Fréttablaðið - 07.06.2008, Blaðsíða 82
54 7. júní 2008 LAUGARDAGUR
FÓTBOLTI Evrópumót landsliða
hefst í dag með opnunarleik Sviss-
lendinga og Tékka í Basel og það
er óhætt að segja að mikil eftir-
vænting sé í knattspyrnuáhuga-
mönnum eins og jafnan þegar svo
stutt er í stórmót. Þjálfararnir í
Landsbankadeild karla hafa í nógu
að snúast við að hugsa um sín lið
en þeir gáfu sér þó tíma til þess að
svara nokkrum spurningum fyrir
Fréttablaðið um EM 2008.
Það má sjá á svörum þjálfar-
anna að það eru margar þjóðir
sem hafa að þeirra mati getu og
burði til þess að fara alla leið og
fagna Evrópumeistaratitlinum á
Ernst Happel-leikvanginum í Vín
29. júní næstkomandi.
Það verður rosaleg spenna í
kringum alla leiki í c-riðlinum sem
er sannkallaður dauðariðill. Þar
eru heimsmeistarar Ítala, silfurlið
Frakka frá síðustu HM og svo Hol-
lendingar sem eru öll Evrópu-
meistarakandidatar að mati
íslensku þjálfaranna. Rúmenar
eru síðan fjórða liðið en þeir stóðu
sig mjög vel í undankeppninni,
unnu sinn riðil og eru með á stór-
móti í fyrsta sinn síðan árið 2000.
Það bætir síðan enn meira á
spennuna að Frakkar og Ítalar
voru saman í riðli í undankeppn-
inni sem og Hollendingar og Rúm-
enar og þá er enginn búinn að
gleyma úrslitaleik HM fyrir
tveimur árum þar sem Ítalar unnu
Frakka í vítakeppni. Allir spá
þjálfararnir að Rúmenía sitji eftir
eftir riðlakeppnina en Holland
fékk flest atkvæði af hinum þrem-
ur eða tveimur fleiri en Ítalar.
Grikkir komu mjög á óvart með
því að vinna Evrópumeistaratitil-
inn fyrir fjórum árum en þjálfar-
ar Landsbankadeildarinnar hafa
ekki mikla trú á þeim í ár. Aðeins
einn þjálfari telur að Grikkir kom-
ist upp úr riðlinum þrátt fyrir að
Grikkir hafi náð flestum stigum í
undankeppninni. Það býst við eng-
inn við framhaldi af Öskubusku-
ævintýrinu frá því í Portúgal fyrir
fjórum árum.
Svíar og Rússar gætu sett sinn
svip á keppnina ef marka má svör
þjálfaranna því flestir spá því að
þessar þjóðir komi mest á óvart í
keppninni. Rússar fá þó fleiri
atkvæði og það væri þá ekki í
fyrsta sinn sem lið Guus Hiddink
slægi í gegn á stórmóti.
Þjálfararnir spá samtals átta
þjóðum af sextán inn í úrslitaleik
keppninnar en Þjóðverjar og
Portúgalar fá þar flest atkvæði.
Lokaspurningin og sú stærsta
var síðan um hvaða þjóð yrði Evr-
ópumeistari. Þjálfararnir hafa
mikla trú á Þýskalandi í ár. Þjóð-
verjum hefur ekki gengið vel á
síðustu tveimur Evrópukeppnum
(síðasti sigurleikur Þjóðverja í
lokakeppni EM er úrslitaleikurinn
1996) en þjálfararnir telja að nú
verði breyting á. Þýskaland fékk
þar fjögur atkvæði, Hollendingar
komu næstir með þrjú atkvæði og
Spánverjar fá síðan atkvæði frá
tveimur þjálfurum. ooj@frettabladid.is
Þjóðverjar verða Evrópumeistarar 2008
Fréttablaðið fékk þjálfarana tólf í Landsbankadeild karla til þess að spá fyrir um þróun mála á Evrópumótinu í knattspyrnu í Sviss og
Austurríki sem hefst í dag. Þjálfarnir spá sex þjóðum titlinum og flestir telja þeir að rússneska liðið komi mest á óvart.
TÓLF ÁR SÍÐAN Þýskaland varð síðast Evrópumeistari árið 1996 en hefur ekki unnið leik í úrslitakeppni EM síðan. NORDICPHOTOS/GETTY
HVERJIR VERÐA EVRÓPU-
MEISTARAR?
Þýskaland 4 atkvæði
Holland 3 atkvæði
Spánn 2 atkvæði
Ítalía 1 atkvæði
Frakkland 1 atkvæði
Portúgal 1 atkvæði
HVERJIR VERÐA EVRÓPU-
MEISTARAR 2008:
Heimir Guðjónsson, FH Spánn
Kristján Guðmundss., Kef. Þýskaland
Ásmundur Arnarsson, Fjölni Ítalía
Þorvaldur Örlygsson, Fram Portúgal
Leifur Garðarsson, Fylki Holland
Ólafur H. Kristjánss., Breiðab. Spánn
Gunnar Oddss., Þróttur R. Þýskaland
Logi Ólafsson, KR Frakkland
Willum Þór Þórsson, Val Holland
Guðjón Þórðarson, ÍA Þýskaland
Milan S. Jankovic, Grindav. Holland
Gunnar Guðmundsson, HK Þýskaland
HVAÐA LIÐ KEMUR MEST
Á ÓVART Á EM 2008?
Rússland 5 atkvæði
Svíþjóð 3 atkvæði
Portúgal 1 atkvæði
Tyrkland 1 atkvæði
Sviss 1 atkvæði
Tékkland 1 atkvæði
Pólland 1 atkvæði
HVAÐA ÞJÓÐIR SITJA EFTIR
Í DAUÐARIÐLINUM?
Rúmenía 12 atkvæði
Holland 6 atkvæði
Ítalía 4 atkvæði
Frakkland 2 atkvæði
HVERNIG GENGUR EM-
MEISTURUM GRIKKJA?
Sitja eftir í riðlakeppni 11 atkvæði
Komast í átta liða úrslit 1 atkvæði
HVERJIR KOMAST Í ÚR-
SLITALEIKINN?
Þýskaland 7 atkvæði
Portúgal 4 atkvæði
Ítalía 3 atkvæði
Spánn 3 atkvæði
Frakkland 3 atkvæði
Holland 3 atkvæði
Tékkland 1 atkvæði
Rússland 1 atkvæði
www.toyota.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
T
O
Y
4
25
90
0
5/
08
Við munum kynna nýjan Dyna vörubíl, Yaris með vsk.breytingu,
ásamt Hiace og Hilux.
Við bjóðum upp á 3 mismunandi verkfærapakka frá DeWALT
með hverjum seldum bíl að verðmæti 230.000 kr.
Toyota Kópavogi
Nýbýlavegi 6
Kópavogur
Sími: 570-5070
Toyota Kópavogi opnar nýja aukahlutaverslun og glæsilegan sýningarsal fyrir atvinnubíla.