boði.
Formið hefur svo aldrei verið
betra. „Ég hef sennilega aldrei
verið í betra formi. Þetta er eitt-
hvað sem skiptir mjög miklu máli
og ég er að græða á því að hafa
æft mjög mikið í vetur“.
Glæsileg þrenna Pálma gegn
Grindavík var á allra vörum. Hann
gat ekki leynt ánægju sinni með
hana en segir að ekkert sérstakt
búi að baki, enginn sérstakur und-
irbúningur hafi verið hjá honum
fyrir leikinn. „Ég lærði reyndar
rosalega mikið þennan dag,
kannski fékk ég bara útrás fyrir
þreytuna á vellinum.“
Pálmi segist hafa gefið alla hjá-
trú upp á bátinn og nú sé undirbún-
ingur reyndar þvert á alla hjátrú.
„Hjátrúin mín er búin að breytast í
að gera aldrei það sama fyrir leik.
Það gekk bara upp og niður að vera
með einhverja ákveðna rútínu
fyrir leik,“ sagði Pálmi glaðbeitt-
ur.
Eðlilega leist Pálma ekki vel á
formið á Valsmönnum í fyrsta leik
þar sem þeir töpuðu 5-3 fyrir
Keflavík. Nú horfir þó til betri
vegar. „Það hefur gengið vel núna
og við spiluðum vel á undirbún-
ingstímabilinu. Fyrsti leikurinn
kom okkur aðeins niður á jörðina
en sigurinn á móti Grindavík stýr-
ir okkur vonandi á beinu brautina
eftir misstigið okkar í fyrstu
umferð,“ sagði maður 2. umferðar
Landsbankadeildarinnar, Pálmi
Rafn Pálmason. hjalti@frettabladid.is
Ég var duglegur að rífa í járnin í vetur
Pálmi Rafn Pálmason skoraði í vikunni og er leikmaður 2. umferðar. Hann segist hafa bætt sig bæði
líkamlega og andlega frá síðasta tímabili. Hann fór níu sinnum á viku í ræktina með náminu í vetur.
ÞRENNAN FULLKOMNUÐ Pálmi Rafn fagnar þriðja marki sínu gegn Grindavík við
mikla kátínu liðsfélaga sinna. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
> Atvik umferðarinnar
Vítaspyrna Gunnars Más Guð-
mundssonar gegn KR í uppbótar-
tíma. Sigur Fjölnis á KR á heimavelli
sínum í Grafarvoginum var eins og
vel skrifað ævintýri fyrir nýliðana.
> Bestu ummælin
Fjalar Þorgeirsson, markmaður Fylkis, var ósáttur eftir 2-1
tapið í Keflavík „Ég held að boltinn hafi ekki farið
inn, þetta var stór ákvörðun hjá línuverðinum.
Mér fannst boltinn aldrei fara inn fyrir línuna,“
sagði Fjalar við Fréttablaðið eftir leikinn um
fyrsta mark Keflvíkinga sem kom beint úr
hornspyrnu.
TÖLURNAR TALA
Flest skot: 17, FH
Flest skot á mark: 2, ÍA
Fæst skot: 2, ÍA
Hæsta meðaleink.: 6,75, Keflavík
Lægsta meðaleink.: 4,38, Grind.
Grófasta liðið: 27 brot, KR
Prúðasta liðið: 11 brot, fimm lið
Flestir áhorf.: Fjölnir-KR, 2125
Fæstir áhorf.: Fram-HK, 804
Áhorfendur alls: 7917
> Besti dómarinn: Kristinn
Jakobsson dæmdi viðureign Fram og
HK vel á Laugardalsvellinum. Í Frétta-
blaðinu í gær láðist að gefa honum
einkunn en hann fékk 8 fyrir frammi-
stöðu sína á fimmtudag.
Bjarki Freyr Guðmundsson (2)
Dario Cingel Freyr Bjarnason Guðjón Árni
Antoníusson
Hólmar Örn Rúnarsson
Bjarni Ó. Eiríksson
Tryggvi Guðmundsson (2)
Pálmi R. Pálmason
Heiðar Geir
Júlíusson
Guðmundur Steinarsson (2)
Guðjón Baldvinsson (2)
3-4-3
FÓTBOLTI Það var Pétur Georg
Markan sem skoraði fyrra mark
Fjölnismanna gegn KR á fimmtu-
dagskvöldið en ekki Ásgeir Aron
Ásgeirsson eins og kom fram í
Fréttablaðinu í gær.
Ásgeir átti skot að
marki eftir horn-
spyrnu en Pétur
stóð fyrir framan
Kristján Finn-
bogason mark-
vörð KR og
framlengdi
boltann inn.
Boltinn
stefndi á
Kristján og
það er allt
annað en öruggt að bolt-
inn hefði farið inn hefði
Pétur ekki breytt stefnu
hans á marklínunni.
„Það er rétt að ég hafi skor-
að markið. Ég sparkaði bolt-
anum en ég var alveg tilbú-
inn að una Geira þessu
marki þar sem hann skor-
ar svo sjaldan en
tæknilega skoraði ég
þetta mark,“ viður-
kenndi Pétur þegar
Fréttablaðið hafði
samband við hann í
gær.
Að sama skapi skoraði Matthías
Guðmundsson seinna mark FH
gegn ÍA en ekki nafni hans
Vilhjálmsson. Matthías
Guðmundsson skaut bolt-
anum inn af marklínunni
og Pétur sagði að Fjölnis-
mennirnir hefðu rætt
þessi mörk um kvöld-
ið.
„Ég var svolítið
hrifinn af því sem
Willum Þór sagði
á RÚV að þetta
snýst ekki um
hver skorar held-
ur að koma tuðrunni
yfir línuna. Maður er nú
bara alinn upp af svona
gamma hætti að maður
treður boltanum inn
þegar maður sér hann,”
segir Pétur sem hefur því
eins og Gunnar Már Guð-
mundsson skorað í tveimur
fyrstu leikjum sínum í efstu
deild. - óój
Ranglega skráð mark í leik Fjölnis og KR í fyrrakvöld:
Pétur á markið en
ekki Ásgeir Aron
TVÖ MÖRK Í TVEIMUR
LEIKJUM Pétur Georg Markan
hefur skoraði í fyrstu tveimur
leikjum Fjölnis.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
FÓTBOLTI Fylkismenn eru stiga-
lausir eftir fyrstu tvær umferð-
irnar í fyrsta sinn í sögu félagsins
í efstu deild.
Fylkir tapaði 0-3 fyrir Fram í
fyrsta leik og svo 1-2 í Keflavík á
fimmtudagskvöldið.
Það er ekki nóg með að þetta
séu fæstu stig liðsins í fyrstu
tveimur umferðunum því liðið
hefur aldrei skorað minna (1) eða
fengið á sig fleiri mörk (5) í
upphafi móts.
Versti árangur Fylkis fyrir
þessa skelfilegu byrjun var árið
2000 þegar liðið gerði tvö
jafntefli í fyrstu umferðunum en
liðið náði þó það sumar sínum
besta árangri og endaði í 2. sæti.
- óój
Landsbankadeild karla:
Versta byrjun
Fylkismanna
SLÆM BYRJUN Það er ekki bjart yfir Leifi
Garðarssyni, þjálfara Fylkis.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Kringlunni - Laugavegi
Jakkaföt
verð frá 24.990 kr
Skyrtur
verð frá 4.990 kr
Bindi
verð frá 2.990 kr
Skór
verð frá 9.990 kr