Fréttablaðið - 27.09.2008, Qupperneq 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
49,65%
33,47%
72,34%
Fr
ét
ta
bl
að
ið
24
st
un
di
r
M
or
gu
nb
la
ði
ð
Allt sem þú þarft... ...alla daga
Fréttablaðið er með 46% meiri
lestur en 24 stundir og 116%
meiri lestur en Morgunblaðið.
Meðallestur á tölublað m.v. höfuðborgarsvæðið
18–49 ára. Könnun Capacent í maí–júlí 2008.
Sími: 512 5000
LAUGARDAGUR
27. september 2008 — 263. tölublað — 8. árgangur
En það er nú kannski ekki
öll nótt úti enn, það getur
vel verið enn þá að samningar
náist.
ÁSGEIR JÓNSSON
GREININGARDEILD KAUPÞINGS
FJÖLMIÐLAR Dagbók Þráins
Bertelssonar fagnar þriggja ára
afmæli í dag.
Þráinn hóf að
deila daglegum
dagbókarfærsl-
um einu sinni í
viku með
lesendum
Fréttablaðsins á
haustdögum
2005. Þar greinir
hann bæði frá
persónulegum
atburðum í lífi sínu og rýnir í
samfélagið eins og honum einum
er lagið. Hann hefur ekki misst úr
viku síðan og er dagbókarfærslan í
dag því sú 156. í röðinni.
Þráinn kveðst heldur glaður með
áfangann, hann hafi aldrei áður
haldið dagbók yfir svo langan
hluta af lífi sínu. Í dag trúir Þráinn
dagbókinni fyrir handriti að
grínmynd um kreppuna, en einnig
er fjallað um samkvæmislíf,
hugsjónamenn og prinsessufemín-
isma. - sjá síðu 18
Samtímaspegill á tímamótum:
Dagbók Þráins
þriggja ára
ÞRÁINN
BERTELSSON.
BJART EYSTRA Í dag verða víðast
suðvestan 8-13 m/s. Bjart austan
og suðaustan til annars skúrir og
hætt við slydduéljum á hálendinu.
Hiti 5-10 sig en um eða yfir frost-
marki á fjöllum.
VEÐUR 4
9 9
6
89
LÖGGÆSLUMÁL Jóhann R. Bene-
diktsson, lögreglustjóri á Suður-
nesjum, segir að eftir að Stefán
Eiríksson hætti í dómsmálaráðu-
neytinu skorti fagþekkingu þar.
„Það skortir tiltakanlega sér-
þekkingu á löggæslumálum innan
ráðuneytisins. Af því að ráðuneyt-
ið er of veikt til að sjá um verk-
efnið hefur það í auknum mæli
hallað sér að embætti Ríkislög-
reglustjóra. Þar reka menn pólitík
sem mér hugnast ekki,“ segir
Jóhann.
Jóhann lætur af störfum 1. okt-
óber, en hann segist hafa boðist til
þess að hætta í mars. „Ég var
ósammála hugmyndum Björns
Bjarnasonar um uppskiptingu
embættisins og vildi frekar hætta
en að innleiða þær. Björn vildi
hins vegar hafa mig áfram, sagði
engan mann betri en mig til verks-
ins.“
Jóhann segir stjórnunarhætti
Björns Bjarnasonar vera gamal-
dags og vonandi á leið út úr stjórn-
kerfinu. „Sá hroki og virðingar-
leysi sem einkennir stjórnun hans
tilheyrir öðrum tíma,“ segir hann.
Hann nefnir sem dæmi að ósk
embættis hans um fund um fjár-
mál hafi ekki einu sinni verið svar-
að. Þá hafi honum fyrirvaralaust
verið kippt út úr stjórn Landa-
mærastofnunar Evrópu. - kóp
Jóhann R. Benediktsson segir þekkingu vanta í dómsmálaráðuneytið:
Dómsmálaráðuneytið of veikt
FÓLK Gísli Örn Garðarsson mun
fara með hlutverk Don Juan í hinu
virta leikhúsi Royal Shakespeare
Company. Ný
leikgerð er
byggð á
óperunni Don
Giovanni en
gerist í Bret-
landi á pönkt-
ímabilinu.
Leikhúsið er
af mörgum talið
það stærsta í
Bretlandi, ef
ekki heiminum öllum. Þar hafa
stórleikarar á borð við Laurence
Olivier, Peter O‘Toole, Ben
Kingsley og Kenneth Branagh
áður leikið. „Þetta er stór rulla
sem maður verður að prófa,“
segir Gísli. - hdm/ sjá síðu 42
Gísli Örn Garðarsson:
Íslenskur Don
Juan í Bretlandi
GÍSLI ÖRN
GARÐARSSON
ALLIR BÍLAR Á EINUM
STAÐ - Á KLETTHÁLSI
Komdu árisastóraopnunarhátíðokkar íGrafarvogiÞANN 4. októberkl. 8
Korputorg, 112 REYKJAVÍK
Vorstraumar í rigningunni
FERSKIR STRAUMAR Á
TÍSKUVIKUNNI Í MÍLANÓ
34
VEÐRIÐ Í DAG
BEITT EINS OG HNÍFUR
Shirin Neshat er ekki
vinsæl meðal klerka-
stjórnarinnar í Íran
en vopnið hennar er
listin.
HELGARVIÐTAL 26
heimili&hönnunLAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 2008
● HÖNNUNEndurunnin hönnun
● HEIMILIÐForláta borðstofuborð
● INNLIT
Gamalt og nýtt í bland
Gengið frá greiðslumatiSótt
Á ils.is getur þú:
EFNAHAGSMÁL Tilkynning Seðla-
banka Íslands um að gjaldmiðla-
skiptasamningar hafi ekki tekist
við seðlabanka Bandaríkjanna
er ófullnægjandi að mati við-
mælenda Fréttablaðsins.
Í ljósi þess að seðlabanki
Bandaríkjanna hefur nú gert tví-
hliða gjaldmiðlaskiptasamninga
við fjóra norræna seðlabanka
„til að leysa úr bráðaþörf fyrir
Bandaríkjadali sem upp kom í
viðkomandi löndum“, greindi
Seðlabanki Íslands frá því í gær
að hann hefði einnig átt í viðræð-
um við bandaríska bankann.
„Ekki voru taldar ástæður eða
efni til þess að gera á þessu stigi
samning við Seðlabanka Íslands,“
segir þar. Þá er tekið fram að „alls
ekki“ sé útilokað að slíkur samn-
ingur verði gerður síðar.
Gylfi Arnbjörnsson, fram-
kvæmdastjóri ASÍ, segir orðalag-
ið benda til að „við höfum viljað og
þeir hafnað“. Mat bankans á lausa-
fjárstöðunni sé „svo víðs fjarri
mati allra annarra að það eitt og
sér er verulegt áhyggjuefni“.
Edda Rós Karlsdóttir hjá grein-
ingardeild Glitnis segir að yfirlýs-
ingin virðist fyrst og fremst til
þess fallin að slá á þann orðróm að
Seðlabankinn aðhafist ekki neitt.
Bankinn vilji róa markaði með því
að taka fram að hann hafi ekki
fengið endanlegt afsvar.
„Það er ljóst að seðlabanki
Bandaríkjanna byrjaði á því að
veita stærstu seðlabönkunum lán-
alínur. Í annarri umferð er komið
að Norðurlöndunum. Það er von-
andi að við séum þá í næstu deild
þar fyrir neðan, ásamt löndum
sem eru með hávaxtamyntir, eins
og Nýja-Sjáland,“ segir hún.
Ásgeir Jónsson í greiningar-
deild Kaupþings segir „mjög sér-
kennilegt“ að bankinn hafi ekki
skýrt frá þessu fyrr. „Þetta mun
hafa neikvæð áhrif á gengið. En
það er nú kannski ekki öll nótt úti
enn, það getur vel verið enn þá að
samningar náist,“ segir Ásgeir.
Ingimundur Friðriksson seðla-
bankastjóri bætir því við tilkynn-
inguna að hagsmunir seðlabanka
Bandaríkjanna hafi ráðið því að
hann samdi við hina bankana.
Bandaríski bankinn hafi talið sig
hafa beinan hag af því að liðka til á
millibankamörkuðum á hinum
Norðurlöndunum.
Um stefnu banka síns, meðal
annars um gjaldeyrisforðann,
segir Ingimundur að hún sé
óbreytt. - kóþ, msh, jse, ikh / sjá síðu 4
Seðlabankinn skýri málið
Útskýringar Seðlabankans um að samningar við seðlabanka Bandaríkjanna hafi ekki tekist vekja spurn-
ingar að mati sérfræðinga. Seðlabankinn segist enn ekki hafa fengið endanlegt afsvar.
SKRIFAÐ Í SANDINN Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu spilar sinn mikilvægasta leik frá upphafi kl. 14.00 í dag gegn Frökk-
um. Jafntefli dugar til þess að tryggja liðinu þátttökurétt í lokakeppni EM. Það yrði í fyrsta skipti sem A-landslið í knattspyrnu
kæmist í úrslit á stórmóti. Stelpurnar fóru á ströndina í gær þar sem þær skrifuðu „Áfram Ísland“ í sandinn. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FYLGIR Í DAG