Fréttablaðið - 07.06.2008, Blaðsíða 46
● heimili&hönnun
Húsgagnasmiðurinn Hans
J. Wegner (1915-2007) þykir
vera einn merkasti hönnuður
Dana, en á ferli sínum hlaut
hann ótal verðlaun fyrir verk
sín. Wegner starfaði sem að-
stoðarmaður Arne Jacob-
sen og Erik Moller á ár-
unum 1938-1942, en
saman unnu þeir
Jacobsen að hönn-
un ráðhússins í
Árósum. Hann
setti síðan á fót
sína eigin hönn-
unarstofu árið 1943 og vakti
fyrst verulega athygli fyrir
stól sem hann nefndi ein-
faldlega stólinn. Wegner náði
síðan heimsfrægð á sjöunda
áratugnum en
þegar hann lést
árið 2007 hafði
hann hann-
að yfir 500
stóla. Uxinn,
páfuglastól-
inn, óskabeins-
stólinn og þjónninn
eru á meðal þeirra
þekktustu, en eintök
af þeim eru til sýnis
á mörgum af helstu
söfnum heims.
Tímalaus hönnun
● Hans J. Wegner er talinn vera einn merkasti
hönnuður Dana.
Danski húsgagnasmiðurinn Hans J. Wegner hannaði þetta sófasett en hlutir
eftir hann eru til sýnis á mörgum af helstu söfnum veraldar.
Páfuglastóllinn er
á meðal þekktustu
verka Hans J.
Wegner.
„Fókusinn er á myndlistartengd-
ar útgáfur í hvaða formi sem er,“
segir Guðrún Benónýsdóttir, einn
verslunareigenda, um hugmynd-
ina á bak við bókabúðina
og útgáfuna Útúr-
dúr. Eins og nafn-
ið gefur til kynna
er verslunin ekki í
alfaraleið heldur er
hún á Njálsgötu 14.
Á bak við Útúrdúr
standa sex manns sem
allir eru tengdir menn-
ingu á einn eða annan
hátt, sumir eru myndlistarmenn,
aðrir tengjast kvikmyndagerð og
tónlist.
Í Útúrdúr er að finna allt mögu-
legt tengt myndlistarútgáfu svo
sem bækur, rit, bæklinga, teikni-
myndasögur og plaköt. Einnig er
þar að finna annars konar útgáfu-
verk, svokölluð bókverk og fjöl-
feldi, sem eru
mitt á milli þess
að vera grafík-
verk og bók. „Lítið
aðgengi hefur
verið að slíkum
verkum þó að þau
hafi lengi verið
til í listaheimin-
um. Myndlistarfólk
býr til þessa ákveðnu gerð bóka
sem eru mjög mismunandi sam-
settar, allt frá því að vera venjuleg,
bundin eða heftuð bók í að vera gler-
box með lausum blöðum eða hlut-
um í,“ segir Guðrún um verkin sem
gefin eru út í takmörkuðu upplagi
og handárituð af myndlistamann-
inum. „Í raun er bókformið bara
annað rými, annar möguleiki fyrir
myndlistarmenn til að vinna á. Hug-
myndin er að ná inn þessu efni sem
við vitum að liggur mikið til í skúff-
um hjá myndlistarmönnum. Það
hefur alltaf verið gróska í þessari
útgáfu sem finnur sér ekki stað inni
í venjulegum bókaverslunum þar
sem fjöldaframleiðslu er krafist.“
En Útúrdúr selur ekki aðeins
bókverk heldur gefur einnig út
verk í samvinnu við myndlistar-
menn. „Okkur langar til að búa til
innranet við aðra starfandi aðila í
útgáfum og bókabúðum. Við erum í
samvinnu við bókabúð í Noregi sem
heitir Torpedo, við seljum bækur
sem þau gefa út og þau eru með
bækur sem við erum að gefa út,“
segir Guðrún en Útúrdúr á einnig í
samstarfi við frumkvöðulinn í þess-
um geira, Boekie Woekie í Amster-
dam, og verslun í New York.
Þrátt fyrir að vera aðeins nokk-
urra mánaða gömul gengur Útúr-
dúr vel. Eigendur hafa verið dugleg-
ir að kynna verslunina með ýmiss
konar uppákomum svo sem útgáfu-
veislum, tónleikum og upplestrum.
„Búðin er mjög sérhæfð en kúnna-
hópurinn fer stöðugt stækkandi,”
segir Guðrún. - mþþ
Bókformið er annars konar rými
● Útúrdúr býður upp á allt mögulegt tengt myndlistarútgáfu. Þar er hægt að kaupa bækur, tímarit, plaköt, bókverk og fjölfeldi ásamt efni sem Útúrdúr
gefur út í samvinnu við myndlistarmenn.
Í búðinni er meðal annars að finna ýmiss
konar myndlistarbækur.
Útúrdúr er að finna í húsi á Njálsgötu 14.
● HÖNNUN Þetta litríka ljós er eftir breska
hönnuðinn Stuart Haygarth, sem hannar ljós
úr hlutum sem hann finnur úti í náttúrunni. Frá
árinu 2004 hefur hann safnað hlutum og sett þá
saman á nýjan hátt, sem breytir alveg fyrri merk-
ingu þeirra. Eru ljósin meðal annars búin til úr
hlutum sem rekur á breskar fjörur.
Að búðinni standa sex manns, Sigurður Finnsson og Guðrún Benónýsdóttir sem eru
á myndinni, ásamt Pétri Má Gunnarssyni, Þórunni Hafstað, Auði Jörundsdóttur og
Hildigunni Birgisdóttur. FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA
Bæjarhrauni 10 - Hafnarfirði - Sími 520 7500 - www.hraunhamar.is
Höfum fengið í einkasölu á þessum einstaka stað, glæsilegt 305 fm einbýli með
innbyggðum bílskúr. Eignin er glæsilega hönnuð, með glæsilegum stórum stof-
um, nýstandsett eldhús, glæsilegt útsýni af tveimur svölum. Mjög góð auka íbúð á
jarðhæð með sér inngangi. Eign í toppstandi utan sem innan. Einstök staðsetning.
Verðtilboð. Upplýsingar gefur Hilmar sölumaður í síma 892-9694 eða á skrifstofu
Hraunhamars.
J ó f r í ð a r s t a ð a v e g u r
7. JÚNÍ 2008 LAUGARDAGUR10