Fréttablaðið - 27.09.2008, Side 10
10 27. september 2008 LAUGARDAGUR
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
OMX ÍSLAND 15 Fjöldi viðskipta: 385
4.312 +2,19% Velta: 3.610 milljónir
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Alfesca 6,65 -2,21% ... Atorka 5,68
++3,27% ... Bakkavör 24,30 +0,62% ... Eimskipafélagið 4,20 -1,41%
... Exista 7,59 +4,98% ... Glitnir 15,85 +2,92% ... Icelandair Group
20,00 -0,50% ... Kaupþing 755,00 +2,17% ... Landsbankinn 23,40
+1,74% ... Marel Food Systems 91,80 -0,22% ... SPRON 3,50 +6,06%
... Straumur-Burðarás 9,33 +2,75% ... Össur 95,60 -0,52%
MESTA HÆKKUN
EIK BANKI 7,43%
MESTA LÆKKUN
SPRON 8,57%
ATLANTIC PETROL. 2,81%
EXISTA 2,11%
Sparisjóðsbankinn Washington Mutual
(WaMu) var lýstur gjaldþrota á fimmtudags-
kvöld. Þetta er langstærsta bankagjaldþrot í
sögu Bandaríkjanna, því heildareignir
bankans, sem var sá áttundi stærsti í
Bandaríkjunm námu 307 milljörðum dollara.
Næststærsta gjaldþrotið varð 1984, 40
milljarðar, sem jafngilda um 80 milljörðum á
verðlagi dagsins í dag.
WaMu var leiðandi í útgáfu undirmáls-
lána, sérstaklega undirmálslánum á breyti-
legum vöxtum, en bent hefur verið á að
margir lántakendur hafi ekki skilið vaxta-
kjörin við undirskrift, og síðan ekki ráðið við
afborganirnar. Undanfarnar vikur hefur
verið þrálátur orðrómur um stöðubankans,
og viðskitpavinir því flykkst til að taka út
innistæður sínar. Á síðustu tíu dögum voru 9
prósent innistæðna teknar út.
JPMorgan Chase keypti útibúanet og
stóran hluta eigna WaMu. Með kaupunum
hefur JPMorgan enn frekar styrkt stöðu sína,
en atburðir undanfarinna vikna hafa orðið til
þess að þrír risavaxnir bankar drottna yfir
bandarískum bankamarkaði: JPMorgan
Chase, Bank of America og Citigroup. - msh
Langstærsta bankagjaldþrotið
Ekki hefur verið ákveðið hvort
láni Björgólfsfeðga vegna ábyrgð-
ar Eimskipafélagsins á láni til
stjórnenda XL Leisure Group
verði breytt í hlutafé.
Ábyrgðin, sem hljóðar upp á
280 milljónir Bandaríkjadala,
jafnvirði 25,5 milljarða króna, féll
á Eimskipafélagið þegar ferða-
skrifstofan var lýst gjaldþrota um
miðjan mánuðinn. Björgólfsfeðg-
ar tóku hana yfir.
Viðræður við lánardrottna
standa yfir og er stefnt á að þeim
ljúki fljótlega. Munu lán félagsins
við aðra en Björgólfsfeðga hafa
forgang áður en ákvörðun verði
tekin um hvort því verði breytt í
hlutafé. - jab
Enn er unnið
að útfærslunni
ÚTIBÚ WASHINGTON MUTUAL JPMorgan Chase
hefur keypt útibúanet Washington Mutual, áttunda
stærsta banka Bandaríkjanna. MARKAÐURINN/AFP
Lánalínur á borð við þær
sem seðlabankar Norð-
urlandanna gerðu við
Bandaríkjamenn myndu
tvímælalaust auka tiltrú
umheimsins á íslenskt
fjármálalíf og jafnvel auð-
velda Seðlabankanum að ná
samningum um langtíma-
lán.
„Aðgangur að skammtímalánalín-
um á borð við þær sem seðlabankar
Norðurlandanna fengu hjá Seðla-
banka Bandaríkjanna myndi tví-
mælalaust auka slagkraft og trú-
verðugleika Seðlabankans,“ segir
Gylfi Magnússon, dósent í hag-
fræði við Háskóla Íslands, og bætir
við að ljóst sé „að það verði túlkað
sem slæmar fréttir fyrir krónuna
ef Seðlabankinn nýtur ekki þess
trausts að erlendir seðlabankar
vilji gera við hann samninga sem
þennan,“ eins og raunin virðist hafa
orðið.
Gylfi tekur fram að vitaskuld séu
gjaldeyrisskiptasamningar skamm-
tímalausn og komi ekki í stað öfl-
ugs gjaldeyrisvaraforða, sem verði
aðeins efldur með langtímalánum.
Hann bendir hins vegar á að gjald-
eyrisskiptasamningur við Seðla-
banka Bandaríkjanna hefði hæg-
lega getað auðveldað
Seðlabankanum að ná hagkvæmum
samningum um langtímalán.
„Það er ekki hægt að skilja á milli
gjaldeyrisskiptasamninga til
skamms tíma og uppbyggingar
gjaldeyrisforða Seðlabankans til
langs tíma,“ segir Gylfi, því með
því að sýna fram á að hann hafi
traust annarra seðlabanka auki
Seðlabanki Íslands líkurnar á að
hann geti samið um langtímalán.
Í þessu samhengi nefnir Gylfi
gjaldeyrisskiptasamninga þá sem
Seðlabanki Íslands gerði við seðla-
banka Norðurlandanna í vor, en
markaðir tóku þeim samningum
fagnandi. Við það tilefni sagði Geir
H. Haarde forsætisráðherra að
samningarnir efldu traust á
íslenska fjármálakerfið og efna-
hagslíf landsins.
Jón Sigurðsson, varaformaður
bankastjórnar Seðlabankans, rifjar
einnig upp gildi þessara samninga,
sem hann segir sambærilega við
saminga seðlabanka Norðurland-
anna og Bandaríkjanna. Hann segir
að þeir hafi tvímælalaust aukið trú-
verðugleika Seðlabanka Íslands og
fjármálakerfisins: „Auðvitað væri
æskilegt að hafa slíka samninga við
seðlabanka allra okkar viðskipta-
landa.“
Jón segir að jafnhliða því sem
gjaldeyrisvarasjóðurinn sé byggð-
ur upp þurfi að „gera samninga til
vara, við sambærilegar stonanir í
öðrum löndum.“ Hann segist vita
að Seðlabankinn vinni að því, og
fyrir fram sé ástæðulaust að ætla
annað en að hægt sé að ná slíkum
samningum við seðlabanka við-
skiptalanda okkar.
Ingólfur Bender, forstöðumaður
greiningar Glitnis, segir að gengis-
fall krónunnar á föstudag virðist
meðal annars endurspegla ákveðin
vonbrigði á markaðnum með að
Seðlabankinn hafi ekki verið með í
skiptasamningnum seðlabanka
Norðurlandanna og Bandaríkjanna.
Hann óttast að síðustu fréttir bæti
ekki þar úr. „Seðlabankinn þarf að
beita öllum brögðum til að styrkja
krónuna, og það myndi tvímælala-
lust bæta andrúmsloftið ef skipta-
samningar næðust. Við verðum
bara og bíða og sjá. Ég treysti
Seðlabankanum til að vinna að þess-
um málum á fullu,“ segir Ingólfur.
msh@markadurinn.is
Samningar mikil-
vægir fyrir Ísland
Samtök iðnaðarins - www.si.is
7. október 2008 kl. 8.30-10.30
Gullteigur, Grand Hótel.
Morgunverður í boði SI kl. 8.00.
SI efnir til morgunverðarfundar
um nýtingu orkuauðlinda.
Dagskrá:
Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra
Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar
Ragnar Guðmundsson, forstjóri Norðuráls
Þorsteinn Ingi Sigfússon, forstjóri
Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands
Pallborðsumræðum stýrir Sigríður
Guðlaugsdóttir, verkefnastjóri miðlunar hjá SI
Fundarstjóri: Helgi Magnússon, formaður SI
Fundurinn er öllum opinn og ókeypis en tekið
er við skráningum á netfangið mottaka@si.is.
Orkunýting til hagsældar
STÓRKOSTLEG LAGERÚTSALA Á JÓLAVÖRUM, GJAFAVÖRUM, KERTUM,
SERVÍETETUM OG FLEIRU.
ER Í FAXAFENI 11 (GAMLA LEIKBÆJARHUSINU)
OPIÐ FRA 11-18 ALLA DAGA OG HELGINA LIKA ALLT AÐ 80% AFSLÁTTUR.
SEÐLABANKI ÍSLANDS. Ljóst er að gjald-
eyrisskiptasamningar til skamms tíma
myndu styrkja krónuna og auka trúverð-
ugleika Seðlabankans. FRÉTTABLAÐIÐ/HH