Fréttablaðið - 18.07.2008, Síða 40

Fréttablaðið - 18.07.2008, Síða 40
útlit smáatriðin skipta öllu máli Hver kannast ekki við það að vera næstum því búinn að keyra á þegar andlitið er sett upp í bílnum á leið- inni í vinnuna? Hin ameríska Bobbi Brown veit hvernig lífi konur lifa og hefur komið með sniðugan kremaugn- skugga á markað sem er borinn á augnalokin með puttunum. Það tekur innan við mínútu að maka honum á og útkoman getur ekki klikkað. Augnskugginn getur þó þjónað fleiri hlutverk- um því það er ekkert að því að skella honum á varirnar á sér ef kona er í slíku skapi. Lit- urinn er í mildum sveppatón sem hentar hverri konu. Glamúrinn er mikill í nýjasta útlitinu frá MAC sem er sveipað stemningu frá áttunda áratugnum með smá diskóívafi. Ferskjulitaður kemur sterkur inn, hvort sem er í augnskuggum eða varalit. Til þess að ná útlitinu sem best er nauðsynlegt að húðin sé í góðu jafnvægi og geisli af feg- urð. Þegar húðin er orðin gyllt vegna sumars- ins er kannski ekki lífsnauðsynlegt að nota meik heldur dúppa sólarpúðri á andlitið, helst með perluáferð. Varirnar eiga að vera neonlitaðar helst í appelsínugulum tónum eða ferskjulitaðar, annaðhvort mattar eða háglansandi. Augnförðunin er létt og sum- arleg. Augnskuggarnir eru með perluáferð í ferskjulituðum tónum og svo fara litirnir út í gulllitað. Ekki er mikið um skyggingar heldur eiga augun að vera sem náttúruleg- ust þótt það megi glitra á þau. Augun eru römmuð inn með maskara sem á að vera í svörtum eða brúnum tónum. Fallegt er að bera gráan blýant alveg upp við augnhárin til að forma þau ennþá betur. Þegar förðunin er klár er ekk- ert annað í stöðunni en að skella sér í app- elsínugula sumarkjólinn og njóta þess að vera til. martamaria@365.is Nýjasta línan frá MAC er sveipuð stemningu frá áttunda áratugnum Ferskjulituð förðun NÝR MASKARI FRÁ NIVEA Túrkislitaðar og sumarlegar umbúðir segja allt um nýja maskarann frá NIVEA sem nefnist Extreme Resist. Hann mótar augnhárin og hefur þann eiginleika að geta haldið sér í 24 tíma samfleytt. Eins og nafnið gefur til kynna gerir hann sitt gagn og meira til. Gott er að setja svolítinn augnblýant alveg við augna- hárin til að fullkomna augn- umgjörðina. Kynþokkafull- ar varir. Pink Grapefruit er lit- urinn. Augnskugginn „Orange Tangent“ er ómissandi til að framkalla glamúrútlit sumarsins. Fyrir þær sem eru meira fyrir vara- lit er liturinn Mor- ange málið. Ertu tímabundin? K venpeningurinn dettur oft í þann pytt að kvarta yfir hinu kyninu. Þær karlmannslausu harma karlmannsleysið og þær ráðsettu eiga það til að setja endalaust út á betri helming- inn. Kvartanir kvenna eru þó oft á tíðum keimlík- ar og snúast oftar en ekki um hvað karlpeningur- inn sé óspontant og hugmyndasnauður. Allavega þegar kemur að því að koma eiginkonum og kær- ustum á óvart. Um daginn sagði ég manninum mínum frá uppákomu í fjölskyldunni sem snerist um að koma fjölskyldumeðlimum á óvart. Þegar ég var búin að segja honum söguna leit hann á mig með bros á vör og sagði: „Þú þarft nú ekki að hafa áhyggj- ur af þessu, ég er alltaf að gera eitthvað óvænt fyrir þig.“ Ég svitnaði þegar ég fattaði að hann var ekki að grínast enda minnist ég þess ekki að hafa verið sótt í þyrlu og boðið upp á pulsu í Borgarnesi eða verið leidd að glæsivillu sem væri pökkuð inn í bleikar slaufur með merkimiða sem á stæði „Til hamingju með daginn, elskan.“ Eftir nokkrar umræður um hvað það táknar að koma á óvart komst ég að því að í hans huga kallast það að koma á óvart þegar hann gefur mér jólagjöf sem ég hef ekki fyrirfram valið sjálf. Í mínum huga flokkast þetta ekki alveg undir að koma á óvart því mér finnst jafn sjálfsagt að að fá afmælis- eða jólagjöf sem ég hef ekki valið sjálf eins og að kaupa í matinn eða fara út með ruslið. Maðurinn minn varð þó óneitanlega spældur yfir þessu. Hann hafði líka lifað í blekkingu því hann hélt í alvörunni að hann væri ótrúlega spontant, uppátækja- samur og léki af fingrum fram þegar kæmi að því að koma mér á óvart. Samt verð ég að viðurkenna að hann kom mér svolítið á óvart með þessum hugsunargangi og var enn ein staðfestingin á því hvað kynin eru ólík. Þegar vinir okkar komu í heimsókn nokkrum dögum síðar opnaði ég þessa um- ræðu og komst að því að fyrirkomulagið var nánast með sama sniði og heima hjá mér. Konan framkvæmdi en maðurinn naut góðs af. Reyndar höfðu þeir það sér til málsbóta að eiga svo kröftugar konur að við værum alltaf búnar að græja og gera allt þegar þeir rönkuðu við sér. Í leiðinni minntu þeir á að þetta væri alls ekki illur ásetningur, þeir kæmust hreinlega ekki að fyrir frumkvöðlakraftinum og fram- kvæmdagleðinni sem ríkti í brjóstum eiginkvenna þeirra. Þá mundi ég eftir atvik- inu úr sjónvarpsþáttunum Stelpunum þar sem það „að koma á óvart“ snerist um að karlinn öskraði BÖÖÖ með þeim afleiðingum kærastan datt út úr sófanum. Svo leit hann á hana og sagði: „Þú bjóst ekki við þessu, elskan.“ Það er kannski ekki mín hugmynd um „að koma á óvart“ og auðvitað yrði ég hundleið ef ég missti stjórnina á heimilinu í skjóli óvæntra uppákoma. Þar fyrir utan eru óvæntar þyrluferðir í Borgarnes heldur ekki mín hug- mynd um skemmtun. Mér finnst mikilvæg- ara að eiga mann sem slær blettinn, ryk- sugar, múrar heilu herbergin, skiptir á kúka- bleium, eldar ofan í mig, þvær fötin mín og segir að ég væri flott tíu kílóum þyngri. Eru það ekki bara góðærisstælar að heimta óvæntar uppák- omur í gríð og erg þegar kaffibollinn kostar meira í París en Reykjavík? Marta María Jónasdóttir martamaria@365.is Góðærisstælar og 12 • FÖSTUDAGUR 18. JÚLÍ 2008

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.