Fréttablaðið - 18.07.2008, Blaðsíða 26
[ ]
Markaður og kökuhlaðborð
verður í Arnardal við Ísafjarð-
ardjúp á morgun milli 14 og 17.
„Við erum með fjós og hlöðu sam-
byggt og erum búin að gera veit-
ingasal úr fjósinu en hlaðan er enn
hrá og töff. Á morgun verður þar
markaður sem við köllum Dala-
port,“ segir Anna Sigríður Ólafs-
dóttir sem er með rekstur í Arnar-
dal ásamt eiginmanni og
tengdaforeldrum. En hvers konar
markaður? „Ég á von á að þetta
verði ein risastór bílskúrssala. Fullt
af fólki að selja ýmsan varning. Mér
þykir líklegt að þar verði líka hand-
verk, sultur og ýmislegt heimafönd-
ur og svo verður kökuhlaðborð í
fjósinu.“
Arnardalur er við endann á
Skut ulsfirði, í 10 kílómetra aksturs-
fjarlægð frá Ísafirði. Þar er ferða-
þjónusta í uppbyggingu að sögn
Önnu Sigríðar. „Við erum komin með
veitingastaðinn og hlöðuna og erum
með leyfi fyrir tjaldsvæði,“ upplýsir
hún og bætir við. „Framtíðarplanið
er að gera smáhýsi líka og vera með
alhliða ferðaþjónustu.“ -gun
Dalaportið
Hlaðan er til margra hluta nytsamleg og
þar er oft margt um manninn.
Ferðafélag Fjarðamanna
stendur fyrir gönguferð upp
á Kistufell í Reyðarfirði á
morgun.
„Við erum með verkefni sem heitir
fjöllin fimm í Fjarðabyggð,“ segir
Ína Dagbjört Gísladóttir, formaður
Ferðafélags Fjarðamanna. „Við
handgerum hefti og seljum og síðan
þarf að stimpla þau með stimplum
sem verða á hverju fjalli.“
Kistufell er eitt hinna fimm fjalla
í Fjarðabyggð ásamt Goðaborg,
Svartafjalli, Hólmatindi og Hádeg-
isfjalli. „Þegar öll fjöllin hafa verið
gengin og heftin hafa verið stimpl-
uð í bak og fyrir fá göngugarpar
verðlaun og viðurkenningu á heima-
síðunni okkar.“
Að sögn Ínu Dagbjartar er verk-
efnið alltaf í gangi og fylgd upp á
fjöllin ekki nauðsynleg. „En Kistu-
fellið er erfiðast og það er best að
fara það með fylgd.“
Gangan hefst klukkan 10 og mæt-
ing er við Áreyjar. Nánari upplýs-
ingar um verkefnið má finna á
www.simnet.is/ffau - mmf
Gengið á fimm
fjöll í Fjarðabyggð
Gengið verður upp á Kistufell í Reyðarfirði á morgun klukkan 10. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Útilegur eru skemmtilegar í fallegu veðri með góðum hópi.
Fjölskyldan eða vinahópurinn getur farið saman í tjaldferð yfir
helgina og átt góða stund saman.
Allt fyrir útihátíðina
veislurnar & partíin
pöntunarsími: 6613700
Auglýsingasími
– Mest lesið