Fréttablaðið - 07.06.2008, Blaðsíða 62
34 7. júní 2008 LAUGARDAGUR
Á
rni Scheving hefði
orðið sjötugur á
morgun, en hann
lést 22. desember
síðastliðinn. Í tilefni
dagsins verða
haldnir glæsilegir tónleikar í
Súlnasal Hótel Sögu annað kvöld,
sunnudagskvöldið 8. júní, þar sem
fjörutíu af fremstu djasstónlistar-
mönnum landsins koma saman til
að heiðra minningu þessa mikla
tónlistarmanns.
Árni var einn fjölhæfasti tónlist-
armaður sem Ísland hefur átt.
Hann var jafnvígur á fjölda hljóð-
færa svo sem bassa, harmóníku,
óbó, saxófón og píanó, en segja má
að víbrafónninn hafi verið ein-
kennishljóðfæri hans. Ungur að
árum lærði hann á blokkflautu og
harmóníku. Víbrafónninn var vin-
sælt hljóðfæri í hljómsveitum á
þessum árum og Árna langaði
mikið í víbrafón. Eftir að hafa
þrælað sumarlangt í byggingar-
vinnu keypti hann sér víbrafón
sem Svavar Gests kenndi honum
undirstöðuatriðin á. Stuttu síðar
hringdi sjálfur KK í hann og sautj-
án ára, árið 1955, var hann kominn
í vinsælustu hljómsveit landsins,
KK-sextettinn. Hann lék með
sextettinum þar til hann var lagð-
ur niður árið 1960.
Þegar hér var komið sögu var
Árni heldur betur kominn á bragð-
ið. Fram á dauðadag var hann á
fullu, bæði sem spilari og kennari,
á sviði, í kennslustofum, í æfingar-
húsnæðum og í hljóðverum. Árni
lék inn á hátt í 300 hljómplötur og
tók virkan þátt í að efla tónlistarlíf
landsins og ekki síst djasslífið. Eitt
helsta afrek Árna var að skipu-
leggja tónleika Útlendingaher-
sveitarinnar, þar sem hann kallaði
gamla félaga heim frá útlöndum til
að leika djass fyrir Íslendinga á
ótal tónleikum og tveimur plötum.
Þeir sem koma fram á tónleikun-
um annað kvöld eru meðal annars
Stórsveit Reykjavíkur, Ragnar
Bjarnason, Guðmundur Stein-
grímsson, Sigurður Flosason,
Pálmi Gunnarsson, Óskar og Ómar
Guðjónssynir, Björn Thoroddsen
og Einar Scheving. Tónleikarnir
hefjast kl. 20 og 1.500 krónu
aðgangseyrir rennur óskiptur í
minningarsjóð Árna, sem mun
styrkja efnilega tónlistarmenn til
framhaldnáms.
gunnarh@frettabladid.is
Í minningu
Árna
Scheving
UNGUR AÐ ÁRUM VIÐ VÍBRAFÓNINN
Árni byrjaði að spila á einkennis-
hljóðfæri sitt sextán ára gamall. Hér
er hann við fyrsta víbrafóninn sinn af
Trixton-gerð. Myndina tók Örn Egilsson,
æskuvinur og skólafélagi Árna.
BRÁÐUNGUR MEÐ VINSÆLASTA BANDI LANDSINS KK-sextettinn réði ríkjum á
ballmarkaðinum á sjötta áratugnum. Hér er sextettinn ásamt söngvurum árið 1958.
Frá vinstri: Guðmundur Steingrímsson, Kjartan Magnússon, Ellý Vilhjálms, KK, Ólafur
Gaukur, Raggi Bjarna, Árni og Jón „Bassi“ Sigurðsson.
GRÍN OG GLENS Á HÓTEL SÖGU Í UPP-
HAFI TÍUNDA ÁRATUGARINS
Haukur Heiðar Ingólfsson, Ómar Ragn-
arsson, Halli, Laddi og Árni. Síðar lék
Árni með Hauki Heiðari á plötum hans.
SUMARGLEÐIN KYNNIR GLÆSILEGA
VINNINGA Í HAPPDRÆTTISLEIK
Árni í hópi helstu gleðipinna landsins,
mitt á milli Þorgeirs Ástvaldssonar og
Bessa Bjarnasonar.
GAMMURINN LÁTINN GEISA MEÐ FINN ZIEGLER Árni og danski fiðluleikarinn Finn Ziegler áttu gott samstarf sem skilaði sér á
mörgum glæsilegum tónleikum og einni plötu. Hér er sveitin í blússandi sveiflu á Jazzvakningartónleikum 1998. Einar Scheving
er á trommum og Gunnar Hrafnsson á bassa. Danski píanóleikarinn Olivier Antunes, fimmti maður kvintettsins, er utan linsu
ljósmyndarans.
MEÐ STÓRSVEIT HORNAFLOKKS KÓPA-
VOGS Á MIÐJUM NÍUNDA ÁRATUGNUM
Árni stjórnaði ýmsum hljómsveitum á
ferlinum, þar á meðal þessum ungu
Kópavogsbúum í glæsilegum hljóm-
sveitarbúningum.
KRISTINN, JÓN PÁLL OG ÁRNI GANTAST Í
ÚTLÖNDUM Eftir að KK-sextettinn hætti
störfum fór Árni til Þýskalands og lék
í þýskri hljómsveit ásamt Kristni Vil-
helmssyni og Jóni Páli. Seinna léku þeir
þremenningar víða í Danmörku.
FLOTTUR VIÐ VÍBRAFÓNINN Stíliseruð „Film Noir“-mynd frá sjötta áratugnum. Höfundur myndarinnar er að öllum líkindum
píanóleikarinn Kjartan Magnússon sem var lunkinn ljósmyndari.