Fréttablaðið - 18.07.2008, Síða 26

Fréttablaðið - 18.07.2008, Síða 26
[ ] Markaður og kökuhlaðborð verður í Arnardal við Ísafjarð- ardjúp á morgun milli 14 og 17. „Við erum með fjós og hlöðu sam- byggt og erum búin að gera veit- ingasal úr fjósinu en hlaðan er enn hrá og töff. Á morgun verður þar markaður sem við köllum Dala- port,“ segir Anna Sigríður Ólafs- dóttir sem er með rekstur í Arnar- dal ásamt eiginmanni og tengdaforeldrum. En hvers konar markaður? „Ég á von á að þetta verði ein risastór bílskúrssala. Fullt af fólki að selja ýmsan varning. Mér þykir líklegt að þar verði líka hand- verk, sultur og ýmislegt heimafönd- ur og svo verður kökuhlaðborð í fjósinu.“ Arnardalur er við endann á Skut ulsfirði, í 10 kílómetra aksturs- fjarlægð frá Ísafirði. Þar er ferða- þjónusta í uppbyggingu að sögn Önnu Sigríðar. „Við erum komin með veitingastaðinn og hlöðuna og erum með leyfi fyrir tjaldsvæði,“ upplýsir hún og bætir við. „Framtíðarplanið er að gera smáhýsi líka og vera með alhliða ferðaþjónustu.“ -gun Dalaportið Hlaðan er til margra hluta nytsamleg og þar er oft margt um manninn. Ferðafélag Fjarðamanna stendur fyrir gönguferð upp á Kistufell í Reyðarfirði á morgun. „Við erum með verkefni sem heitir fjöllin fimm í Fjarðabyggð,“ segir Ína Dagbjört Gísladóttir, formaður Ferðafélags Fjarðamanna. „Við handgerum hefti og seljum og síðan þarf að stimpla þau með stimplum sem verða á hverju fjalli.“ Kistufell er eitt hinna fimm fjalla í Fjarðabyggð ásamt Goðaborg, Svartafjalli, Hólmatindi og Hádeg- isfjalli. „Þegar öll fjöllin hafa verið gengin og heftin hafa verið stimpl- uð í bak og fyrir fá göngugarpar verðlaun og viðurkenningu á heima- síðunni okkar.“ Að sögn Ínu Dagbjartar er verk- efnið alltaf í gangi og fylgd upp á fjöllin ekki nauðsynleg. „En Kistu- fellið er erfiðast og það er best að fara það með fylgd.“ Gangan hefst klukkan 10 og mæt- ing er við Áreyjar. Nánari upplýs- ingar um verkefnið má finna á www.simnet.is/ffau - mmf Gengið á fimm fjöll í Fjarðabyggð Gengið verður upp á Kistufell í Reyðarfirði á morgun klukkan 10. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Útilegur eru skemmtilegar í fallegu veðri með góðum hópi. Fjölskyldan eða vinahópurinn getur farið saman í tjaldferð yfir helgina og átt góða stund saman. Allt fyrir útihátíðina veislurnar & partíin pöntunarsími: 6613700 Auglýsingasími – Mest lesið

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.