Fréttablaðið - 07.06.2008, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 07.06.2008, Blaðsíða 24
24 7. júní 2008 LAUGARDAGUR FÖSTUDAGUR, 30. MAÍ. Vorverk Frú Sólveig gaf mér fyrirmæli um að rísa upp frá skrifborðinu og fara með sér austur í Bolholt til vorverka. Þetta var fremur óspennandi ferðalag. Rigning og þoka á Hell- isheiði og sá ekki í heiðan himin fyrr en komið var að brúnni yfir Ytri-Rangá. Á eystri bakka árinn- ar var hið fegursta veður en slag- viðri vestan megin. SUNNUDAGUR, 1. JÚNÍ. Fuglasöngur og sveita- sæla Helgin var fljót að líða við rösk- legar tiltektir í Bolholti í blíðu veðri. Girðingar, áburðardreifing o.fl. Frábært hvað félögum mínum, Fanneyju, Líneyju, Finni og Óla vinnst vel ef ég passa mig á því að vera ekki fyrir. Ég var nægilega útsmoginn til að taka að mér það verk sem einna flestir munu sjá að hafi verið unnið um helgina – og málaði útidyrahurðina. Heimferð um kvöldið. Kvödd- um sveitina með söknuði. Það er skrýtið fyrir miðborgarbúa að sofna við fuglasöng á kvöldin. Kannski væri það góð hugmynd til að koma á skikkanlegum friði í miðbænum að hengja upp hátal- ara og útvarpa fuglasöng á kvöld- in? MÁNUDAGUR, 2. JÚNÍ. Einangrun vegna jóla- vertíðar Dagurinn fór í nauðsynlegar útréttingar vegna þess að nú er ég að fara í einangrunarvist til að reyna að klára bókina mína. Þetta er það sem Samfylkingin og nútímalega þenkjandi fólk mundi kalla „átaksverkefni“ því að bókin sem ég er búinn að hanga yfir mánuðum saman þarf að kom- ast í prentsmiðju fyrir haustið svo að hún nái jólavertíðinni – og fjöl- skyldan fari ekki í jólaköttinn. ÞRIÐJUDAGUR, 3. JÚNÍ. Höfuðbólið og hjáleigan Einangrunar- vistin lofar góðu – eða hitt þó held- ur! Tölvan mín sem lék á als oddi í gær- kvöldi hérna hjá mér í einangrun- inni virðist hafa orðið bráðkvödd í svefni í nótt. Sama hvað ég setti mörg raflost á hana. Eftirmiðdagurinn fór í að fara með tölvuskrattann til umboðsins, það er að segja dagurinn hjá frú Sólveigu, en á meðan hélt ég áfram að puða á hennar tölvu. Sem betur fer átti ég afrit af handritinu á flakkara því að reynsl- an hefur kennt mér að tölvur geta verið varasamar. Frú Sólveig sem hefur meiri trú en ég á mannkyn- inu kom heim furðulostin yfir því að henni var sagt að tölvuviðgerðin gæti tekið eilífðartíma – nema maður greiddi ákveðna þóknun til að fá flýtimeðferð, sjö þúsund kall. Frú Sólveig sem er að norðan af heiðarlegu bændafólki neitaði að borga aukagjald fyrir að troða tölv- unni fremst í röðina svo að ég varð sjálfur að hringja og lofa því að borga forgangsgjaldið með skilum svo að ég fái atvinnutækið mitt aftur fyrir áramót. Árangurinn af fyrsta deginum í einangrun er því minni háttar taugaáfall. Ég skil ekkert í því að tölvan skuli hafa tekið upp á því að gefa upp öndina. Það er ekki eins og ég hafi verið að yrkja á hana ljóð eða skrifa flókinn texta. Á netinu sé ég að BB, hinn óvið- jafnanlegi dómsmálaráðherra okkar, er að skemmta sér við að ausa úr hlandfor sálar sinnar yfir minn gamla mentor, Jónas Kristj- ánsson ritstjóra, og segir m.a. á heimasíðu sinni: „Það er ein af þver- sögn- um samtímans, að Jónasi skuli hafa verið falið að halda námskeið um blaðamennsku. Kannski er það vís- asti vegurinn til að grafa undan marktækum fjölmiðlum í landinu – eða hvað?“ Þessi greindarlega og sanngjarna kvörtun yfir því að mönnum hafi láðst að setja Jónas í „Berufsver- bot“ (atvinnubann) þykir mér athyglisverð og vil benda fólki á að bera saman andagift og heiðríkju hugans annars vegar á vefsetrinu www.bjorn.is og hins vegar www. jonas.is og dæmi svo hver fyrir sig um hvort er höfuðból eða örreiti- skot. MIÐVIKUDAGUR, 4. JÚNÍ. Fornar ástir Fékk að vita símleiðis að bæði harði diskurinn og stýrikerfið í fartölv- unni minni væri hrunið. Með gjaldi fyrir „flýtiþjónustu“ kostaði 10.832 krónur að fá þær upplýsingar hjá Dell-umboðinu, EJS. Ég veit ekki hvaða kröfur fólk almennt gerir um verð og þjónustu en mér fannst þetta hvorki gott né ódýrt hjá umboðinu og ætla mér ekki að eiga fleiri Dell-tölvur. Til að ég sæti ekki verklaus heima í tölvuhraki ákvað frú Sól- veig að aumkast yfir mig og lánaði mér tölvuna sína sem er af Mac in- tosh-gerð, nokkurra ára gömul og gengur eins og klukka og heitir iBook G4. Það er skemmst frá því að segja að mér líkar svo prýðilega við grip- inn að ég fór og sótti hræið af Dell- tölvunni og kom við hjá Apple- umboðinu í bakaleiðinni. Það var merkileg upplifun. Eiginlega var þetta eins og í rómantískri skáld- sögu þar sem elskendur sem ill örlög hafa aðskilið ná saman aftur. Fyrsta tölvan mín var Macintosh og ástæðan fyrir því að ég hætti við þá tölvutegund var að á fyrstu dögum tölvupósts voru einhverjir samskiptaerfiðleikar milli makka og pésa, þannig að erfitt var að senda skjöl á milli án þess að þau glötuðust eða umturnuðust yfir á djöflaþýsku. Nú eru þau vandamál úr sögunni og ég get vonandi aftur tekið upp fyrra samband við makka, en fyrsta tölvan mín var 512 kílóbæt (hvað sem það nú er); sú sem ég féll fyrir núna er 2 gígabæt og ótrúlega glæsileg. Ég gerði þeim Apple-mönnum tilboð sem þeir gátu ekki hafnað: Ef þeir geta bjargað ákveðnum gögnum úr Dell-tölvunni og flutt yfir í MacBook Air til afhendingar í síðasta lagi á föstudag skal ég kaupa af þeim vélina. Reyndar veit ég ekki hvort maður skrifar því betri texta sem maður á betri skriffæri, en úr því að ég sit flesta daga við tölvu langar mig að fá loksins aftur að sitja yfir grip sem er snilldarlega hannaður. Íslenskir dómstólar hafa lag á því að koma manni sífellt á óvart. Í dag vann landsfrægur súlustaða- eigandi meiðyrðamál sem hann höfðaði gegn tveimur höfundum greinar sem birtist um súlustaðinn Goldfinger í tímaritinu Ísafold. Sektin fyrir að anda á mannorð súlustaðareigandans var milljón krónur. Þetta er nokkuð mikið í landi þar sem það kostar smáaura að nauðga kvenfólki. Hvaða sekt ætli sá eða sú fengi sem tæki upp á því að nauðga karl- kyns súlustaðareiganda? FIMMTUDAGUR, 5. JÚNÍ. Jarðskjálftar og ber- serksgangur í fjölmiðlum Það er reyndar ágætt að vera kom- inn í tímabundna einangrun. Það er svo mikið búið að ganga á að undan- förnu að maður þarf á næði að halda. Jarðskjálftarnir tóku á taugarn- ar og hafi stærsti jarðskjálftinn verið yfir 6 stig á Richterkvarða þá voru viðbrögð fjölmiðla eins og bæði heimsendir og innrás frá Mars hefðu orðið í sömu andránni. Svo var heldur ekki skemmtilegt að frétta um ísbjarnarmorðið í Skagafirði. Fréttamenn og yfirvöld á Íslandi kunna þá fornu list að ganga ber- serksgang meðan afgangurinn af þjóðinni fylgist með látunum í for- undran. Annars er maður löngu hættur að verða hissa á hýsterískum við- brögðum yfirvalda við hverju sem er. Úr því að það er í lagi að úða táragasi á bílstjóra og vegfarendur hlýtur líka að vera í lagi að skjóta dýr sem koma hingað til landsins án þess að fara í einangrun í Hrís- ey. Eiginlega er bara eitt skrýtið við þetta, og það er að Varnar- málastofnun skyldi ekki senda frönsku orustuþoturnar af stað til að sprengja bjössa greyið í loft upp. Þá hefði hernaðarmáttur Íslendinga spurst út um heims- byggðina. Fornar (tölvu)ástir Í dagbók Þráins Bertelssonar er fjallað um fuglasöng og sveitasælu, einangrunarvist, ótímabært fráfall fartölvu og rómantíska endurfundi fornra elskenda. Einnig er spurt hvað það myndi kosta að nauðga karlkyns súlustaðareiganda. KÆRA DAGBÓK Þráinn Bertelsson skrifar Ármúla 11 - sími 568-1500 Lónsbakka - sími 461-1070 Rafm.sláttuvélar Vandaðar vélar og öflugir mótorar E N N E M M / S ÍA www.krabb.is Dregið 17. júní 2008 Vertu með og styrktu gott málefni! Fjöldi útgefinna mi›a: 145.000 Sumarhappdrætti Krabbameinsfélagsins skattfrjálsir vinningar197 24.240.000 kr.að verðmæti 1 Grei›sla upp í bifrei› e›a íbú›. Ver›mæti 1.000.000 kr. 1 Skoda Octavia Scout, 4x4. Ver›mæti 3.740.000 kr. 195 Úttektir hjá fer›askrifstofu e›a verslun. Hver a› ver›mæti 100.000 kr. Glæsilegir vinningar Uppl‡singar um vinningsnúmer í símum 540 1918 (símsvari) og 540 1900 og á heimasí›unni www.krabb.is/happ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.