Fréttablaðið - 07.06.2008, Blaðsíða 74
46 7. júní 2008 LAUGARDAGUR
utlit@frettabladid.is
DAÐRAÐ VIÐ TÍSKUNA
Marta María Jónasdóttir
Aðfaranótt mánudags andaðist hinn merki hátískuhönnuður Yves Saint
Laurent, sjötíu og eins árs að aldri. Næsta dag sagði Sarkozy forseti hann
hafa „lyft tískuhönnun á æðra plan og gert úr henni listform“. Forseti
Yves Saint Laurent-fyrirtækisins, Valerie Hermann, segir hann hafa
„breytt reglum tískunnar og setti á hana sína ódauðlegu undirskrift“.
Hermann bætti við að fyrirtækið og núverandi hönnuður þess,
Stefano Pilati, myndu gera allt til að varðveita anda og arf Saint
Laurents sem hóf feril sinn aðeins tuttugu og eins árs gamall hjá
tískuhúsinu Christian Dior. Á þeim tíma sló hann í gegn með stutt-
um kápum, safari-jökkum, hlébarðamynstrum og hippalegum
fatnaði, en þegar hann opnaði eigið tískuhús árið 1962 var
það kvöldklæðnaður hans sem varð eftirsóttur af þeim
ríku og frægu.
Leikkonan Catherine Deneuve varð hans helsta
músa á sjöunda áratugnum og klæðist enn fatnaði
frá YSL. Le Smoking er sennilega frægasta flík
Saint Laurents sem braut sögulegt blað með því
að klæða konur í karlmannsföt og buxnadragtin
hefur verið til í fataskápum ótal kvenna alla tíð
síðan. En jafnvel þegar Yves Saint Laurent klæddi konur í jakkaföt og
smóking vissi hann upp á hár hvernig ætti að láta kynþokka þeirra
skína í gegn. - amb
FRANSKI HÖNNUÐURINN YVES SAINT LAURENT LÁTINN
SNILLINGS MINNST
KVENLEGT
Dragt sem St
Laurent hannaði
fyrir Dior á
sjöunda ára-
tugnum.
KONUNGUR SMÓKING
DRAGTARINNAR
Yves St Laurent árið 1972.
KYNÞOKKAFULLT
Konur elskuðu að
klæðast fötum eftir
St Laurent.
GLYS OG GLAMÚR
Yves st Laurent með
samkvæmisíunni Nan
Kempner.
MÚSAN Leikkonan Catherine Deneuve í fatn-
aði YSL í kvikmyndinni Belle du Jour.
gráa lakk-
skó sem eru
fullkomnir við
gallabuxurnar í
sumar. Frá Mir-
anda, fást í Kron-
kron, Laugavegi.
nýja ilm-
vatnið frá
Kenzo, India
sem angar
af exótísku
sumri.
æðislega
sumarkápu
frá Prairies de
Paris. Fæst
í Kisunni,
Laugavegi.
Hvernig stendur á því að leggings hafa orðið að tískuflík? Þegar ég var
lítil hétu þetta reyndar gammósíur og þá var ég klædd í þetta undir
önnur föt svo mér yrði ekki kalt. Á unglingsárunum í kringum 1990
komst þetta í tísku og minnist ég þess að hafa átt einar röndóttar sem
ég var í við stóra litríka peysu og heklaða húfu. Það er kannski
skiljanlegt að frasinn „þetta er svo næntís“ blómstri um þessar mundir
því það er einhvern veginn ekkert smart við það tímabil. Fyrir tveimur
árum fór að bera á leggingsæðinu og ég verð að játa að ég skil þetta
ekki alveg því það er vandasamt að klæðast svona fatnaði og vera
smart á sama tíma. Mér dettur í hug að þetta hafi helst náð vinsældum
því konur vissu ekki hverju þær ættu að klæðast við pils þegar 40 den
sokkabuxur hættu að vera töff.
Ég minnist þess þó að hafa fundist þetta ágætt til að byrja með en
þegar ég var farin að sjá aðra hverja konu í leggings, óháð vaxtarlagi
eða fatasmekk, þá fór leggings tískan svolítið að þynnast út.
Til að geta klæðst leggings niður á miðja kálfa þurfa leggirnir að
vera ansi langir og einhvern veginn gengur ekki upp að láta leggings-
buxurnar ná niður að ökkla og vera svo í opnum skóm við. Tala nú ekki
um þegar viðkomandi er kominn í stutt gallapils við. Það var kannski í
lagi fyrir þremur árum en er nú einhvern veginn alveg runnið sitt
skeið. Svo er alltaf svolítið dapurt að horfa upp á leggings og skjanna-
hvítt hörund við strigaskó. Í þessum tilfellum bjargar brúnkukrem
ekki neinu því ekki er betra að hörundið á milli leggings og striga-
skónna sé heiðappelsínugult og flekkótt. Það mætti líka álykta um að
trendið væri búið þegar Sex and the city-skvísurnar myndu ekki láta
sjá sig dauðar í leggings.
Hvað eiga konur þá að gera fyrst leggingstímabilið er runnið sitt
skeið á enda? Sjálf mæli ég með 80 den sokkabuxum. Mér finnst þær
alltaf gera fótlegginn svolítið sætan og svo passa þær við allt, bæði
kjóla og pils og flest skótau. Ég verð þó að játa að það er í lagi að vera í
leggings í tveimur tilfellum. Ef þær eru nógu langar svo hægt sé að
girða þær eins langt ofan í skóinn og hægt er þannig að rétt glitti í
ristina og líka ef þær eru togaðar upp og látnar enda við hnésbót með
rykkingum yfir hnén. Það er skvísulegt.
Eru leggings smart?
OKKUR
LANGAR Í
…
> TÍSKUFRÉTTIR VIKUNNAR
Nýtt ilmvatn frá Gaultier Ilmvötnin frá franska hönnuð-
inum Jean-Paul Gaultier hafa átt mikilli velgengni að
fagna og nú ætlar hann að setja á markaðinn splunkunýj-
an dömuilm. Hann kallast „ Ma dame“ eða daman mín,
og einkennist af skemmti-
legri blöndu appelsínu,
rósar og sedrusviðs.
Andlit ilmvatnsins er ofur-
fyrirsætan Agyness Deyn
sem klæðist svörtum
buxum og hvítri skyrtu í
auglýsingum Jean-Bapt-
iste Mondino. Ilmurinn
er væntanlegur í verslanir
þann 1 september.