Fréttablaðið - 07.06.2008, Blaðsíða 70

Fréttablaðið - 07.06.2008, Blaðsíða 70
42 7. júní 2008 LAUGARDAGUR ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Ég fæ allan innblástur minn frá fyrrverandi eiginkonu minni. Ég heiti Tinna! Ég er að spá í að syngja dálítið sem ég samdi sjálf! Gjörðu svo vel! Þegar þú ert tilbúin! Megum við vera með í hljómsveit- inni þinni, Tinna? Vel- komin í Fótsúpu! Ég get hætt í skóla! Þakka þér Guð!Áheyrnarprufur En svo? Ég og þessi strákur? Við skiptum með okkur hamborgara? Og hann fékk smá tómatsósu á kinnina? Og ég hugs- aði, nú? Og hann uppgötvaði það ekki? Svo ég fríkaði? Ég tók blaut- þurrku? Pirrar það þig að Soffía? Talar bara í spurningum? Fyrst þú minnist á það? Er ég að verða geð- veikur? Hæ, Lalli! Það er laugardagur! Enginn skóli í dag! Jei! Nú... En, Mjási, við erum ekki í skóla. Þar fór helgin mín. Veistu hvað gæti litið vel út hérna? Veggur með fjölskyldu- myndum Ímyndaðu þér heilan vegg af myndum af ykkur krökkunum, sem allir gætu séð... Væri það ekki fínt? Jú! Allt í lagi. Athugum hvað við finnum í myndakassanum. Hvað með þessar? Ö - það voru ekki beint myndir af bróður þínum að venjast koppinum sem ég hafði í huga. Síðustu vikur hafa verið strangar en flensan herjaði á litlu skottuna og þvottadrenginn til skiptis. Ég stóð í ströngu við aðhlynn- ingu sjúkra og gekk fram af mér í umstang- inu kringum þvotta- drenginn. Hann var þurfta frekur sjúklingur og kunni þá list að vera lasinn. Um daginn vaknaði ég svo undir- lögð af beinverkjum og hugsaði mér gott til glóðarinnar. Nú fengi drengurinn aldeilis að finna til tevatnsins. Ég sá fyrir mér hvern- ig hann stryki hitaperlurnar af enninu á mér með klút og gæfi mér vatn að drekka. Ég ætlaði að senda hann endilangan eftir nauð- þurftum og ónauðsynlegum þurft- um. Væla um verki og hungur og kría út flókna máltíð í hádeginu sem hann þyrfti helst að mata mig á. Ég svaf til hádegis og vaknaði örlítið hressari. Ekkert bólaði á þvottadrengnum í hádeginu svo ég nagaði rúgbrauð með osti og beið. Drattaðist svo sjálf á endan- um og fann mér verkjatöflur við hausverknum. Lagði mig svo aftur og beið. Hann var enn ókom- inn til að sinna hlutverki sjúkra- liða þegar ég leit upp úr bókinni síðdegis. Mér leið aðeins skár svo ég skellti í eina þvottavél og fékk mér síðdegishressinguna sjálf, aðra rúgbrauðsneið með osti. Um kaffileytið var ég orðin furðu hress og beinverkirnir horfnir. Ég hengdi því upp úr þvottavél- inni og setti í aðra. Þegar feðginin komu loks heim seint og um síðir var ég fullfrísk. Ég reyndi þó að bera mig illa og vola utan í þvotta- drengnum. Kvartaði um verki og vesæld í von um að fá þá þjónustu sem mér fannst ég eiga inni. En drengurinn hló að eymd minni. Hann sagði mig eins geta sótt vatnið sjálf fyrst ég gat þvegið þvotta í allan dag, henti sér svo glottandi upp í sófa. Ég bölvaði þvottadrengnum í hljóði meðan ég tíndi í þurrkar- ann. Ég á margt ólært í listinni að vera lasin. STUÐ MILLI STRÍÐA Listin að vera lasin RAGNHEIÐUR TRYGGVADÓTTIR VAR SVIKIN UM VEIKINDAÞJÓNUSTU
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.