Fréttablaðið - 07.06.2008, Page 64

Fréttablaðið - 07.06.2008, Page 64
36 7. júní 2008 LAUGARDAGUR TÉKKLAND Kostir: Þeir sem koma til með að tékka á leikjum Tékka í keppninni verða að koma sér í réttan gír. Það þýðir bjór og aftur bjór. Tékkar eru heimsmeistarar í bjórdrykkju, leika oft og tíðum stórskemmtilega knattspyrnu og kunna vel að meta Frank Zappa. Gallar: Tékkar eiga meira en nóg af fínum leikmönnum, en brestur gjarnan þor á ögurstundu. Kannski væri ráð að endurskoða hártísku landans. Margir þeirra virðast ekki átta sig á því að níundi áratugurinn er liðinn, og hvítir sokkar passa illa við jakkaföt. A-RIÐILL AUSTURRÍKI Kostir: Gestgjafahlutverkið gæti mögulega komið þeim langt. Með öguðum og leiðin- legum varnarleik gætu þeir orðið Grikkland þessarar keppni. Ekki væri úr vegi að skella fimmtu sinfóníu Mozarts á fóninn í hálfleik og maula Mozart-kúlur með. Nú eða Falco-kúlur, ef þær eru þá til. Gallar: Fyrirfram hefur maður litla trú á þessu liði, sem hefur ekki borið sitt barr síðan sítt-að-aftan goðið Tony Polster lagði skóna á hilluna. Auk þess er þetta þjóðin sem gat af sér vöðvatröll- ið Schwarzenegger. Conan einhver? B-RIÐILL KRÓATÍA Kostir: Króatar losuðu EM við Englendinga, og eru margir þeim þakklátir fyrir. Auk þess verða ótal margir Íslendingar í sumarfríi í Króatíu í sumar. Þeir geta tekið þátt í stemningunni, íklæddir flottustu búningunum sem eru til sýnis á mótinu. Gallar: Króatar losuðu EM við Englendinga, og hugsa þeim margir þegjandi þörfina fyrir. Liðið hefur ekki náð sömu hæðum og það gerði á HM 1998, þegar leikmenn eins og Suker og Boban vöktu hrifningu alls heimsins. Eftirvænt- ingum stillt í hóf. PORTÚGAL Kostir: Gríðarlega sigurstranglegt lið. Hefur innan- borðs smjördrenginn Cristiano Ronaldo, sem margir telja fallegasta og besta knattspyrnumann heims. Hafa enn ekki unnið Eurovisin eftir 126 ára þátttöku, sem lætur Íslendinga líta vel út í samanburði. Gallar: Cristiano Ronaldo, sem margir segja að sé ófríðasti og lélegasti knattspyrnumaður heims. Leikmenn eru olíubornir úr hófi fram og þjást margir af svæsnum tilfellum af brauðfótum. Það er aldrei gaman að styðja lið sem hefur rangt við. SVISS Kostir: Gestgjafar eiga til að koma óvart og fara langt á stemningu áhorfenda. Svisslendingar komust í sextán liða úrslit á HM 2006 með sterkum varn- arleik og ættu að geta náð langt í sumar. Gaman væri að gæða sér á ostafondúi yfir leikjum. Gallar: Svisslendingar eru frægir fyrir tregðu til að taka afstöðu til ýmissa hluta. Að sama skapi reynist öðrum þjóðum erfitt að taka afstöðu til Sviss. Þeir eru ekki beint lítilmagni í keppninni, en eiga samt engar stórstjörnur. Erfitt lið að styðja. TYRKLAND Kostir: Tyrkjum er dauðans alvara varðandi knattspyrnu. Þeir blása á allt tal um „fair play“ og spila til sigurs, sama hvað það kostar. Tyrkjum er líka dauðans alvara varðandi gott kebab, sem er eins og himnasending fyrir hinn dæmigerða fótboltaáhugamann. Gallar: Harðneskjuleg ímynd tyrkneska liðsins hefur aflað þeim margra óvildarmanna. Íslendingar hafa líka átt í stökustu vandræðum með að fyrirgefa Tyrkjaránið á Halim Al, þótt langt sé liðið síðan og Tyrkir hafi þar hvergi komið nærri heldur Alsírbúar. Vandinn að velja sér lið EM í knattspyrnu hefst í dag. Englendingar og Danir eru ekki meðal keppnisþjóða að þessu sinni. Það þýðir að margir neyð- ast til að velja sér nýtt lið til að styðja í knattspyrnuveislunni sem í vændum er. Hvaða landslið skyldu vera þess verðugust að njóta stuðnings íslenskra knattspyrnuunnenda í sumar? Hverjir eru helstu kostir og gallar þess að halda með Frakklandi? En Rúmeníu? Kjartan Guðmundsson fer yfir málin á hreinskilinn og hlutlausan hátt. PÓLLAND Kostir: Stærsti kosturinn við að styðja Pólverja er að sjálfsögðu sterk tengsl þjóðarinnar við Ísland. Ef Pólverjar fara langt í keppninni er ljóst að enginn hér á landi verður hlunnfarinn um fagnaðarlæti. Svo eiga þeir hönk upp í bakið á okkur fyrir Prins Póló. Gallar: Pólska liðið var stórgott á áttunda áratugnum en er alls ekki líklegt til afreka um þessar mundir. Þar að auki gáfu Pólverjar okkur ekkert stig í Eurovision, þrátt fyrir sterku tengslin. Svo var pólskur Fiat drasl. ÞÝSKALAND Kostir: Stuðningur við þýska stálið hefur þann kost að það er alltaf líklegt að það sigri, burtséð frá leikmönnum og ástandi liðsins hverju sinni. Skipulagið og seiglan höfðar mjög til margra, til dæmis þeirra sem þykir Phil Collins merkur músíkant. Gallar: Enski framherjinn Gary Lineker sagði eitt sinn að knattspyrna væri einfaldur leikur; bolti, mörk, 22 leikmenn og Þýskaland vinnur. Margir hafa ekki fyrirgefið Þjóðverj- um glæpi sína gegn knattspyrnu á síðustu áratugum. Ekki gleyma grínistan- um Otto. Framhald á næstu opnu

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.