Fréttablaðið - 20.06.2008, Blaðsíða 82
46 20. júní 2008 FÖSTUDAGUR
r. nóttin fyrir gesti félaga
EM 2008
Portúgal-Þýskaland 2-3
0-1 Bastian Schweinsteiger (22.), 0-2 Miroslav
Klose (26.), 1-2 Nuno Gomes (40.), 1-3 Michael
Ballack (61.), 2-3 Helder Postiga (87.)
VISA-bikar karla:
KR-KB 1-0
1-0 Björgólfur Takefusa (49.)
Fjarðabyggð-FH 0-2
Jónas Grani Garðarsson, Matthías Guðmundsson.
Breiðablik-KA 1-0
Prince Rajcomar.
Hamar-Selfoss 2-1
Boban Ristic 2 - Ingþór Jóhann Guðmundsson.
Fram-Hvöt 2-1
Grímur Björn Grímsson, Hjálmar Þórarinsson
- Mirnes Smjalovic.
Fjölnir-KFS 6-0
Tómas Leifsson 2, Ólafur Páll Johnson, Pétur
Georg Markan, Ásgeir Aron Ásgeirsson, Ólafur
Páll Snorrason.
Þór-Valur 0-1
- Bjarni Ólafur Eiríksson.
Keflavík-Stjarnan 2-1
Magnús Sverrir Þorsteinsson, sjálfsmark - Ellert
Hreinsson.
ÚRSLIT
FÓTBOLTI Þjóðverjar voru fyrstir
til þess að bóka farseðil í undan-
úrslit EM eftir sigur á Portúgal, 3-
2, í mögnuðum knattspyrnuleik.
Þjóðverjar mæta sigurvegaranum
í leik Króatíu og Tyrklands í undan-
úrslitunum.
Leikurinn fór rólega af stað en
Portúgalar voru þó skeinuhættari.
Það voru engu að síður Þjóðverjar
sem komust yfir. Schweinsteiger
batt endahnútinn á magnaða
skyndisókn þeirra.
Markið kveikti heldur betur í
Þjóðverjunum því Miroslav Klose
kom þeim í 2-0 fjórum mínútum
síðar þegar hann stangaði
aukaspyrnu Schwein-
steigers í markið af stuttu
færi.
Portúgalar gáfust ekki
upp og Nuno Gomes minnk-
aði muninn fyrir hlé
er hann tók frákast
í kjölfar þess að
Lehmann varði frá
Ronaldo í dauða-
færi.
Portúgal byrjaði síðari hálf-
leikinn vel, var nálægt því að jafna
en það voru Þjóðverjar sem
skoruðu líkt og í fyrri hálf-
leik. Að þessu sinni Ballack
með skalla í teignum eftir að
hafa verið illa dekkaður.
Það var flest sem benti til
þess að Þjóðverjar væru að landa
þægilegum sigri þegar vara-
maðurinn Helder Postiga skallaði
boltann glæsilega í netið og gaf
Portúgölum von. Þeir sóttu grimmt
það sem eftir lifði leiks en náðu
ekki að opna þýsku vörnina og Þjóð-
verjar fögnuðu í leikslok. - hbg
Átta liða úrslit EM hófust í gær með leik Þýskalands og Portúgal:
Portúgal réð ekki við þýska stálið
GEÐVEIK BARÁTTA Leikmenn KB gáfu ekkert eftir á KR-vellinum í gær og hér fær KR-
ingurinn Guðjón Baldvinsson fría flugferð í boði Gunnars Jarls Jónssonar.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
MAGNAÐIR Þjóðverjar halda áfram að sýna mátt sinn á stórmótum og skildu Ron-
aldo og félaga eftir í keppninni í gær. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Það var ekki mikil reisn
yfir leik KR í gær þó svo Vestur-
bæjarrisinn hafi teflt sína sterk-
asta liði fram gegn hinu eins árs
gamla félagi KB. Það vann naum-
an 1-0 sigur á Breiðholtsliðinu,
sem leikur í þriðju deild, og kom
sigurmarkið frá Björgólfi Takefusa
á 49. mínútu. Markalaust var í hálf-
leik en KR-ingar sköpuðu sér afar
fá færi í fyrri hálfleiknum.
Snemma leiks átti KB að fá víta-
spyrnu og sluppu heimamenn þar
með skrekkinn. Lið KR var afar
andlaust og hreint út sagt lélegt.
Leikmenn KB komu hins vegar
dýrvitlausir til leiks og höfðu engu
að tapa. Þeir áttu meðal annars
skot í slá úr aukaspyrnu í síðari
hálfleik en ógnuðu annars lítið.
KR var miklu meira með boltann
og skapaði sér nokkur ágæt færi í
síðari hálfleik. Ragnar Daði
Jóhannsson, markmaður KB , átti
líklega leik lífs síns og varði
nokkrum sinnum glæsilega. KR-
ingum tókst ekki að bæta við marki
og sum skot þeirra voru sorglega
léleg.
Það sýndi sig í gær að það getur
allt gerst í bikarkeppninni. Litlu
liðin spila gjarnan með hjartanu
en stóru liðin nenna vart að klára
skylduverkefnið. Það var uppi á
teningnum í gær en á endanum
komst KR áfram í sextán liða
úrslit bikarsins.
„Ég verð að segja að strákarnir
spiluðu með hjartanu, það var
stórkostlegt að sjá til þeirra og
þeir gáfu KR-ingum ekkert eftir.
Við áttum að fá víti en dómarinn
var gunga að flauta ekki, það sáu
þetta allir. Gríska leikskipulagið
gekk ágætlega upp hjá okkur og
við vissum að við þyrftum að berj-
ast aftarlega til að komast með
sæmd frá þessu. Það gekk upp,“
sagði Magnús Einarsson, þjálfari
KB, brosmildur í leikslok. „Það er
engin spurning að KB fer sem
sigur vegari úr þessum leik. Þegar
við skiptum í 4-2-4 féllu þeir bara
til baka. Við ætluðum að taka þá á
úthaldinu í lokin,“ sagði Magnús.
KR-ingurinn Guðjón Baldvins-
son var ósáttur í leikslok. „Þetta
var arfaslakt. Menn voru ekkert
með hausinn í þetta. Við vorum til-
búnir í leik-
inn en eins og
þeir spiluðu
er þetta alltaf
erfitt,“ sagði
Guðjón, sem
var þó ánægð-
ur með að
komast
áfram. „Þeir
stóðu sig vel
og eiga hrós
skilið.“ - hþh
KR vann nauman sigur á 3. deildarliði KB í gær:
„KB fer úr leiknum
sem sigurvegarinn“
ÞÉTTIR Á VELLI SEM OG Í VÖRN Eins og sjá má eru ekki endilega allir leikmenn KB í
kjörþyngd en þeir veittu stórveldinu KR verðuga keppni í gær. Á minni myndinni er Elvar
Geir Magnússon, forseti KB, sem var ánægður með sína menn í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
FÓTBOLTI Mörk Jónasar Grana
Garðarssonar og Matthíasar
Guðmundssonar komu bikar-
meisturum FH í 16 liða úrslit í
VISA-bikar karla.
„Það var ágætt að sleppa með
0-0 inn í hálfleik en mér fannst
úrslitin sanngjörn að lokum,“
sagði Heimir Guðjónsson, þjálfari
FH. Magni Fannberg, þjálfari
Fjarðabyggðar, sá eftir dauðafær-
unum sem fóru forgörðum í fyrri
hálfleik.
„Við hefðum átt að vera 2-0 yfir
í leikhléi ef allt hefði verið
eðlilegt. En þetta er einfaldlega
munurinn á liðunum.“ - gg
Fjarðabyggð gegn FH:
Sigur hjá FH
BARÁTTA Leikmenn Fjarðabyggðar gáfu
FH ekkert eftir í gær. MYND/GG