Fréttablaðið - 17.05.2008, Qupperneq 86
58 17. maí 2008 LAUGARDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
PERSÓNAN
LÁRÉTT
2. steypuefni 6. kraðak 8. mánuður 9.
móðuþykkni 11. tveir eins 12. goðm-
ögn 14. hæ 16. fisk 17. mál 18. lyftist
20. tveir eins 21. harla.
LÓÐRÉTT
1. nauðsyn 3. óhreinindi 4. knús 5.
löng 7. hosa 10. stjaka 13. veitt eftir-
för 15. æsingur 16. púka 19. átt.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. gifs, 6. ös, 8. maí, 9. ský,
11. ðð, 12. tótem, 14. halló, 16. ál, 17.
tal, 18. rís, 20. gg, 21. afar.
LÓÐRÉTT: 1. möst, 3. im, 4. faðmlag,
5. síð, 7. skóhlíf, 10. ýta, 13. elt, 15.
ólga, 16. ára, 19. sa.
„Mér finnst þetta ótrúleg forræð-
ishyggja. Og merkileg afdala-
mennska að telja sig geta komið
höndum svo auðveldlega yfir
Netið,“ segir Sigurður G. Guðjóns-
son, lögfræðingur Betsson.com
Lögreglustjórinn á höfuðborg-
arsvæðinu hefur gefið út ákæru á
hendur Betsson með vísan til laga
um happdrætti með það fyrir
augum að komast fyrir auglýsing-
ar frá hinu sænska fyrirtæki.
Betsson hefur um nokkurt skeið
auglýst fjárhættuspil á vefsíðu
sinni í íslenskum fjölmiðlum. Á
fimmtudag í næstu viku verður
fyrirtaka en málið verður flutt
seinna í sumar. Sigurður telur
þetta alveg fráleitt og sem dæmi
um vandræðagang hins opinbera
þá áttu þeir í nokkrum vandræð-
um með að boða menn í yfir-
heyrslu vegna málsins.
„Þeir boðuðu mig í yfirheyrslur
en ég hef bara veitt lögfræðilega
ráðgjöf og fráleitt að ég sé
yfirheyrður um það. Eini
maðurinn sem þeir gátu
hugsanlega ákært reynd-
ist sómamaðurinn Þór-
mundur Bergsson hjá
MediaCom. Það er fyrir-
tæki sem veitir ráðgjöf
um hvar best er að koma
auglýsingum fyrir með til-
liti til ákveðinna mark-
hópa. Nánast eins og
Birtingahús,“ segir
Sigurður.
Málið hefur
lengi verið að
velkjast hjá
hinu opinbera.
Það var Stefán
Konráðsson hjá
Íslenskri getspá
sem upphaflega
sendi erindi til
dómsmálaráðu-
neytisins þar sem
Hjalti Zóphónías-
son skrifstofu-
stjóri fjallaði um
málið. Hann kærði það svo fyrir
tveimur árum til lögreglustjóra.
„Já, það er svolítið langt síðan,“
segir Hjalti. „Þetta þurfti
vandlega skoðun og túlkun á
lögum. Lögspekingar eru oft
á öndverðum meiði,“ segir
Hjalti. Hann segir málið
snúast um að Betsson, sem
ekki hafi leyfi fyrir happ-
drætti hér á landi, sé þar
með bannað að miðla
upplýsingum í
formi auglýs-
inga. Hann
vísar á Arn-
þrúði Þórar-
insdóttur,
lögfræðing
hjá Lög-
reglu-
stjór-
anum í
Reykjavík, um frekari upplýsing-
ar en hún var ekki viðlátin í gær.
Né heldur náðist í Þórmund – þann
sem ákærður er.
Í 11. grein laga um happdrætti
segir að það varði sektum og fang-
elsi allt að sex mánuðum ef menn
„af ásetningi eða stórfelldu gáleysi
auglýsi, kynni eða miðli hvers
konar upplýsingum um happ-
drætti sem ekki hefur verið veitt
leyfi fyrir“. En það flækir málið
að fyrirtækið er skráð í sænsku
kauphöllina, reksturinn er á net-
inu og fyrirtækið sem rekur
íslensku síðuna er skráð á Möltu.
Sigurði lögmanni þykir þetta
kjánalegt mál, segir félagið full-
komlega löglegt og hafi öll leyfi
fyrir rekstri á hinu Evrópska efna-
hagssvæði. Og undir þau lög heyri
Ísland. „Það vill þannig til. Nú
vilja þessir aðilar reyna að koma
böndum á Netið. Sem gæti reynst
erfitt. Jú, Múgabe hefur reynt
þetta... já, og Kínverjar,“ segir
Sigurður sem furðar sig á því að
við viljum vera með slíkum á báti.
jakob@frettabladid.is
SIGURÐUR G. GUÐJÓNSSON: AFTURHALD OG FORRÆÐISHYGGJA
Betsson kært fyrir auglýsingar
AUGLÝSING FRÁ BETSSON Samkvæmt 11. grein laga um happdrætti er bannað að
miðla upplýsingum um happdrætti sem ekki hefur verið veitt leyfi fyrir.
Jón Þór Birgisson, söngvari hljómsveitarinnar
Sigur Rósar, verður eitt af tíu andlitum sem prýða
afmælisljósmyndasýniningu Land Rover í London.
Ljósmyndirnar verða ógnarstórar, að öllum
líkindum sex metra háar og til sölu fyrir sjö þúsund
pund eða rúma milljón íslenskra króna.
Íslenski söngvarinn verður í góðum félagsskap á
sýningunni en meðal nágranna hans eru suður-
afríski biskupinn Desmond Tutu og dóttir sjón-
varpsstjörnunnar Steve Irwin, Bindi Sue Irwin. Auk
þess verða myndir af starfi Rauða krossins og öðru
mannúðarstarfi áberandi.
Tutu mun opna sýninguna að viðstöddu fjölmenni
en Land Rover á einmitt sextíu ára
afmæli í ár. Þá verður að teljast líklegt
að Elísabet Bretadrottning verði
eitthvað viðloðandi sýninguna en hún er
annálaður aðdáendi þessarar bifreiðarteg-
undar eins og sjá mátti í kvikmyndinni
The Queen.
Ekki er hins vegar vitað hvort Jónsi
muni sjálfur mæta á svæðið því hljóm-
sveitin verður að öllum líkindum á
tónleikaferðalagi um Bandaríkin á þessum
sama tíma en ný plata er væntanleg frá
henni á næstunni. - fgg
Jónsi á Land Rover-sýningu
Í GÓÐUM
FÉLAGSSKAP
Jónsi er í hópi með Des-
mond Tutu og Bindi Sue
Irwin á ljósmyndasýningu
Land Rover í London sem
opnuð verður í lok júlí.
SIGURÐUR G.
GUÐJÓNSSON
Finnst málið
dæmi um
afdalamennsku
og furðar sig á
því að menn
hér vilji skipa
sér á bekk með
Mugabe og
Kínverjum.
Hafdís Huld Þrastardóttir
Aldur: 28 ára
Starf: tónlistarkona
Fjölskylda: Er í sambúð með
Alisdair Wright
Búseta: Við erum að flytja í gamalt
hús í Kettering á Englandi sem við
erum að mála og standsetja.
Stjörnumerki: Tvíburi
Hafdís Huld hefur náð langt á
tónlistarbrautinni og lék nýverið í
alþjóðlegri auglýsingu fyrir Merced-
es-Benz.
„Þetta er ekki vegna þess að maður er að
ströggla eitthvað, ég er bara nauðugur með
þennan hárlit og þarf að halda honum í
svona tvær vikur í viðbót,“ segir Júlíus
Brjánsson sem leikur föður Ólafs Ragnars í
Dagvaktinni sem Pétur Jóhann Sigfús-
son túlkar. Júlíus hefur vakið
athygli þar sem hann hefur látið
sjá sig síðustu daga. Grár koll-
urinn er nú kolbikasvartur,
rétt eins og á persónu Ólafs
Ragnars. Reyndar tekur
Júlíus sig vel út með svarta
hárlitinn og vilja sumir
meina að hann hafi yngst
um fjölmörg ár.
„Tökur ganga vel og ég
er viss um að þættirnir
eiga eftir að vera mjög
skemmtilegir. Þetta eru
langir vinnudagar svo ég gæti vel
trúað að fólk sé orðið þreytt en
sjálfur hef ég ekki verið við
tökur allan tímann. Það er frá-
bært lið að vinna að þessu og
góður andi á tökustað svo þetta er
mjög gaman,“ segir Júlíus.
Spurður hvernig hann hafi
verið valinn í hlutverkið telur
hann ástæðuna vera augljósa.
„Ég held að við Pétur gætum
alveg verið feðgar, allavega
svona útlitslega séð,“ segir
Júlíus að lokum og hlær. - ag
Þurfti að lita háríð fyrir Dagvaktina
LEIKUR FÖÐUR ÓLAFS RAGNARS Gráu lokkarnir hans
Júlíusar Brjánssonar voru settir í litun fyrir hlutverk
hans í Dagvaktinni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
SONUR JÚLLA Pétur Jóhann
í hlutverki Ólafs Ragnars.
Ekkert lát virðist vera á
leiknu efni í íslensku
sjónvarpi og grínið
nýtur enn sem fyrr
mikilla vinsælda.
Fyrrum Stelpu-
vinirnir Kjartan
Guðjónsson
og Auðunn
Blöndal hafa
átt nokkra fundi með Stöðvar 2-
mönnum og kynnt fyrir þeim nýja,
leikna gamanþáttaröð. Samkvæmt
heimildum Fréttablaðsins er
sjónvarpsstjórinn Pálmi Guð-
mundsson ákaflega spenntur fyrir
hugmyndum þeirra félaga og það
þykja meiri líkur en minni að hún
líti dagsins ljós áður en langt um
líður.
Geir Ólafsson sendir á næstunni
frá sér lagið Meira sem er titillag
væntanlegrar plötu sem kemur út
í haust. Þrátt fyrir að síðasta plata
Geirs hafi aðeins selst í rúmum
þrjú hundruð eintökum er hann
síður en svo af baki dottinn og
ætlar sér einfaldlega meira. Hefur
hann fengið Don Randi,
sem starfaði með
Frank Sinatra hér á
árum áður, til að
spila undir í einu
lagi á plötunni þar
sem rólegheitin
verða víst í
fyrirrúmi.
Barði Jóhannsson situr nú sveittur
við að moka út nýjum smellum
fyrir Merzedes Club því heil plata
er fyrirhuguð fljótlega í sumar.
Bandið á ekki nema fimm lög
á efnisskránni svo Barði þarf að
hafa snarar hendur. Um síðustu
helgi frumflutti bandið nýjan ópus
á Akureyri, hið sex
mínútna lag „Basscop”.
Miðað við viðtökur
Norðlendinga er hér
líklega kominn
stærsti smellur
Merzedes Club
til þessa.
-fgg/fb/glh
FRÉTTIR AF FÓLKI