Fréttablaðið - 27.09.2008, Page 18

Fréttablaðið - 27.09.2008, Page 18
18 27. september 2008 LAUGARDAGUR LAUGARDAGUR, 20. SEPTEMBER. Prinsessufemínismi Hér hefur dansinn dunað í allan dag. Hér var verið að gera sér dagamun í tilefni þess að Sólveig Kristín, litla Sól, varð 5 ára 18. þ. m. Leikskólasystur fjölmenntu, svo og ættingjar, vinir og velunn- arar almælisbarnsins eins og vera ber. Mikið bar á gjöfum sem tengj- ast prinsessum og daglegum þörf- um þeirra með einum eða öðrum hætti. Ég var ofurlítið uggandi um að prinsessur flokkuðust undir pólit- íska villutrú, og leitaði með þessar efasemdir mínar til ömmunnar sem sér ekki sólina fyrir sonar- dóttur sinni og nöfnu: „Prinsessu- dót?“ sagði amman. „Ég held að blessuðu barninu sé það ekki of gott − og svo eru allar prinsessur nútildags gallharðir femínistar.“ SUNNUDAGUR, 21. SEPTEMBER. Samkvæmislífið Ég hef statt og stöðugt vegna vinnu minnar neitað sjálfum mér og þar af leiðandi að hluta til konu minni um alla þátttöku í samkvæmislíf- inu sem er að falla í haustfarveg- inn. Í síðustu viku kom tilboð sem við gátum ekki hafnað: Að koma og hlýða á Gunnar Kvaran leika þrjár einleikssvítur eftir Bach á stofu- tónleikum hjá Önnu og Þorvaldi í Skugga. Þetta var ógleymanlegt. Gunnar hafði ekki látið sig muna um að læra verkin utan að og nálægðin þarna og einbeitingin var algjör. Góð byrjun á vetrinum! MÁNUDAGUR, 22. SEPTEMBER. Meðal hugsjónamanna í veröld sem var Merkileg reynsla. Eyddi deginum í að leika lítið hlutverk í bíómynd sem ungur maður, Hjálmar Ein- arsson, er að gera. Þetta var rosa- legt endurlit til æskuáranna þegar ég var að byrja að gera kvikmynd- ir. Það vinna aðeins örfáir við upp- töku myndarinnar kauplaust af þeim einskæra áhuga á að ljúka verkefninu, sem stundum er kall- aður „hugsjón“. Hjálmar sagði mér að hann hefði átt 15 þúsund kall þegar ráð- ist var í að framleiða myndina. MIÐVIKUDAGUR, 24. SEPTEMBER. Gamanmynd um gjald- þrota kaupfélag Það sem kreppan sem ekki má nefna hefur lagað í mínu persónu- lega lífi er að einkaþotuflug sem var mjög stundað rétt yfir hús- mæninn hjá mér meðan allir voru ríkir og þutu eftir vinnu á einka- þotum til að borða kvöldmatinn sinn í útlöndum hefur snarminnk- að. Í stað þess að liggja andvaka milli tvo og þrjú á nóttunni þegar íslenskir auðmenn sneru heim á einkaþotuflota sínum úr kvöldmat og siðmenntuðum súludansi frá meginlandi Evrópu get ég nú sofið á mitt græna eyra. Ef ég ætti að gera gamanmynd um fallítt kaupfélag á afskekktri eyju og ríkisstjórn Íslands ætti að leika stjórn fyrirtækisins myndi ég vilja gera nokkrar breytingar á leikaravalinu. Það mundi aldrei nokkur maður fást til að trúa því að bjöllusauðir eins og sjávarútvegsráðherrann og vegagerðarráðherrann hefðu brot- ist til mannvirðinga í smáþorpi þar sem allir þekkja alla. Ég mundi fá Engeyjarprinsinn, hinn N1-olíusmurða erfðaprins Bjarna Ben með sinn Hollywood- prófíl í stað sjávar- og landbúnað- arráðherrans sem lítur út fyrir að vera klón úr rollu og þorski; og í stað samgöngumannsins sem veit ekki hvort hann er að koma eða fara mundi ég setja ljóshærða hetjutýpu, Árna Pál, bróður píslar- vottarins Þórólfs hins krossfesta borgarstjóra sem Olíusamráðs- sanheddrín undir forystu farís- eanna lét lífláta einan manna fyrir ólöglegt verðsamráð. Toggu Kínatvífara mundi ég skipta út vegna erfiðleika við að læra textann sinn og fá hina þokka- fullt agressívu Hönnu Birnu í henn- ar hlutverk. Utanríkisráðherrann kæmi ekki við sögu, lægi með góðkynjað ein- kenni af riðuveiki fram á skrifborð sitt í Öryggisráðinu, en Geir Haar- de væri svo sannarlega þungamiðja verksins, miðaldra Hamlet, nýorð- inn kaupfélagsstjóri, að vera eða vera ekki, ekki, helst ekki, alls ekki, ó ekki. Atburðarásin væri þessi. Kaupfélagsstjórinn læsir sig inn á skrifstofu sinni og bryður þung- lyndislyf sem gera það að verkum að honum finnst þunglyndi sitt öðrum að kenna og vill því helst forðast annað fólk. Hanna Birna varastjórnarfor- maður hans sér að við svo búið má ekki standa og hringir suður yfir heiðar og biður Bjarna Ben að koma hið bráðasta og taka með sér bæði súper- og spæderman búninginn. Bjarni spæderman kemur á vett- vang og það fyrsta sem hann sér er að stjórnarformaðurinn situr fast- ur í gömlum kóngulóarvef og hefur ekki svigrúm til annars en seilast í aðra næringu en þunglyndislyfin. Bjarni rífur sundur vefinn og frels- ar stjórnarformanninn úr herkví- inni. Það rennur ljós upp fyrir Haarde þegar hann losnar. Gamla paddan lifir enn, segir hann, hún ein hefur getað spunnið þennan vef. Við verðum að leggjast í hreinsanir. Bjarni Ben og Árni hinn ljós- hærði horfast í augu. Láttu okkur um það, stjórnarfor- maður góður, og svo fljúga þeir út úr myndinni á súpermannasokka- buxum suður yfir heiðar. Vúmmmmm! Næsta sena væri á stjórnarfundi kaupfélagsins þar sem Geir leikur á als oddi og segir að síðan gamla paddan hafi verið gerð óskaðleg sé framtíðin björt: Við munum sam- einast Mjólkurbúi Flóamanna sem er nú æðsta stofnun Evrópusam- bandsins og taka upp þeirrra gjald- miðil innan þriggja daga. Þangað til verður þjóðhátíð og allir sem hafa greitt vísitölubætur fá þær endurgreiddar í konjaki sem fannst í maga þúfukroppin- baks sem gekk á land og spúði úr sér Jónasi spámanni ósködduðum, konjaksgámi og tímaritinu Séð og heyrt frá upphafi innbundnu í geitarskinn. Kreppunni hefur verið aflýst, og eftir af stjórn Kaupfélagsins standa aðeins Geir, Hanna Birna, og hin vinnusama og heilaga Jóhanna. Einnig gamli spekingur- inn og víkingurinn Össur Oddleifs- son sem brýtur tárfellandi saman ljósmynd af Ingibjörgu Sólrúnu í léttu en mjög góðkynjuðu riðu- veikikasti ofan í stressveski sitt. Á bak við ríkisstjórnina sést á haf út. Þar hafa hnúfubakar verið að leik á grunnsævi og brotið gat á jarðskorpuna þannig að olíugos- brunnar hafa opnast og risavaxinn olíugosbrunnur hefur myndast fyrir aftan kaupfélagsstjórnina. Kaupfélagsstjórnin stígur villt- an dans í fjöruborðinu, olíunni rignir yfir hið hamingjusama sveitaþorp. FIMMTUDAGUR, 25. SEPTEMBER. Annar þáttur: Ingibjörg Sólrún í öryggisráðinu enn mjög rænulítil en góðkynja. Gamla paddan er svæld úr svörtu greni sínu og ræður Ragnar Aðal- steinsson til að skrifa endurminn- ingar sínar. Haraldur Johannessen og Björn Bjarnason frelsast báðir og hljóta höfuðsmannstign í Hjálpræðisher- num; þeir selja nú Herópið á götum úti. Togga Kínatvífari leggur á fáka sína og ætlar ríðandi til Kína í hið þriðja sinn til að leggja stund á Pól- itískan afturbata og Kínverskunám undir handleiðslu J. Bjartmarz. Foreldrar klónaða fiskimálaráð- herrans hvísla því að honum tár- fellandi að hann hafi verið tilraun til að skapa marbendil sem hafi farið úr böndunum. Olíuský birtist á himni. Olíu tekur að rigna niður yfir réttláta sem rangláta. Kór erlendra skúringakvenna kemur dansandi með skúringaföt- ur að taka við regninu. Frjálshyggj- an ríkir ein ofar hverri kröfu. KÆRA DAGBÓK Þráinn Bertelsson skrifar Gamanmynd úr kreppu Í dagbók Þráins Bertelssonar er prentað áður óbirt handrit að grín- mynd um kreppuna. Einnig er fjallað um samkvæmislíf, hug- sjónamenn og prins- essufemínisma. hafskipsmálið upp úr kafinu www.forlagid.is A Ð ALL I ST I 26. 09 .08 M E T S Ö L U L I S T I „Höfundur kann greinilega til verka.“ jón þ. þór, dv „Það er sýnilega vandað til ritsins að öllu leyti … Bók Stefáns Gunnars er merkilegt rit um heldur ógeðfellt tímabil í íslenskri samtímasögu.“ páll baldvin baldvinsson, frét tablaðið

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.