Fréttablaðið - 07.06.2008, Blaðsíða 6
6 7. júní 2008 LAUGARDAGUR
SLYS Drengurinn sem brenndist í
sprengingu í húsbíl í Grindavík á
föstudagskvöldið í síðustu viku er
á batavegi að sögn læknis. Hann
var útskrifaður af gjörgæsludeild
í gær og færður á barnadeild
Landspítalans.
Drengurinn er á þriðja ári og
var með afa sínum í húsbílnum
þegar slysið varð. Hann brenndist
illa á höfði og höndum. Afi hans,
maður á sjötugsaldri, slasaðist
einnig en ekki alvarlega. - ovd
Gassprengingin í Grindavík:
Drengurinn
á batavegi
BAUGSMÁL „Það virðist vera afar
torsótt að ná fram sakfellingu í
flóknum efnahagsbrotamálum,“
segir Sigurður Tómas Magnús-
son, settur saksóknari í Baugs-
málinu.
Í dómi Hæstaréttar í Baugs-
málinu, sem féll á fimmtudag,
gagnrýnir dómurinn langa máls-
meðferð. Þar segir að lögum um
hraða meðferð sakamáls hafi
„ekki verið fylgt sem skyldi“. Er
þar aðallega vísað til þess að tæp
þrjú ár liðu frá því að rannsókn
lögreglu hófst þar til ákæra var
gefin út.
„Þetta eru flókin og snúin mál,
en það má alltaf deila um það
hvort ekki megi flýta þeim meira.
Það væri vissulega æskilegt, ég
tek undir það,“ segir Sigurður.
Hann segir dóm Hæstaréttar
sýna að erfitt sé að ná fram sak-
fellingu í umfangsmiklum efna-
hagsbrotamálum.
„Ég tel að það kunni að verða
stefnan í framtíðinni að ákæra
eingöngu fyrir örfá atriði. Það
virðist vera að réttarkerfið ráði
ekki vel við svona mörg og flókin
sakarefni,“ segir Sigurður
Tómas.
Dómarar hafa, lögum sam-
kvæmt, þrjár vikur til að kveða
upp dóma. Þá eru ákvæði laga
um munnlega sönnunarfærslu,
þar sem engar greinargerðir séu
lagðar fram fyrr en í Hæstarétti,
ekki til þess fallnar að gera
ákæruvaldinu auðveldara fyrir
við saksókn flókinna efnahags-
brotamála, segir Sigurður
Tómas.
Greinargerðir saksóknara og
verjenda voru gagnrýndar í dómi
Hæstaréttar. Greinargerð og
málflutningsyfirlit saksóknara
hafi verið samtals 193 síður, og
tveir verjenda hafi skilað 109
síðna greinargerð.
Í dómi Hæstaréttar segir að
þessi gögn hafi að geyma munn-
legan málflutning, og séu því í
andstöðu við ákvæði laga um
munnlegan málflutning.
brjann@frettabladid.is
Sakfelling í flóknum
málum afar torsótt
Hæstiréttur gagnrýnir langa málsmeðferð í Baugsmálinu og segir lögum ekki
hafa verið fylgt. Saksóknari segir þessa áherslu réttarins geta orðið til þess að í
framtíðinni verði aðeins ákært fyrir örfá atriði í stórum efnahagsbrotamálum.
DÓMUR FALLINN Sigurður Tómas Magnússon, settur ríkissaksóknari í Baugsmálinu,
sagðist feginn að málinu væri lokið með dómi Hæstaréttar, en telur dóminn sýna
hversu erfitt sé að ná fram sakfellingu í umfangsmiklum efnahagsbrotamálum.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ÁKALL HÆSTARÉTTAR Á MILLIDÓMSTIG
Hæstiréttur segir í umfjöllun um
níu ákæruliði af átján að ekki sé
hægt að endurskoða sýknudóm
héraðsdóms yfir Jóni Ásgeiri, þar
sem dómurinn hafi ekki heimild til
þess að endurmeta framburð vitna.
Dómurinn metur gögn málsins ekki
sjálfstætt, heldur telur mat á þeim
háð framburði vitna um gögnin fyrir
héraðsdómi.
„Ég tel að Hæstiréttur sé með
þessu að segja að [dómararnir]
séu ekki sáttir við niðurstöðuna.
Þeir telja sig ekki geta breytt henni
vegna þess að þeir telja að Hæsti-
réttur geti ekki endurskoðað [niður-
stöðuna] vegna þess að munnlegur
málflutningur fléttast þar inn í,“ segir
Sigurður Tómas Magnússon, settur
saksóknari.
„Ég tel þetta vera ákall Hæsta-
réttar um að það þurfi millidómstig.
Þeir treysta sér ekki til að end-
urmeta sönnun, ákæruvaldinu í
hag,“ segir Sigurður Tómas. „Þetta
er staða sem er búin að liggja fyrir
lengi. Dómskerfi okkar er ekki full-
nægjandi lengur.“
ÁSTRALÍA, AP Joel Fitzgibbon,
varnarmálaráðherra Ástralíu,
segir að þörf sé á 10.000 her-
mönnum til viðbótar til Afganist-
ans ef unnt á að reynast að
knésetja skæruliða talibana. Að
hans sögn er tregða Evrópuríkj-
anna til að leggja til fleiri
hermenn líkleg til að verða til
þess að Bandaríkjaher verði að
axla þetta verkefni.
Í viðtali við AP sagði Fitzgibb-
on að baráttan gegn talibönum
myndi sækjast of seint með þeim
takmarkaða liðsafla sem ISAF-
fjölþjóðaliðið hefur nú á að skipa.
Þúsundir hermanna til viðbótar
þyrfti til að unnt yrði að hrekja
skæruliða af stærri landsvæðum
og halda stjórn á þeim.
Ástralar eru sú þjóð utan NATO
sem leggur ISAF til flesta
hermenn. - aa
Hernaðurinn í Afganistan:
Segir mikils
liðsauka þörf
JOEL FITZGIBBON Varnarmálaráðherra
Ástralíu talar í Canberra í gær. Angus
Houston, yfirmaður Ástralíuhers, í baksýn.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Konungshöllin verður safn
Nýja ríkisstjórnin í Nepal hefur ákveð-
ið að konungshöllin í Ghorka verði
gerð að safni fyrir almenning. Gyan-
endra konungi var formlega steypt af
stóli hinn 28. maí, þegar landið varð
lýðveldi. Honum verður þó leyft að
búa áfram í sumarhöll sinni nærri
Katmandú.
NEPAL
Tröllatunguheiði opnuð
Tröllatunguheiði hefur verið opnuð
fyrir umferð, en fyrir nokkrum dögum
var umferð opnuð um Steinadals-
heiði og Þorskafjarðarheiði. Þessir þrír
fjölförnu sumarvegir á milli Reykhóla-
sveitar og Strandabyggðar eru því allir
orðnir færir.
VEGAGERÐ
BERLÍN, AP Dmítrí Medvedev, for-
seti Rússlands, lýsti í opinberri
heimsókn í Berlín áhyggjum yfir
því hvernig viðhorf Evrópubúa í
garð Rússlands virtist vera að þró-
ast nú á tímum aukinnar misklíðar
milli valdhafa í Moskvu og Vestur-
landa.
Heimsóknin til Þýskalands er
fyrsta ferð Medvedevs til Vestur-
landa eftir að hann tók við emb-
ætti af Vladimír Pútín fyrir tæpum
mánuði. Málflutningur hans þykir
vera mjög í anda fyrirrennarans.
„Það veldur okkur áhyggjum að
sjá hvernig gagnkvæmur skiln-
ingur í Evrópu-Atlantshafsmálum
hefur verið að þrengjast,“ sagði
Medvedev á blaðamannafundi
eftir viðræður við Angelu Merkel
kanslara. Hann lagði þó áherslu á
að Rússar ættu góð og náin tengsl
við Þjóðverja og að ákvörðun hans
um að velja Berlín sem fyrstu höf-
uðborgina sem hann heimsækir í
Evrópu endurspegla forgangsröð-
un Rússlandsstjórnar. Medvedev
varaði auk þess eindregið við frek-
ari stækkun NATO til austurs.
Fyrir fundinn hafði Merkel látið
svo ummælt að þörf væri á að
útvíkka og styrkja hin „nánu, vin-
samlegu og mikilvægu“ tengsl
Þýskalands og Rússlands, en Rúss-
ar sjá Þýskalandi og reyndar
stærstum hluta Evrópu fyrir
megni jarðgasþarfar sinnar.
Þýskaland og ýmis önnur Evr-
ópulönd hafa þó átt í erjum við
Rússa að undanförnu. Ítrekaðar
atrennur að því að endurnýja sam-
starfssamning Evrópusambands-
ins við Rússland hafa mistekist.
- aa
Nýr forseti Rússlands í fyrstu heimsókn sinni til Vesturlanda eftir embættistöku:
Áhyggjur af viðhorfsþróun
MIKILVÆG TENGSL Medvedev og Merkel
hlýða á þjóðsöngva landa sinna í Berlín.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur
mildað dóm yfir erlendum manni
sem réðst með barsmíðum á
lögreglumann með þeim afleiðing-
um að hann kjálkabrotnaði og
hlaut sár. Atvikið gerðist í
fangaklefa mannsins. Hann hafði
þá verið handtekinn vegna gruns
um innbrot í bíl. Hann reyndist
mjög ölvaður þegar lögregla tók
hann og þá strax mjög ógnandi í
framkomu.
Héraðsdómur hafði dæmt
árásarmanninn í tíu mánaða
óskilorðsbundið fangelsi. Hæsti-
rétttur stytti refsinguna í átta
mánuði, þar af fimm mánuði
skilorðsbundna. - jss
Hæstiréttur:
Refsing árásar-
manns milduð
Hver sigraði í Baugsmálinu?
Ákæruvaldið 20,9%
Baugsmenn 79,1%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Á að slaka á reglum um veðmál
hér á landi?
Segðu skoðun þína á vísir.is
HEILBRIGÐISMÁL „Það var samþykkt
að gefa út starfsleyfi til tólf ára,“
segir Elsa Ingjaldsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits
Suðurlands, um starfsleyfi fisk-
þurrkunar Lýsis í Þorlákshöfn.
Starfsleyfið, ásamt innsendum
athugasemdum var tekið fyrir á
fundi Heilbrigðsnefndar Suður-
lands á föstudag.
Sjö athugasemdir bárust heil-
brigðiseftirlitinu vegna starfsleyf-
isins en frestur til athugasemda
rann út 29. maí síðastliðinn. Elsa
segir athugasemdirnar þær sömu
og þegar starfsleyfið var síðast aug-
lýst og almennt sé því mótmælt að
starfsleyfið verði gefið út.
Hún segir þetta ákvörðun nefnd-
arinnar en ef einhver þeirra sem
gerðu athugasemdir óski nánari
skýringa þá verði við því brugðist.
Sveitarfélagið Ölfus hefur ekki
veitt Lýsi leyfi til uppsetningar
hreinsiturna við verksmiðjuna og
vísað til þess að breyta þurfi skipu-
lagi. Elsa segir turnana inni í starfs-
leyfisskilyrðum og það sé skilning-
ur nefndarinnar að ef ekki fáist
tilskilin leyfi til uppsetningar þeirra
falli ákvæðið um sjálft sig. Það
standi því upp á sveitarfélagið að
veita leyfið.
„Ég bara trúi þessu ekki,“ segir
Ólafur Áki Ragnarsson, bæjarstjóri
í Ölfusi. Hann segir umhverfisráð-
herra og Umhverfisstofnun hafa
lofað að skoða málið. „Ég trúi ekki
að menn séu svona ósvífnir. Það
getur ekki verið að hægt sé að
leggja þetta á fólk í Þorlákshöfn, að
rétturinn til að vera til, sé einskis
metinn.“ - ovd
Heilbrigðisnefnd Suðurlands veitir fiskþurrkun Lýsis í Þorlákshöfn starfsleyfi:
Lýsi fær starfsleyfi til tólf ára
FISKÞURRKUN LÝSIS Í ÞORLÁKSHÖFN
Mikill styr hefur staðið um rekstur fisk-
þurrkunar Lýsis í Þorlákshöfn. MYND/GKS
KJÖRKASSINN