Fréttablaðið - 18.07.2008, Síða 70
46 18. júlí 2008 FÖSTUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÖGIN VIÐ VINNUNA
LÁRÉTT
2. eyja í Asíu, 6. tveir eins, 8. hljóð
rjúpunnar, 9. skjön, 11. guð, 12.
viðburður, 14. Stefna, 16. málmur,
17. líða vel, 18. haf, 20. ónefndur, 21.
traðkaði.
LÓÐRÉTT
1. kvísl, 3. rykkorn, 4. aumkunn, 5.
herma, 7. litatónn, 10. síðan, 13.
svelg, 15. einn milljarðasti, 16. kær-
leikur, 19. holskrúfa.
LAUSN
LÁRÉTT:
2. Java, 6. ll, 8. rop, 9. mis, 11. ra, 12.
atvik, 14. boðun, 16. ál, 17. una, 18.
sær, 20. nn, 21. tróð.
LÓÐRÉTT:
1. álma, 3. ar, 4. vorkunn, 5. apa, 7.
litblær, 10. svo, 13. iðu, 15. nanó, 16.
ást, 19. ró.
„Já, Charlie Watts er þarna í nokkr-
um lögum á plötunni Dawn of the
Human Revolution,“ segir Herbert
Guðmundsson tónlistarmaður með
meiru.
Leyndarmál, sem farið hefur
verið með sem mannsmorð í tón-
listarbransanum nú í kvartöld, er
nú gert opinbert. En þannig er að
Charlie Watts, trommari Rolling
Stones, spilar í nokkrum lögum á
plötu Herberts, Dawn of the Human
Revoluton, sem kom út árið 1985
meðal annars á megasmelli Hebba
Can’t Walk Away. Hvernig má þetta
vera?
Þannig var að þegar Hebbi vann
við að hljóðblanda plötuna í London
í október árið 1984 í félagi við
íslenskan hljóðmann ónefndan þá
fannst þeim sem það vantaði
almennilegt trommusánd. Hebba
minnir að þetta hafi verið í Tapestry
Records og hljóðmaðurinn spurði
hvort ekki væri rétt að bæta sum
laganna með trommuslætti frá
Charlie Watts. „Stones höfðu þá
verið að taka þarna upp og snerill-
inn hans Charlies hafði orðið eftir í
„samplernum“. Hann sagðist eiga
þennan rosalega feita og þétta og
sneril og sagði hann vera frá þess-
um manni kominn. Og við notuðum
hann í nokkur lög. Sennilega í Can´t
walk away, örugglega í Wild Town
og einhver rokklög önnur,“ segir
Herbert. Sem jafnframt lofaði því
þá að þetta færi ekki lengra. „Ég
þorði ekki að tala um þetta svo ég
fengi ekki yfir mig málaferli. Eða
að ferli hljóðmannsins yrði rústað,“
segir Hebbi og telur ólíklegt að
Stones fari í málaferli við sig nú
þetta mörgum árum síðar. En þetta
var vitanlega ólöglegt og Charlie
Watts var aldrei spurður.
Þannig var að áður en Stones
ætla í stúdíó þá mætir Charlie
Watts hálfum mánuði áður til
að stilla trommurnar og
„sándið“. Og er einmitt fræg-
ur fyrir að ná sérstaklega
góðu „sneril-sándi“. Hann
spilar þá inn takta og sóló
sem tekin eru upp á sérstakar rásir.
Sé litið til ártalsins þá er þetta
reyndar frá niðurlægingarskeiði í
sögu Rolling Stones, þegar fátt var
með þeim Mick Jagger og Keith
Richards og Charlie Watts átti við
heróínfíkn að stríða. En líklega eru
þetta trommurásir sem Steve
Lillywhite tók upp fyrir plöt-
una Dirty Work sem kom
út árið 1986. Tvö ár liðu
en áður höfðu Stones
sent frá sér hljóðversplötuna Und-
ercover árið 1984 þannig að tæp-
lega getur verið um trommurásir
af þeirri plötu að ræða. Á Dirty
Work er til dæmis lagið Harlem
Shuffle og geta rokksögugeggjarar
nú borið saman Dirty Work og
Dawn of the Human Revolution og
hlustað einkum eftir snerilhöggum
Watts.
„Jújú, auðvitað er það sérstakt að
vera með trommuslátt frá Charlie.
Og ég hef legið á þessum upplýs-
ingum eins og ormur á gulli allan
þennan tíma. Og ekki þorað að
segja nokkrum manni,“ segir Hebbi
sem nú vinnur að nýrri plötu þar
sem öllu verður tjaldað til – Spegill
sálarinnar – en þó ekki trommara
Stones.
jakob@frettabladid.is
HERBERT GUÐMUNDSSON: EKKI ÞORAÐ AÐ SEGJA NOKKRUM MANNI FRÁ ÞESSU
Charlie Watts trommar
fyrir Herbert Guðmundsson
CHARLIE WATTS Einhver flottasti trymbill sögunnar lagði Hebba til sneril á plötuna
Dawn of the Human Revolution.
„Ég er að sjálfsögðu himinlifandi með að
Snorri Þórisson hafi keypt réttinn.
Óhemju flinkur fagmaður. Ég veit að
honum er mikil alvara með að gera úr
þessu alvöru bíómynd,“ segir Jóhann Páll
Valdimarsson, forstjóri Forlagsins, sem er
útgefandi Guðrúnar Evu Mínervudóttur.
Kvikmyndafélagið Pegasus hefur
undirritað samning við Réttindastofu
Forlagsins um kvikmyndarétt á skáldsög-
unni Yosoy eftir Guðrúnu Evu. Bókin kom
út árið 2005 og hlaut Menningarverðlaun
DV. Hún fjallar um óvenjulegt fjölleika-
hús sem rekið er í gamalli ullarverk-
smiðju við Álafoss og óhugnanlega
starfsemi þar.
„Sagan er tvímælalaust vel fallin til
kvikmyndunar. Jájá, grótesk bók. Mjög.
Og ég held að þetta geti orðið gríðarlega
spennandi kvikmynd,“ segir Jóhann Páll
og sér ekki neitt því til fyrirstöðu að filma
óhugnaðinn. Kvikmyndaréttur sem þessi
er ekki metinn undir milljón. Og þá sem
staðfestingargjald viðkomandi kvik-
myndagerðarmanns. Fari myndin í
framleiðslu bætist við þá upphæð og eru
svo samningsákvæði um frekari greiðslur
til samræmis við velgengni myndarinnar.
Sem fyrr segir er það Snorri Þórisson hjá
Pegasus sem nú hefur tryggt sér kvik-
myndaréttinn en það er Marteinn Þórsson
sem skrifar handrit upp úr bók Guðrúnar.
„Ég hef óbilandi trú á Guðrúnu Evu. Og
kannski ekki tímabært um að tala en við
verðum með nýja bók eftir hana í haust,
bók sem ég held að eigi eftir að vekja
gríðarlega athygli. Og ljóst þykir mér að
Snorri ætti þá að vera í startholunum með
að tryggja sér réttinn á henni líka,“ segir
útgefandinn snjalli. - jgb
Yosoy Guðrúnar Evu kvikmynduð
SAMINGUR UM KVIKMYNDARÉTT UNDIRRITAÐUR Úa Matthí-
asdóttir hjá Forlaginu, Snorri Þórisson og Guðrún Eva kát við
undirritun samnings. FRÉTTABLAÐIÐ/JÓHANN PÁLL
Glænýr viltur lax
Úrval fi skrétta á grillið
Óbreytt fi skverð frá áramótum
GANGA.IS
Ungmennafélag Íslands
„Það var einhver flensa að ganga í
vinnunni svo ég ákvað bara að
taka góðan skammt af vítamínum
í forvarnarskyni. Í kjölfarið varð
ég svo bara veikur og lá í rúminu í
tvo daga,“ segir Guðjón Baldvins-
son sem starfar hjá Visa Valitor og
leikur knattspyrnu með meistara-
flokki KR. Guðjón hefur staðið sig
vel með KR í sumar og leist ekki á
blikuna fyrst um sinn.
„Þegar ég spurði aðila sem
þekkir til, sagði hann að þetta væri
eflaust vítamíneitrun af völdum
of mikillar neyslu á A-vítamíni
sem skilst ekki út úr líkamanum
líkt og vatnsleysanleg vítamín
gera,“ útskýrir Guðjón sem þjáð-
ist af miklum höfuðverk í tvo
daga. „Mér fannst frekar heimsku-
legt að lenda í því að fá eitrun útaf
of mikilli vítamínneyslu, en núna
er maður bara eiturhress,“ segir
Guðjón og hlær.
Aðspurður hvað sé framundan
segist Guðjón stefna á háskóla-
nám. „Ég er að fara að hætta hjá
Visa í næsta mánuði og fer í við-
skiptafræði í Háskólanum í
Reykjavík í haust. Svo er það auð-
vitað fótboltinn með KR,“ segir
Guðjón að lokum.
-ag
Fótboltamaður fékk vítamíneitrun
ALLT BEST Í HÓFI Guðjón segist framveg-
is ætla að taka vítamín í hófi, en hann
þjáðist af miklum höfuðverk og slapp-
leika eftir að hafa tekið stóran skammt
af vítamínum í forvarnarskyni.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Upptökur á myndinni
Reykjavík Whale
Whatching Massacre
munu hefjast í byrjun
ágúst. Myndin er í leik-
stjórn Júlíusar Kemp
en framleiðslu-
fyrirtæki hans
og Ingvars
Þórðarson-
ar, Kisi, framleiðir myndina. Leikarar
myndarinnar koma víða að, meðal
annars frá Japan. Ekki fæst gefið
upp hvaða erlendu leikarar leika
í myndinni en meðal Íslendinga
verða Leðurfésið Gunnar Hansen,
Helgi Björnsson, Stefán Jónsson
og Guðrún Gísladóttir.
Þorvaldur Davíð
Kristjánsson ferðast
nú um landið ásamt
tveimur bandarísk-
um leiklistarnemum
úr Juiliard og
Columbia í New
York. Vinna
þau að leikgerð
upp úr Íslendingasögunum, eins og
Fréttablaðið greindi frá á vormánuð-
um. Þremenningarnir eru nú staddir
á Egilsstöðum þar sem þeir munu
skemmta bæjarbúum með örverki
eftir þá sjálfa. Herlegheitin munu
verða sýnd í Sláturhúsinu þar í bæ
en það eru Guðjón Sigvaldason
leikstjóri og leikhópurinn Frú Norma
sem ráða yfir því húsnæði.
Heiðar Austmann, útvarpsmaður-
inn geðþekki, lumar oft á ýmsu góð-
gæti fyrir hlustendur sem hringja
inn. Á dögunum var hann að gefa
nýju plötu Merzedes Club, I wanna
touch you, sem hlotið hefur prýðis
dóma víðast hvar. Einn hlustandi
Heiðars kunni þó ekki að
meta þessa gjöf Aust-
mannsins og fussaði í
símann yfir því að hann
væri að gefa diskinn.
Vildi hlustandi
þessi frekar verða
sér úti um ókeypis
tjald og afþakkaði
því geisladiskinn
kröftuglega.
Kannski hann
hafi verið hesta-
maður.
-shs
FRÉTTIR AF FÓLKI
„Ég hlusta nú eiginlega mest á
útvarp í vinnunni og skipti þá
aðallega á milli FM 957 og svo
Flass 104,5.“
Jóhann Kröyer rafvirki.
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á síðu 8
1. Fjögur prósent.
2. Ásmundur Jóhannsson.
3. Þyrluflug.