Fréttablaðið - 07.06.2008, Síða 12

Fréttablaðið - 07.06.2008, Síða 12
12 7. júní 2008 LAUGARDAGUR FRÉTTASKÝRING: Stærsti þjóðgarður í Evrópu opnaður Vatnajökulsþjóðgarður, stærsti þjóðgarður í Evrópu, verður form- lega stofnaður í dag. Þjóðgarður- inn nær í fyrstu yfir um 13 þúsund ferkílómetra eða um 12 prósent af flatarmáli Íslands en gert er ráð fyrir að hann verði stækkaður á næstu árum. Um helmingur þjóðgarðsins er jökull en í kynningarefni þjóð- garðsins kemur fram að markmið með stofnun hans sé að vernda Vatnajökul og landsvæði honum tengd. „Þetta verður okkar kenni- leiti, eins og okkar Eiffelturn,“ segir Árni Finnsson, formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands, um Vatnajökulsþjóðgarð. Meginstarfsstöðvar þjóðgarðs- ins eru gestastofur. Nú þegar eru tvær slíkar, í Skaftafelli og Ásbyrgi, en til stendur að reisa fjórar stofur til viðbótar. Að auki eru starfsstöðvar land- varða fjórar nú en verða ellefu eftir að uppbyggingu svokallaðs þjónustunets þjóðgarðsins lýkur. Er áætlað að kostnaður við upp- bygginguna kosti um 1.150 millj- ónir króna og að henni ljúki á næstu fimm árum. Í tilefni dagsins verður efnt til hátíðarhalda milli klukkan 15 og 17 í dag á fjórum rektstrarsvæð- um þjóðgarðsins: í Gljúfrastofu í Jökulaárgljúfrum, á Skriðuklaustri í Fljótsdal, í Skaftafellsstofu í Skaftafelli og í Kirkjuhvoli á Kirkjubæjarklaustri. Kennileiti í líkingu við Eiffelturninn Stærsti þjóðgarður í Evrópu, Vatnajökulsþjóðgarður, verður formlega stofnað- ur í dag. Nær þjóðgarðurinn yfir um tólf prósent af flatarmáli Íslands en jök- ull hylur um helming hans. Blaðamennirnir Karen D. Kjartansdóttir og Olav Veigar Davíðsson ræddu við nokkra þeirra sem standa að stofnun þjóðgarðsins. Vatnajökulsþjóðgarður hefur það yfirlýsta markmið að vera atvinnuskapandi byggðaverk- efni. Anna Kristín Ólafsdóttir, formaður stjórn- ar Vatnajökulsþjóðgarðs, segir það í fyrsta skipti sem ætlunin er að slík uppbygging fari saman við rekstur þjóðgarðs. „Verkefnið vonum við að sýni og sanni að vernd og uppbygging atvinnu getur farið saman og á að fara saman. Að það sé ekki dauði og djöfull fyrir svæðin í kring heldur að í vernd- andi verkefnum geti beinlínis falist meiri verðmæti heldur en í margri annarri atvinnu- starfsemi,“ segir hún. Þá bendir Anna Kristín á að þjóðgarðurinn hafi ekki aðeins þýðingu fyrir náttúruvernd Íslendinga heldur heimsbyggðina alla vegna þeirra einstöku landsvæða sem tilheyra garðin- um. Garðurinn hafi því mikilvægt hlutverk út frá náttúruverndarsjónarmiðum, pólitík og uppbyggingu byggðanna í kring. „Auk þess sem gert er ráð fyrir því að þetta eigi eftir að auka gjaldeyristekjur á Íslandi verulega og við skulum bara vona að það gangi eftir,“ bætir hún við en samkvæmt upplýsingum sem finna má á vef umhverfisráðuneytisins er gert ráð fyrir því að áætlaðar auknar gjaldeyristekjur vegna Vatnajökulsþjóðgarðs telur fyrirtækið að verði á árinu 2012 um þrír til fjórir milljarðar króna. Miðað við að hvert ársstarf í ferðaþjónustu kosti um tíu milljónir á ári gæti því verið um að ræða 150 ný störf á svæðinu, en mun fleiri á landinu í heild. Þá telur fyrirtækið að gera megi ráð fyrir veruleg fleiri heimsóknum í þjóðgarðinn eftir 2012 þegar þjónustunet hans verður fullmótað og að áætlaðar viðbótargjaldeyristekjur af erlendum ferðamönnum vegna Vatnajökulsþjóð- garðs gætu numið að minnsta kosti 11 milljörð- um króna árið 2020. Í fyrsta skipti er þjóðgarði einnig ætlað að vera byggðaverkefni: Verndun þarf ekki að þýða dauða og djöful fyrir byggðir HVANNADALSHNJÚKUR Hæsti hluti Íslands, Hvannadalshnjúkur er innan Vatnajökulsþjóðgarðsins en um helmingur þjóðgarðsins er hulinn jökli. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM SVARTIFOSS Fossinn er einn fjölmargra þekktra náttúrufyrirbæra sem falla innan nýs Vatnajökulsþjóðgarðs. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM „Við erum að taka mjög stórt svæði til friðunar og náttúruverndar,“ segir Þórður H. Ólafsson, framkvæmdastjóri Vatna- jökulsþjóðgarðs. Hann segir Vatnajökulsþjóðgarð á margan hátt einstakan en það eitt hversu stór hann er muni án efa draga ferða- menn til landsins. „Það sem er nýtt við þennan þjóðgarð er rýmri aðgangur heldur en almennt hefur tíðkast með þjóðgarða á Íslandi. En það eru auðvitað ákveðnar reglur sem gilda.“ Þjóðgarðarnir í Skaftafelli og í Jökul- sárgljúfri falla innan hins nýja þjóðgarðs. Þá er hluti lands sem fellur innan þjóð- garðsins í einkaeigu og segir Þórður að á ákveðnum svæðum geti menn áfram stundað hefðbundinn landbúnað. „Við erum afar ánægð með að þessum áfanga skuli vera náð og erum spennt fyrir að takast á við ögrandi verkefni sem er að reka þjóðgarðinn. Það er gaman að taka þátt í stofnun þjóðgarðsins með heimamönnum og öðrum sem komið hafa að undibúningi með okkur.“ Gaman að taka þátt í stofnun stærsta þjóðgarðs í Evrópu: Afar ánægður með áfangann ÞÓRÐUR H. ÓLAFSSON Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri á Höfn í Hornafirði, segir reglurn- ar sem settar hafa verið um þjóðgarðinn taka tillit til atvinnustarfsemi sem hægt er að stunda í tengslum við garðinn auk þarfa útivistarfólks. „Það er mjög mikilvægt að þessir þættir fái pláss innan þjóð- garðsins svo hægt sé að hagnýta hann í tengslum við byggðauppbygginu,“ segir hann. Hjalti segir að ýmsa þætti eigi þó eftir að fullvinna eins og gengur í jafnviðamiklu verkefni og þessu. Nefnir hann sem dæmi þörf á því að ganga betur frá reglum í sam- skiptum við landeigendur á svæðinu. Auk þess telur hann að fleiri svæði ættu að falla undir svið garðsins og vonast hann til þess að þau verði hluti garðsins á næstu misserum, svo sem Langisjór auk fleiri jarða. Hjalti viðurkennir að það hafi orðið honum vonbrigði að ekki sé gert ráð fyrir því að framkvæmdastjóri garðsins hafi aðsetur á Höfn. „Niðurstaðan varð önnur en við vonuðumst eftir og við ákváðum að sætta okkur við það en setja ekki stein í götu þessa mikilvæga verk- efnis sem kemur til með að verða mikill aflvaki á svæðinu.“ Nýttur í tengslum við byggðauppbyggingu Vatnajökull Askja Herðu- breiðar- lindir Ásbyrgi Hálslón Tungu- fells- jökull Hofs- jökull Skaftafell Mörk Vatnajök- ulsþjóðgarðs Friðlýst svæði í umsjá Vatna- jökulsþjóð- garðs Akureyri Húsavík Höfn Lónsöræfi Bárðar- bunga „Þetta er einn stærsti sigur náttúruverndar á Íslandi,“ segir Árni Finnsson, formaður Náttúruverndarsamtaka á Íslandi, um stofnun Vatnajökulsþjóðgarðar. Einna mikilvægast þykir honum að með þjóðgarð- inum hefur því verið komið í kring að Jökulsá á Fjöll- um er vernduð frá upptökum til sjávar. Hann telur þó að verndarákvæðin mættu vera sterkari þegar kemur að reglum um umferð ökutækja um svæðið sem og hestaferða. „En maður verður að brosa á góðum degi og fagna þeim árangri sem næst. Þetta er jú mikill sigur fyrir þá sem börðust gegn Kárahnjúkavirkjun og Eyjabakkalóni en börðust fyrir verndun og friðlýsingu á þeim svæðum sem eru norðan Vatnajökuls,“ segir hann. Stórsigur í náttúruvernd ÁRNI FINNSSON HJALTI ÞÓR VIGNISSON
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.