Fréttablaðið - 24.07.2008, Qupperneq 38
● fréttablaðið ● útivist og ferðalög 24. JÚLÍ 2008 FIMMTUDAGUR6
Skemmtilegur gönguleikur
hefur verið settur á laggirnar í
Fljótsdalshéraði fyrir vana og
óvana göngumenn.
Ferðafélag Fljótsdalshéraðs hefur
valið átján fjallaperlur í hérað-
inu, tvær í hverjum hinna gömlu
hreppa fyrir nýjan og skemmtileg-
an gönguleik. „Við leggjum áherslu
á gömlu hreppana, sem sameinuð-
ust í Fljótsdalshérað. Einnig vild-
um við finna tvær gönguleiðir
fyrir hverja perlu, eina stutta og
létta ætluð allri fjölskyldunni og
aðra lengri og þyngri,“ útskýrir
Hjördís Hilmarsdóttir, forsvars-
maður þessa verkefnis.
Perlurnar átján eru í níu hrepp-
um og uppi á þeim öllum er stauk-
ur með stimpli, gestabók og upp-
lýsingum um viðkomandi perlu.
Leikurinn gengur út á að safna
stimplum frá sem flestum perlum.
Hægt er að kaupa sér stimpilkort
í Upplýsingamiðstöð Egilsstaða
og í gönguferðum Ferðafélags
Fljótsdalshéraðs. Þeir sem safna
níu stimplum og skila inn stimpil-
kortinu verða titlaðir göngugarp-
ar Fljótsdalshéraðs á sérstöku við-
urkenningarskjali og fá göngukort
af svæðinu. Nöfn þeirra fara enn
fremur í pott sem dregið verður úr
á hinu árlega Ormsteiti.
„Ormsteiti er héraðshátíð hér í
Fljótsdalshéraði sem verður hald-
in 17. ágúst. Aðalvinningurinn er
gjafabréf hjá ÍT-ferðum upp á
60.000 krónur. Aðrir vinningar eru
fríar sunnudagsgöngur hjá ferða-
félaginu í heilt ár, gisting í skálum
ferðafélagsins fyrir fjölskylduna,
bækur og gjafabréf í útivistarbúð
á svæðinu,“ segir Hjördís.
Mikill áhugi hefur verið á þess-
um leik, en ekki er vitað nákvæm-
lega hversu margir hafa farið, þar
sem hvorki þarf að skrá sig né fara
með leiðsögumanni. „Við vitum
þó til þess að stofnaðir hafa verið
gönguhópar á vinnustöðum í kring-
um þennan leik og að fólk hafi
tekið börn sín með í léttari ferðirn-
ar og erum mjög ánægð með það,“
segir Hjördís. Nánar á www.fljots-
dalsherad.is/ferdafelag. - kka
Merkt við á hverjum tindi
Farin var ferð upp á Þerribjarg í vikunni og stimpilstauknum komið fyrir.
MYND/ÚR SAFNI FERÐAFÉLAGS FLJÓTSDALSHÉRAÐS
Hjördís Hilmarsdóttir, forsvarsmaður
gönguleiksins, er ánægð með undir-
tektirnar.
Eyjan Vigur er ein þriggja eyja á Ísafjarðardjúpi. Þar er ýmislegt
að skoða og ber helst að nefna fjölskrúðugt fuglalíf og ægifagra
náttúru Djúpsins. Vindmylla frá árinu 1840 ber með sér anda lið-
inna tíma, en hún er elsta
byggingin í eyjunni. Einn
elsta bát landsins er einn-
ig að finna í eyjunni, Vigur
Breiður, en hann var byggð-
ur um aldamótin 1800. Hann
var notaður til að flytja fólk
og fé allt til ársins 2000.
Sumir hafa orð á því að
það sé engu líkara en að tím-
inn standi í stað í Vigur og
því um tilvalinn stað til af-
slöppunar að ræða. Daglegar siglingar eru út í eyjuna og er hægt
að nálgast nánari upplýsingar á www.vesturferdir.is. - tg
Andi liðinna tíma
Fjöruferðir bjóða upp á siglingu um Hornafjörð út á Suðurfjör-
ur og þaðan fjórhjólaferð að Hvanney sem er við innsiglinguna
um Hornafjarðarós. Þar er
gengið um í 20 mínútur í
ósnortinni náttúru auk þess
sem skoðaðar eru rústir frá
stríðsárunum að sögn Hauks
Sveinbjörnssonar sem er
í forsvari fyrir Fjöruferð-
ir. Fuglalíf er fjölbreytt á
svæðinu og oft fylgjast selir
með ferðalöngum. Í góðu
veðri er útsýnið líka tignar-
legt upp til fjallanna og skriðjöklanna mörgu sem teygja loppur
sínar frá Vatnajökli niður undir láglendið. -gun
Fjör í fjöruferðum
Ekið er um ströndina á fjórhjólum undir
öruggri leiðsögn. MYND/BJARNI ÓLAFUR STEFÁNSSON
Auðvelt er að komast út í Vigur og njóta
náttúrunnar þar. FRÉTTABLAÐIÐ/INGI FREYR