Fréttablaðið - 18.07.2008, Blaðsíða 72
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
Það var úr vöndu að ráða þegar ungt par á þrítugsaldri ætlaði
að skella sér í útilegu á dögunum.
Ekki vantaði útbúnaðinn. Nýtt tjald
var komið í skottið og kæliboxið
hafði verið fyllt af nesti. Það var
aðeins einn hængur á. Aldurinn.
Fólk á hinum alræmda þrítugsaldri
er nefnilega ekki sérlega velkomið
á sumum tjaldsvæðum landsins.
Það er að segja ekki nema það hafi
slysast til þess að búa til barn í
tæka tíð til að geta dröslað því með
í útileguna.
ÁFANGASTAÐURINN var
löngu ákveðinn en samt var um
sannkallaða óvissuferð að ræða.
Skyldu þau fá að tjalda eða ekki?
Hafði tjaldvörðurinn á Laugarvatni
ekki sagt í fréttunum um daginn að
þar vildu menn ekki sjá „óæskilega
hópamyndun fólks undir þrítugu
sem ræður ekki við útrás sína“?
Hvernig átti að túlka þessi orð?
Skyldi par á þessum vafasama aldri
vera dæmi um óæskilega hópa-
myndun í augum tjaldvarðanna?
NÚ RIFJUÐUST upp löngu
gleymdar aðferðir sem reynst
höfðu notadrjúgar til að smygla sér
inn á skemmtistaði í den. Það var
reyndar of seint að útvega fölsuð
skilríki en ýmislegt annað mátti
reyna. Þeirri hugmynd skaut upp
að fá lánaðan barnabílstól og ljúga
síðan að tjaldvörðunum að krakk-
inn væri á leiðinni, hann hefði bara
fengið far með ömmu og afa. Í
framhaldinu kviknaði sú hugmynd
hvort ef til vill væri að skapast hér
markaður fyrir barnaleigu. Vanti
foreldra pössun um helgina má
eflaust leigja afkvæmin út til barn-
lausra á þrítugsaldri sem langar í
útilegu.
Í RAUN var svolítið hressandi að
uppgötva að þótt þrítugsafmælið
nálgist þá er enn þá eitthvað (fyrir
utan það að bjóða sig fram til for-
seta) sem við tuttuguogeitthvað-
fólkið erum of ung til að gera. Sex-
tán ára urðum við sjálfráða, sautján
ára fengum við bílprófið og tvítug
máttum við kaupa bjór. Allir afmæl-
isdagar síðan þá hafa verið hver
öðrum leiðinlegri en nú getum við
hlakkað til að fylla þrjá tugi og
mega loksins tjalda. Það er ekki svo
langt að bíða. Hins vegar er ferm-
ingarbörnunum vorkunn. Alltént
þessum sem fengu glænýtt kúlu-
tjald í fermingargjöf og þurfa að
bíða í 16 ár með að nota það.
PARIÐ unga datt að lokum niður á
einfalda aðferð til að blekkja tjald-
verðina. Góður púði var hafður
með í för sem undirrituð ætlaði að
troða inn á sig ef vígalega útkast-
ara tjaldsvæðanna bæri að garði.
Þeir fara varla að neita þungaðri
konu um gistingu. Svoleiðis gerist
bara í allra svæsnustu ævintýrun-
um.
Útilegumenn
BAKÞANKAR
Þórgunnar
Oddsdóttur
...ég sá það á visir.is
Segir grafhýsi Kleópötru fundið
Myndir berast frá Mars
Tilfærsla yfir á hægri akrein sviðsett
Býst við minni verðbólgu
MEST LESIÐ:
Í dag er föstudagurinn 18. júlí,
201. dagur ársins.
3.51 13.34 23.15
3.09 13.29 23.25