Fréttablaðið - 07.06.2008, Blaðsíða 22
7. júní 2008 LAUGARDAGUR
S
jóminja-
safnið í
Reykja-
vík,
Víkin,
var enduropnað
síðustu helgi eftir
gagngerar
breytingar og
stækkun á
sýningarrými
þess. Mikil aðsókn
var í safnið.
Sigrún Magnús-
dóttir, forstöðu-
maður þess, átti
veg og vanda af
þeim. Sigrún er
maður vikunnar.
Sigrún fæddist í
Reykjavík í júní
1944. Foreldrar
hennar voru
Sólveig Vilhjálms-
dóttir, húsmóðir,
og Magnús
Jónsson Scheving,
sjómaður. Þau
kynntust í síldinni
á Siglufirði.
Sigrún fékk ekki
að vinna í síld á
unglingsárum
sínum, en hefur
alltaf liðið vel í
námunda við
hafið. Hún á einn
bróður, Eyjólf,
sem er kennari.
Hún er gift Páli
Péturssyni,
fyrrverandi
þingmanni
Framsóknar-
flokksins og
félagsmálaráð-
herra. Hún var
áður gift Kára
Einarssyni,
verkfræðingi.
Hún á tvær
dætur: Sólveigu
Klöru og Ragn-
hildi Þóru, og þrjú
stjúpbörn:
Kristínu, Ólaf
Pétur og Pál
Gunnar.
Hún er með
stúdentspróf frá
Kvennaskólanum
í Reykjavík og
hefur einnig
meðal annars lært
við Húsmæðra-
skólann í Reykja-
vík og tekið
námskeið í
sölutækni og
bankastörfum í
Þýskalandi. Hún
lauk nýlega námi í
þjóðfræði við
Háskóla Íslands.
Hún hefur
starfað sem
bankamaður og
kennari og rak
lengi matvöru-
verslun í Reykja-
vík. Hún hefur
setið í ýmsum
nefndum og
ráðum. Hún var
borgarfulltrúi í
Reykjavík fyrir
Framsóknarflokkinn
í sextán ár og var
formaður borgar-
ráðs í fimm ár. Hún
var formaður
borgarstjórnar-
flokks Reykjavíkur-
listans í átta ár.
Sigrún var
formaður mennta-
ráðs Reykjavíkur-
borgar þegar
grunnskólarnir voru
færðir frá ríki til
sveitarfélaga og er
sögð hafa verið einn
helsti drifkrafturinn
í einsetningu
skólanna. Hún hefur
gegnt ýmsum
trúnaðarstörfum
fyrir Framsóknar-
flokkinn. Einkum
hefur hún verið
öflug í að byggja
upp kvennastarf
flokksins. Hún var
formaður Félags
Framsóknarkvenna
1982 til 1986 og
hefur setið í
miðstjórn flokksins.
Hún var varaþing-
maður flokksins í
fjögur ár.
Sigrún hefur að
sögn vandamanna
hennar sýnt
einstakan dugnað
við uppbyggingu
Sjóminjasafnsins.
Varðskipið Óðinn og
dráttarbáturinn
Magni eru hluti af
sýningu safnsins og
er því lýst sem
kraftaverki að
henni hafi tekist að
fá skipin til
safnsins. Henni er
hrósað fyrir
fjármálastjórn
safnsins, meðal
annars að hafa
tekist að fá öfluga
bakhjarla til að
styðja það.
Vinir og vanda-
menn Sigrúnar lýsa
henni sem fram-
kvæmdaglaðri og
kappsfullri konu
sem bjóði af sér
góðan þokka. Hún
er skemmtileg og
hlý, skapgóð og
fylgin sér. Heil-
steypt, ósérhlífin og
„meistari í því að
líta vel út“. Hún er
sögð mikill húmor-
isti og góður
dansari. Menn eru
sammála um
mikilvægi starfa
hennar, þó hún hafi
ekki alltaf baðað sig
í sviðsljósinu. Menn
áttu ekki gott með
að nefna galla í fari
Sigrúnar, en einn
nefndi þó að hún
gæti verið þrjósk.
gunnlaugurh@frettabladid.is
Fasteig
nablað
bls.8
RE/MA
X Lind
hlaut v
erðlaun
in sölu
hæsta
RE/M
AX
stofan
árið 2
007. H
ér veita
Gunna
r Valss
on, Axe
l
Axelss
on og H
annes
Steindó
rsson v
erðlaun
unum
viðtöku
.
Chairm
ans Aw
ard er
næst e
fsti flok
kurinn
sem ve
itt
eru ver
ðlaun f
yrir. 6 Í
slendin
gar náð
u þeim
frábæ
ra
árangri
. Bóas
Bóass
on, Ha
nnes S
teindó
rsson,
Garða
r Hólm
, Vernh
arð Þo
rleifss
on, Ha
fdís Ra
fns-
dóttir
og Ásd
ís Ósk
Valsd
óttir. (v
antar á
mynd)
Gunna
r Valss
on, Ga
rðar H
ólm og
Hafdís
Rafns
-
dóttir h
lutu ve
rðlaun
er kalla
st Hall
of Fam
e en þ
au
eru vei
tt fyrir e
instakle
ga góð
an áran
gur í fa
steigna
-
sölu.
Fylgist
með næ
stu fas
teignab
löðum
RE/MA
X þar s
em flei
ri verðl
aunahö
fum ve
rða ger
ð skil
VERÐL
AUNA
HÁTÍÐ
Á ÍS
LANDI
ER ÞÍN ATVINNUAUGLÝSING HÉR? MEST LESNA ATVINNUBLAÐ LANDSINS
S. 512 5426 - vip@365.is S. 512 5441 - hrannar@365.is
[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM ÍÞRÓTTIR ]
Sport ALLT UM EM 2008
Falla ekki inn í normið
Ef Beggi úr Hæðinni ætti að bjóða Boris krafta-
karli í mat myndi hann elda lambalæri og græn-
meti. Boris myndi helst ekki mæta nema hann
fengi að minnsta kosti fi mm sneiðar. Rökstóla-
par vikunnar fer yfi r málin.
Konur og karlar hágrétu
Hundrað manna hópur Íslendinga fór í píla-
grímsför til Liverpool á bítlaslóðir.
Villtist og fann köllun sína
Búddamunkurinn Lama Tenzin Choegyal varð
fyrir barðinu á uppreisnarmönnum og var týnd-
ur, slyppur og snauður við rætur Himalajafjalla.
EM komið af stað
- fylgiblað Fréttablaðsins um íþróttir, Sport, kem-
ur út á „morgun“. Veglegt blað þar sem fi nna má
allt um EM í fótbolta.
Sport
SIGRÚN MAGNÚSDÓTTIR
ÆVIÁGRIP
Sigrún Magnúsdóttir er fædd í Reykjavík hinn 15. júní 1944.
Foreldrar hennar voru Sólveig Vilhjálmsdóttir húsmóðir og Magnús
Jónsson Scheving sjómaður. Hún á einn bróður, Eyjólf, sem er
kennari. Sigrún er gift Páli Péturssyni, fyrrverandi alþingismanni og
ráðherra. Hún var áður gift Kára Einarssyni verkfræðingi. Hún á tvö
börn: Sólveigu Klöru og Ragnhildi Þóru, og þrjú stjúpbörn: Kristínu,
Ólaf Pétur og Pál Gunnar.
Sigrún útskrifaðist frá Kvennaskólanum í Reykjavík 1961 og hefur
auk þess meðal annars numið sölutækni og bankastörf í Þýska-
landi. Hún er með próf í þjóðfræði frá Háskóla Íslands.
Sigrún hefur starfað sem bankamaður, kennari og kaupmaður og
hefur setið í ýmsum nefndum og ráðum, einkum fyrir Framsóknar-
flokkinn. Hún var formaður borgarstjórnarflokks Reykjavíkurlistans
1994 til 2002.
VANN SÉR TIL FRÆGÐAR?
Getur haldið þremur appelsínum á lofti í einu. Svaf ekki í sólarhring
fyrir enduropnun Sjóminjasafnsins í Reykjavík.
HVAÐ SEGJA AÐRIR?
„Sigrún er einstaklega glaðlynd og skapgóð og fylgin sér. Hún er
voðalega heilsteypt manneskja. Mér líkar í alla staði mjög vel við
hana.“
Áslaug Brynjólfsdóttir, fyrrverandi fræðslustjóri hjá Reykjavíkur-
borg og vinkona.
HVAÐ SEGIR HÚN?
„Mér finnst sjávarlykt góð og er ekki í þeim hópi fólks sem telur að
atvinnustarfsemi eigi ekki að vera í borginni. Mér finnst alltof mikið
bera á því að ekki megi finnast lykt af fiski. Fiskurinn hefur haldið
okkur uppi og hann á að vera hluti af okkar tilveru. Við eigum að
lifa með fyrirtækjunum og sögu þeirra og það er til marks um
sköpunarkraft að við skulum koma þessu safni á fót hér í hringiðu
sjávarútvegs.“ Sigrún um Sjóminjasafnið í Reykjavík í Fréttablaðinu
5. febrúar 2004.
MAÐUR VIKUNNAR
Konan á bak við tjöldin
Auglýsingasími
– Mest lesið