Fréttablaðið - 18.07.2008, Blaðsíða 2
2 18. júlí 2008 FÖSTUDAGUR
Meistara-
flokkssúpur
Masterklass
Nýjung
Girnileg nýjung – 2 í pakka.
Tilvalið í ferðalagið.
Sylvía, eru þessi fatalög alveg
fatal lög?
„Það er lítill tilgangur í að setja lög
sem ekki er hægt að framfylgja.“
Bifhjólafólki er gert að klæðast viður-
kenndum lágmarkshlífðarfatnaði sam-
kvæmt fatalögum. Nokkurrar óánægju
gætir meðal bifhjólafólks vegna þessa.
Sylvía Guðmundsdóttir er formaður
Sniglanna.
UMHVERFISMÁL Málefni bílasafns-
ins á Garðstöðum við Ísafjarðar-
djúp hafa tekið nokkrum stakka-
skiptum að undanförnu. Að sögn
Ómars Más Jónssonar, sveitar-
stjóra Súðavíkurhrepps, var búið
að gera samkomulag við Þorbjörn
Steingrímsson, eiganda Garðs-
staða, um að fækka bílhræjum
niður í 60 fyrir haustið 2009 en
þau voru 560 árið 2005.
„Nú er bara svo komið að verð á
brotajárni hefur hækkað svo hann
hefur getað selt þetta og menn
koma langt að til að sækja þetta,
ekki nóg með það heldur er hann
farinn að taka við brotajárni frá
bændum í grenndinni til að koma
því í vinnslu,“ segir Ómar.
„Við eigum gott samstarf við
Þorbjörn og í raun myndum við
hjá Hringrás vilja tilnefna hann til
umhverfisverð-
launa fyrir þetta
starf sitt svo
einhver fái það
nú sem er í raun
og veru að vinna
að því að fegra
umhverfið,“
segir Einar
Ásgeirsson,
framkvæmda-
stjóri Hringrás-
ar.
„Hann sorterar þetta fyrir
okkur; tekur rafgeyma úr bílum,
tekur dekkin af og pressar bíl-
hræin svo hagkvæmt sé að flytja
þetta, þannig að hann er að vinna
verk sem við myndum annars
þurfa að gera svo vissulega greið-
um við honum fyrir það.“
Þorbjörn segir að fjöldi annarra
hafi sýnt því áhuga að fá brotajárn
hjá sér. „Það er minna framboð af
því núna svo að eftirspurnin er
meiri,“ segir hann.
Hvorki Ómar né Þorbjörn segj-
ast vissir um hversu mörg bílhræ
séu nú á Garðstöðum en heilbrigð-
isfulltrúi mun fara þangað í næstu
viku til að gera úttekt á svæðinu
og athuga hvernig gangi með sett
markmið. Síðast voru þau talin
árið 2006 en þá voru þau 469. Bæði
Þorbjörn og Ómar eru bjartsýnir á
að markmiðið náist á tilsettum
tíma. En hvað tekur þá við?
„Leyfið sem hann fær fyrir að
hafa þarna 60 bílhræ er háð því að
hann verði með leyfi fyrir starf-
semi þarna eins og til dæmis bíla-
partasölu,“ segir Ómar. Þorbjörn
telur hugsanlegt að sú verði lend-
ingin. jse@frettabladid.is
Vilja að bílasafnari fái
umhverfisverðlaun
Hreinsun á bílakirkjugarðinum á Garðsstöðum við Ísafjarðardjúp hefur leitt af sér
starfsemi sem endurvinnslan Hringrás vill tilnefna til umhverfisverðlauna. Ráðgert er
að einungis 60 bílhræ verði þar haustið 2009 en fyrir þremur árum voru þau 560.
FRÁ GARÐSTÖÐUM Bílasafnið á Garðstöðum hefur verið talið mikil óprýði fyrir hreppinn en nú er þar unnið verk sem fegrar land-
ið, að sögn framkvæmdastjóra Hringrásar. Innan rúmlega árs eiga aðeins að vera eftir 60 bílhræ en þau eru nú nokkur hundruð.
ÓMAR MÁR
JÓNSSON
VIÐSKIPTI Úrvalsvísitalan hefur
lækkað um 53 prósent frá því 18.
júlí í fyrra þegar hún var í methæð-
um. Þá mældist hún 9.016 stig. Nú
ári síðar stendur vísitalan í 4.157
stigum og hefur ekki verið lægri í
þrjú ár.
Flest félög hafa lækkað umtals-
vert á þesssu tímabili. Exista hefur
lækkað mest, um tæplega 83 pró-
sent. Atlantic Petroleum hefur
hækkað mest, um tæp 39 prósent.
„Við gerum ráð fyrir því að mark-
aðurinn verði rólegur út árið og
vísitalan standi í 4.000 stigum í árs-
lok,“ segir Sveinn Þórarinsson sér-
fræðingur hjá greiningu Glitnis.
Hann bendir á að veltan sé lítil og
verðmyndun óskilvirk.
Sveinn bendir á að markaðir
muni líklega ekki taka við sér fyrr
en óvissunni um lántöku ríkissjóðs
er útrýmt eða jákvæðar fréttir ber-
ast af fjármögnun íslensku bank-
anna. -bþa
Fyrir ári stóð úrvalsvísitalan í 9.016 stigum en hefur lækkað um helming:
Helmingslækkun á einu ári
NEYTENDAMÁL Sú var tíðin að mjólk-
urlítrinn og bensínlítrinn kostuðu
álíka margar krónur. Bensín lítrinn
fór til dæmis ekki að kosta meira
en mjólkurlítrinn fyrr en árið
1993. Á árunum 1993 til 1995 héld-
ust mjólkin og bensínið tiltölulega
vel í hendur og ekki var marktæk-
ur munur á verðinu.
Eftir 1998 hefur bensínið síðan
rokið fram úr mjólkinni og bensín-
lítrinn er nú 94 prósentustigum
hærri en mjólkurlítrinn.
Eftirtektaverðast varðandi
mjólkurlítrann er líklega að hann
lækkaði úr 82 krónum niður í 63
krónur á árinu 2005 en hækkaði
aftur í 78 krónur árið eftir og
hefur hækkað síðan.
Árið 1989 var bensínlítrinn tölu-
vert ódýrari en mjólkin, eða 19
krónum og árið 1987 kostaði
bensín lítrinn aðeins 34 krónur.
Bensínlítrinn hefur lækkað um
6,2 krónur á tveimur dögum.
Lækkun á flestum stöðvum var
fimm krónur í gær og 1,20 krónur
í fyrradag. Í gær kostaði bensín-
lítrinn um 170 krónur á flestum
stöðvum en ódýrast 168,90 hjá
Atlants olíu. Ástæðan er lækkandi
heimsmarkaðsverð og miklar
sviptingar í efnahagsmálum í
Bandaríkjunum. Ódýrasti lítrinn
af nýmjólk úti í næstu búð kostar
hins vegar 87 krónur. - vsp
Bensínlítrinn kostar tvöfalt meira en mjólkurlítrinn:
Bensín og mjólk kostuðu það sama
LÍTRAVERÐ Á MJÓLK OG BENSÍNI
1987 1989 1991 1993 1995 1997 1999 2001 2003 2005 2007 í gær
150 kr.
100 kr.
50 kr.
0 kr.
■ Mjólk
■ Bensín
44
34
169
76
63
97
74
63
70
HEIMILD: HAGSTOFA ÍSLANDS
ÚRVALSVÍSITALAN
18. júl. ´07 17. júl. ´08
8000
6000
4000
9012
4295
MESTU HÆKKANIR
Félag Hækkun
Atlantic Petroleum 38,76%
Tryggingamiðstöðin 19,44%
Alfesca 16,64%
MESTU LÆKKANIR
Félag Lækkun
Exista hf. -83,9%
FL GROUP -78,15%
Teymi -72,9%
UMHVERFISMÁL Skipulagsstofnun
hefur ákveðið að borun á rann-
sóknarholu í Gjástykki skuli fara
í umhverfismat, eins og Össur
Skarphéðinsson iðnaðarráðherra
óskaði eftir.
Stofnunin segir að borunin
kunni að hafa umtalsverð áhrif á
umhverfið og hana skuli því
meta. Gjástykki er eitt fjögurra
jarðhitasvæða sem rannsökuð eru
vegna hugsanlegs álvers Alcoa á
Bakka.
Iðnaðarráðuneytið skilaði áliti
sínu til Skipulagsstofnunar þann
8. júlí, eftir þriggja mánaða töf,
að sögn RÚV. Aðrir hafi skilað
áliti sínu innan tveggja vikna. - kóþ
Skipulagsstofnun ákvarðar:
Gjástykki fer í
umhverfismat
MATUR „Þetta er það eina sem
okkur fannst vanta í veitinga-
húsaflóruna,“ segir Stefán
Stefánsson sem var að opna
matsölustaðinn Just Food to go
ásamt konu sinni. Þar er hægt að
kaupa sér tilbúinn mat sem
seldur er eftir vigt.
Stefán leggur áherslu á
hollustu og býður ekki upp á neitt
brasað, engan skyndibitamat né
aukaefni. Hann er bæði með
venjulegan heimilismat og
veitingahúsarétti og fólk getur
einnig keypt af honum veislu-
þjónustu. -mþþ / sjá allt
Nýjung á Íslandi:
Tilbúnir réttir
seldir eftir vigt
JUST FOOD TO GO Nýr veitingastaður á
Laugarásvegi 1.
EFNAHAGSMÁL Mánuður er liðinn
frá því að ríkisstjórnin tilkynnti
um breytingar á Íbúðalánasjóði.
Fjármálastofnanir bíða enn eftir
reglugerð sem gerir þeim kleift
að skipta á íbúðabréfum fyrir
ríkistryggð skuldabréf.
„Enn hefur ekki reynt á tillögur
ríkisstjórnarinnar þar sem
undirbúningurinn var mikið
meira verk en gert var ráð fyrir í
upphafi,“ segir Guðmundur
Bjarnason, framkvæmdastjóri
Íbúðalánasjóðs. Samkvæmt
heimildum Markaðarins er
tíðinda að vænta á næstunni.
-bþa / sjá síðu 18
Íbúðalánasjóður:
Reglugerðar
enn beðið
GRIKKLAND Frá því í júníbyrjun
hafa 106 manns drukknað við
strendur Grikklands en það eru
fleiri en nokkurs staðar annars
staðar í Evrópu. Gríska dagblaðið
Ta Nea greinir frá þessu í gær.
Nikos Jovanidis, yfirmaður í
grísku sjóbjörgunarsveitinni, segir
ástæðuna meðal annars að einungis
um 40 prósent Grikkja séu syndir.
Einnig fari of margir í sjóinn stuttu
eftir að hafa tekið vel til matar síns
eða jafnvel neytt áfengis.
Meðal þeirra sem drukknað hafa
á þessu tímabili eru um 20 börn
undir 14 ára aldri. Síðustu tvo
áratugi hafa tæp sex þúsund manns
drukknað við strendur landsins. - jse
Sjósund á Grikklandi:
Yfir hundrað
drukknað í ár
BANDARÍKIN,AP Bandarískur
herdómari hefur hafnað kröfu
lögfræðinga Salims Hamdan um
að stöðva réttarhöld yfir Hamdan
fyrir sérstökum gerðardómi fyrir
fanga í Guantanamó-fangabúðun-
um.
Lögfræðingarnir telja brot
gegn jafnræðisreglu að Hamdan
fái ekki að flytja mál sitt fyrir
almennum dómstóli eða herdóm-
stóli.
Hamdan er ákærður fyrir að
styðja hryðjuverk, en hann var
bílstjóri bin Ladens. Hann getur
átt yfir höfði sér lífstíðardóm
verði hann fundinn sekur. - gh
Guantanamó-fangi:
Fer ekki fyrir
almennan dóm
SALIM HAMDAN Jemeninn er fangi í
Guantanamó-fangabúðum Bandaríkja-
manna. NORDICPHOTOS/AFP
SPURNING DAGSINS