Fréttablaðið - 07.06.2008, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 07.06.2008, Blaðsíða 8
8 7. júní 2008 LAUGARDAGUR DÓMSMÁL Maður sem sat í gæsluvarðhaldi í tólf daga grunaður um að eiga þátt í fíkniefnasmygli til landsins fær ekki skaðabætur frá ríkinu. Hann var aldrei ákærður og fór fram á fimm milljónir króna í bætur. Málið snerist um innflutning á ríflega þrettán kílóum af hassi sem komu til landsins með hraðsendingu inni í tölvubúnaði. Þrír sátu um tíma í varðhaldi, en aldrei var gefin út nein ákæra í málinu. Í dómi Héraðsdóms Reykja- víkur segir að framburður mannsins hafi ekki verið trúverðugur, sem skýri langt varðhald. Gangur rannsóknar- innar hafi verið eðlilegur. - sh Ríkið sýknað af bótakröfu: Fær ekki bætur fyrir varðhaldið DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykja- víkur hefur viðurkennt skaða- bótaskyldu Íslandspósts vegna slyss sem fyrrverandi starfsmað- ur fyrirtækisins varð fyrir við vinnu í nóvember 2004. Starfsmaðurinn, kona á sjötugsaldri, féll niður af um fimmtíu sentimetra háum rampi fyrir utan póstdreifingarstöð og ökklabrotnaði illa. Handrið hafði nýlega verið fjarlægt af rampnum. Dómurinn kemst að þeirri niðurstöðu að rekja megi slysið til gáleysis Íslandspósts, sem ekki hirti um að setja handriðið upp á ný eða koma fyrir bráðabirgðahandriði. - sh Eldri kona féll af rampi: Íslandspóstur greiði fyrir tjón VINNUDEILA Flugmálastjórn á Keflavíkurflugvelli hefur sagt upp samningum sínum við slökkviliðsmenn á vellinum um tuttugu klukkustunda fasta yfir- vinnu á mánuði fyrir ýmis við- haldsstörf á tækjum og húsnæði. Slökkviliðsmennirnir eru afar ósáttir við þessa aðgerð og sam- þykktu nýlega ályktun þar sem lýst er yfir óánægju með skerð- ingu á reglubundnum launum félagsmanna. Líta þeir á þessa aðgerð sem uppsögn kjarasamn- ings í heild. „Þetta eru um 20 prósent af þeirra föstu launum,“ segir Valdi- mar Leó Friðriksson, fram- kvæmdastjóri Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutninga- manna (LSS) og bætir við að þess- ar „sporslur“ hafi verið hluti af reglubundnum launum frá árinu 1967. Slökkviliðsmenn ætla að ganga út 1. ágúst næstkomandi þar sem þeir líta svo á að þeim hafi verið sagt upp með bréfi frá flugvallar- stjóra 28. apríl síðastliðinn. „Ég þori ekki að fullyrða að Keflavíkurflugvöllur lokist en málið er bara í biðstöðu,“ segir Valdimar Leó. Hann hafi, ásamt formanni LSS, fundað með flug- málastjórn á Keflavíkurflugvelli vegna málsins en að í sjálfu sér hafi ekkert komið út úr þeim fundi. „Staðan er alvarleg og það þarf að finna lausn.“ „Við lítum ekki á þetta sem uppsögn á neinum kjarasamningi heldur eingöngu uppsögn á auka- greiðslum, vegna breytinga á fyrirkomulagi,“ segir Stefán Thordersen, flugvallarstjóri á Keflavíkurflugvelli. Hann segir kjarasamninginn í fullu gildi og með breytingunni sé verið að færa störf slökkviliðsmanna á Keflavíkurflugvelli í sama horf og annarra slökkviliðsmanna á Íslandi. Hann segir slökkviliðsmenn með þessu fá meiri tíma til að búa sig undir störf sín. „Þeir hafa sinnt þessum aukastörfum á vökt- unum en tíminn verður nú betur nýttur til æfinga og menntunar slökkviliðsmanna.“ „Af sjálfsögðu lækka launin þegar aukavinna minnkar en þetta hefur verið aukagreiðsla.“ Til stendur að viðhaldsdeild og verktaki, sem sér um þrif taki við þeim störfum sem slökkviliðs- mennirnir hafa unnið. Vonast Stefán til að þeir fjár- munir sem sparast verði notaðir til að bæta úr ýmsum þáttum sem snúa að öryggi flugfarþega „og í betra slökkvilið til að takast á við þau verkefni sem vonandi koma aldrei upp“. olav@frettabladid.is Slökkviliðs- menn missa yfirvinnuna Slökkviliðsmenn á Keflavíkurflugvelli ósáttir við uppsögn á samningi um tuttugu klukkustunda fasta yfirvinnu. Um 20 prósenta kjaraskerðing. Slökkviliðsmenn fá meiri tíma til æfinga. SLÖKKVISTÖÐIN Á KEFLAVÍKURVELLI Slökkviliðsmenn á Keflavíkurflugvelli líta svo á að með uppsögn samningsins hafi kjarasamningi við þá verið sagt upp og áætla að ganga út fyrsta ágúst næstkomandi. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA SIMBABVE, AP Morgan Tsvangirai, leiðtogi stjórnarandstöðu Simbab- ve, var haldið föstum á lögreglustöð utan við Bulawayo, annarri stærstu borg landsins, í tvo tíma í gær. Áður en honum var sleppt var honum tjáð að hann mætti ekki halda áfram kosningabaráttu sinni þann daginn. Á sömu slóðum var Tsvangirai handtekinn á miðjum kosninga- fundi á miðvikudag. Hann og fjór- tán stuðningsmenn hans voru kærð- ir fyrir að „laða að fjölda fólks“. Lögregluyfirvöld segja hins vegar að þau vildu athuga hvort hjólin á bíl hans væru rétt stillt. Tsvangirai var sleppt á fimmtudag eftir níu klukkustunda fangelsisvist. - aa/vsp Kosningabaráttan í Simbabve: Leiðtogi stjórnarand- stöðunnar fangelsaður MORGAN TSVANGIRAI Lögreglan gerir honum lífið leitt í kosningabaráttunni fyrir úrslitaumferð forsetakosninga. FRÉTTABLAÐIÐ/AP BANDARÍKIN, AP Öldungadeildar- þingmaðurinn John Edwards hefur útilokað að hann verði varaforseta- efni Baracks Obama. Í viðtali við spænska dagblaðið El Mundo í gær segir Edwards að hann hafi að baki þá reynslu að ganga í gegnum kosn- ingabaráttu sem varaforsetaefni og hann langi ekki að endurtaka hana. Edwards var varaforsetaefni Johns Kerry í kosningunum 2004 og tók þátt í prófkjörsslagnum um útnefningu Demókrataflokksins í ár. Frá því hann lýsti stuðningi við Obama er slagurinn stóð sem hæst milli hans og Hillary Clinton hafa verið uppi vangaveltur um hvort hann yrði varaforsetaefni Obamas. Staddur á viðskiptaráðstefnu í Barcelona sagði Edwards afdrátt- arlaust, að hann væri boðinn og búinn að hjálpa Obama í barátt- unni með öllum öðrum hætti en þeim að vera meðframbjóðandi hans. Hillary Clinton mun í dag ávarpa stuðningslið sitt í Washington og binda þar með formlegan enda á baráttu sína fyrir forsetaframboðs- útnefningunni. Vitað er að hún muni í ræðunni þakka stuðningsfólki sínu og lýsa formlega yfir stuðningi við Obama. Ennig er búist við að hún muni hvetja demókrata til að fylkja liði að baki Obama í baráttunni um Hvíta húsið í haust. Margir stuðn- ingsmenn Clinton vilja að hún verði varaforsetaefni, en orðrómur er um að hvorki Clinton sjálf né Obama kæri sig um það. - aa Vangaveltur um væntanlegt varaforsetaefni Baracks Obama: Edwards útilokar framboð FUNDUÐU Í FYRRAKVÖLD Hillary Clinton og Barack Obama ræddu málin í heima- húsi í Washington á fimmtudagskvöld. Myndin var tekin fyrir tveimur árum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Nýttu þér dýrmæta þekkingu og reynslu íslenskra garðplöntuframleiðenda. VELDU ÍSLENSK SUMARBLÓM, SÉRMERKT ÞÉR. „Íslensk blóm eru harðgerð, kröftug og fersk.“ Björn Sigurbjörnsson, garðyrkjumaður. Í áratugi hafa íslenskir garðplöntuframleiðendur unnið að því að byggja upp og rækta úrval af garðplöntum fyrir íslenska veðráttu. 1. Hver var settur saksóknari í Baugsmálinu? 2. Í hvaða tveimur löndum er Evrópumótið í knattspyrnu haldið? 3. Hver leikur Galileo Galilei í umdeildum símaauglýsingum? SJÁ SVÖR Á SÍÐU 58 VEISTU SVARIÐ?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.