Fréttablaðið - 07.06.2008, Blaðsíða 38
HEIMILISHALD
RUT HERMANNSDÓTTIR
● Forsíðumynd:Stefán Karlsson tók mynd á heimili
Daggar Hjaltalín Útgáfufélag: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð
24, 105 Reykjavík, s. 512 5000 Ritstjórar: Roald Eyvinds-
son roald@frettabladid.is, Emilía Örlygsdóttir emilia@
frettabladid.is Auglýsingar: Ámundi Ámundason s. 517
5724 Útlitshönnuður: Kristín Agnarsdóttir kristina@
frettabladid.is.
● heimili&hönnun
S
umarið er að birtast í bænum. Geislar sólar stinga sér lúmskt
framhjá myrkvunargluggatjöldunum og ég anda léttar. Enda
dauðleiðinlegur vetur að baki. Allt er eintóm rútína á veturna;
Vinna, heim, húsverk, sinna barni, sofa. Nístingskuldi úti, sami
sófinn bíður eftir mér og ég er búin að lesa allar bækurnar upp til
agna, sjá allar bíómyndirnar í hillunni og veit nákvæmlega hvað er
í eldhússkápunum. Ekkert kemur á óvart. Þrátt fyrir að hægt sé að
krydda tilveruna með bíóferðum, rómantískum stundum við Gróttu
með miðstöðina á fullu, barhoppi og heimsóknum á sófann til mömmu
úti í sveit. Hversdagsleikinn er samt stundum að murka úr mér líftór-
una. Svona stundum.
Á slíkum stundum fer ég að velta fyrir mér hvernig aðrir hafi það
heima hjá sér. Hvort þeim leiðist svona eins og mér, af og til. Jafnvel
stend ég sjálfa mig að því að góna inn um glugga hjá nágrönnum sem
hafa ekki haft fyrir því að draga fyrir. Skoða
plöntur í misjöfnum blóma, flygil sem stundum
fær að hljóma, fólk í kaffiboði, hressar konur
í heimaleikfimi og krakka að leik. Auðvit-
að er þetta allt saman í gangi hjá mér líka. Þú
veist, hér er stöðugt rennerí af yndislegu fólki
í kaffi, og ég dansa gjarnan við Wham snemma
að morgni til að koma skapinu í lag og krakk-
arnir eru oftast upp um alla veggi. Hins vegar
eru sögurnar sem fæðast í hausnum á mér við
gluggagónið hin besta skemmtun. Eiginlega
svo skemmtilegar að mig langar í heimsókn til
þeirra til að gá hvort þær eigi sér stoð í raun-
veruleikanum.
Hins vegar veit ég að Íslendingar eru ekki
þær manngerðir sem brosa og hella upp á
þegar ókunnug kona birtist á tröppunum án
þess að gera boð á undan sér. Í besta falli held-
ur fólk að ég sé að fara húsavillt, í versta
falli frá einhverjum sértrúarsöfnuði að boða
sannleikann. Samt, af hverju er ekki hægt að
droppa í heimsókn til ókunnugra? Eða bara
hreinlega leigja annarra manna íbúð eða skiptast á heimilum yfir
helgi eða á annars dauðleiðinlegum miðvikudegi? Bara eins og að
fara í sumarbústað eða til Köben. Meira að segja væri hægt skipt-
ast á heimilisþrifum, því ég hef heyrt útundan mér að fleirum en mér
finnist skárra að þrífa annars staðar en heima. Eins undarlega og
það hljómar. Hversdagsleikinn tæki á sig allt aðra mynd í svartasta
skammdeginu heima hjá gamalli piparjónku vestur í bæ. Þar sem ég
get lesið bækurnar hennar, hlustað á grammófónplötur frá gamalli
tíð. Jafnvel skoðað ballkjóla með langa sögu að baki. Rekist á leyndar-
mál sem hafa ekki litið dagsins ljós. Síðan get ég í staðinn opinberað
rykið í eldhússkápunum og jafnvel skilið eftir ástarbréf unglingsár-
anna á glámbekk, ef vel liggur á mér. Já, af hverju ekki? Nú eða bara
hringja í eitthvert númer út í bláinn, bjóða þeim sem svarar í mat og
gá hvað gerist.
Alla vega. Ef ég banka upp á einn góðan veðurdag með ryksuguna
í fanginu, þá veistu að mér leiðist og þá er eins gott fyrir þig að hella
upp á og bjóða mér í bæinn. Ég meina, hver vill ekki láta ryksuga
fyrir sig í skiptum fyrir gömul ástarbréf?
Brynja Þorgeirsdóttir, sem flest-
ir kannast við úr Kastljósinu, býr
á Álftanesi og kann því vel. Henni
líður sérstaklega vel í glugga-
horni á þriðju hæð með fallegu
útsýni.
„Glugginn snýr bæði í suður
og austur og er sjónsviðið mjög
vítt. Í horninu er bjart og nota-
legt og þar sit ég oft og spái í lífið
og tilveruna. Útsýnið er magn-
að og ég sé yfir Álftanes, Bessa-
staði, Reykjavík, Garðabæ, Hafn-
arfjörð og langt út á sjó. Þá er
fjallasýnin allt í kring óviðjafn-
anleg,“ lýsir Brynja.
Hún segir að börn sæki mikið í
hornið og telur það vera til marks
um að þar sé gott að vera. „Þau
sitja þarna í gluggakistunni og
spekúlera í umhverfinu. Þarna
sést yfir leikskólann, skólann
og skólalóðina auk þess sem við
höfum verið með hross í haga
skammt frá. Ég sit stundum í
glugganum og fylgist með þeim
á meðan ég drekk morgunkaffið
mitt,“ segir Brynja.
Í horninu er gömul verk-
færa kista sem langafi Brynju,
Þorgeir Magnússon, smíðaði.
Hún er notuð sem stofuborð og
í henni geymir Brynja verk-
færi sín og finnst ekkert athuga-
vert við að hafa þau í stofunni.
„Þau eru þarna til heiðurs lang-
afa ásamt ýmsu öðru,“ segir hún
og hlær. Á sjónvarpsskenknum
vekur síðan ólífugrænn lampi
eftirtekt. „Hann er úr IKEA en
ég hef lengi verið mjög hrifin af
þessum lit,“ upplýsir Brynja.
Fyrir utan útsýnisgluggann
er líflegt fuglalíf sem fer ekki
framhjá heimilisfólki. „Stund-
um fljúga fuglarnir listflug fyrir
okkur. Þá stefna þeir beint á gler-
ið en taka svo snarpa beygju frá
því rétt við andlitið á manni.“
Brynja segir fuglana eiga það til
að skíta á rúðurnar og viðurkenn-
ir að það sé ekki eins vinsælt og
listflugið.
Brynja mun von bráðar þurfa
að segja skilið við gluggahornið
en von er á erfingja í vetur. Hún
ætlar að selja og stækka við sig í
sumar. „Ég kem til með að sakna
útsýnisins mest enda aldrei haft
viðlíka fjallasýn.“ Brynja ætlar
þó ekki að yfirgefa Álftanesið
enda alin þar upp.
- ve
Dásamleg fjallasýn
● Sjónvarpskonan geðþekka Brynja Þorgeirsdóttir býr á Álftanesi. Þar nýtur hún útsýnis-
ins yfir nærliggjandi bæjarfélög og fjallgarðana í kring út um stofuglugga á þriðju hæð.
Brynja nýtur útsýnisins í eftirlætis horninu sínu. Verkfærakistu langafa síns notar hún fyrir stofuborð. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
● HÖNNUN Branex hefur sett uppblásin hús-
gögn eftir Quasar Kahn aftur á markað. Húsgögn-
in tilheyra Quasar-línunni sem er upprunalega frá
um 1970 og naut mikilla vinsælda hjá hippunum,
sem töldu þau vera hefðbundin og traust hús-
gögn. Það er einmitt talinn helsti kostur hús-
gagnanna auk þess hversu auðvelt er að ferðast
með þau. Sjá www.madeindesign.com.
Luktar dyr nágrannans
Jafnvel stend ég
sjálfa mig að því að
góna inn um
glugga hjá
nágrönnum sem
hafa ekki haft fyrir
því að draga fyrir.
Skoða plöntur í
misjöfnum blóma,
flygil sem stundum
fær að hljóma, fólk í
kaffiboði, hressar
konur í heimaleik-
fimi og krakka að
leik.
7. JÚNÍ 2008 LAUGARDAGUR2